Bæta þarf málsmeðferðina
Ragna Árnadóttir fyrir miðju ásamt Guðrúnu Agnarsdóttur (t.v.) og Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur (t.h.) á ráðstefnu Stígamóta í dag. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
„ Við verðum að berjast gegn kynbundu ofbeldi,“ sagði Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra á ráðstefnu í tilefni 20 ára afmælis Stígamóta sem bar yfirskriftina nauðgarnir og viðbrögð samfélagsins við þeim.
Sagði hún það skyldu ríkisvaldsins að láta það málefni til sín taka hversu fá nauðgunarmál rata til dómstóla, hvort sem það sé löggjafinn, framkvæmdavaldið, ákæruvaldið eða lögregla.
„Það hlýtur að vera öllum áhyggjuefni hvers vegna málin eru svona fá þegar mun fleiri leita til Neyðarmóttöku eða Stígamóta en kærumál segja til um. Þetta er vitaskuld úrlausnarmál fyrir fleiri en ríkisvaldið. Þetta er úrslausnarmál fyrir samfélagið í heild,“ sagði Ragna og gerði klámvæðinguna að umtalsefni.
Hún velti upp þeirri spurningu hvort skilgreiningin á klámi væri lifandi og hvort notendur kláms forhertust eftir því sem meira af því væri neytt og spurði hvort þetta væri í lagi. Að hennar mati er mikilvægt að skoða betur hvað unnt sé að gera þegar búið er að fremja glæpinn. „Eitt brýnasta úrlausnarefni okkar nú er að finna saman leiðir til að bæta málsmeðferðina í kynferðisbrotamálum.
Okkur er það öllum hollt að endurskoða og endurmeta það kerfi og verklag sem við höfum sett okkur um meðferð og rannsókn þessara mála í ljósi reynslunnar. Því það má ekki verða þannig að kerfið tálmi, seinki eða jafnvel komi í veg fyrir að brot gegn svo mikilsverðum grundvallarréttindum rati til dómstóla. Við sem samfélag höfum ekki efni á því að slíkt geti átt sér stað.“
Á ráðstefnu Stígamóta fluttu erindi rithöfundur, talskona Stígamóta, sálgreinir, jafnréttishönnuður, hæstaréttarlögmaður, lögreglustjórinn í Reykjavík, ríkissaksóknari og settur héraðsdómari. Líflegar umræður mynduðust að erindum loknum.
Nánar er fjallað um ráðstefnuna í Morgunblaðinu á morgun.
Innlent »
- Vill ekki þvinga fólk til að skipta um ferðamáta
- Ókyrrð í lofti raskar flugi
- 86 heimafæðingar árið 2010
- Máttu ekki hafa sama verjanda
- Afsökunarbeiðni til Kópavogsbúa
- Um 850 jarðskjálftar í janúar
- Fjórum sagt upp hjá Vesturmjólk
- Leggur til lækkun á hesthús
- Gefið blóð 150 sinnum
- Gefur eftir kröfu um ópólitískan bæjarstjóra
- Allir þurftu að slá af
-
Heitavatnslaust í leikskólanum
- Dæmdur til að greiða Byko 19 milljónir
- Sammála ábendingum Ríkisendurskoðunar
- 467 milljónir til listamanna
- Sýknaður af líkamsárás
- Ármann verður bæjarstjóri
- Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald
- Heimsækir sjávarútvegsfyrirtæki á Bretlandi
- Áttum of mikið af hlutabréfum
- Spornað gegn ólöglegum útflutningi
- Kröpp lægð síðdegis
- Ólögleg lán úr styrktarsjóðum
- Endurbætur á Klettaskóla
- Eftirlit að mestu í samræmi við samninga
- CCP og GreenQloud semja við Verne
- Selja til að lána OR
- Kostar tvo milljarða
- Ekki fallist á kröfu Glitnis
-
Blár Ópal vinsæll á ný
- Skorað er á forsætisráðherra
- Hringdi í pabba sinn eftir hjálp
- Helmingur ferðast aldrei með strætó
- Rauðir hundar greinast á Íslandi
- Borgin bætir við sig
- Setur dagsektir á Arion banka
- Borgin fer yfir dóminn
- Eyddu ekki upplýsingum um rannsókn
- Hefur ekki áhrif á lífeyrisgreiðslur
- Fráleitt og fordæmalaust
- Birgir Þórarinsson: Ísrael/Palestína
- Fjölgun tvítyngdra nemenda
- Seinkun á flugi vegna bilunar
- Dominique Plédel Jónsson: Líftækni
- Krefst jöfnunar lífeyrisréttinda
- Hátt brottfall úr skólum á Íslandi
- Hestamenn í Borgarbyggð óánægðir
- Yfir 23 þúsund á bannskrá
- Náðu saman um málefnasamning
- Hlaut 6,5 milljóna rannsóknastyrk
- Hafði aldrei tekið bílpróf
-
Leiðin að draumastarfinu
- Hættuleg hálka á Suðurlandi
- 0,6% halli á HSu
- Alþingi geri úttekt á lífeyrissjóðunum
- Össur: Krugman og krónan
- Ætlar að birta upplýsingar um kadmíum
- Þingið ákveði löggildingu iðngreina
- Taka áhyggjur landgræðslustjóra alvarlega
- Skíðasvæðið í Tindastól opið
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Mánudagur, 8. mars 2010, Innlent Málum hjá Stígamótum fækkar
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
-
Obama hrósaði Monti
-
Anton: Þeir voru grimmari og ákveðnari
-
Stefán: Tapað stig, engin spurning
-
Hilmar: Vanur að taka víti gegn Sebastian
-
Kvikmyndahátíðin í Berlín sett
-
Undirbúa olíudælingu úr skipinu
-
Ólafur Bjarki: Kláruðum færin í seinni hálfleik
-
Dikta fer yfir strikið




































