Friðlýsing Gjástykkis undirbúin

Háhitasvæðin í nágrenni Mývatns eru Þeistareykir, Gjástykki, Krafla og Bjarnarflag. stækka

Háhitasvæðin í nágrenni Mývatns eru Þeistareykir, Gjástykki, Krafla og Bjarnarflag. mbl.is/Rax

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, lagði til á ríkisstjórnarfundi í morgun að hafinn verði undirbúningur að friðlýsingu Gjástykkis. Svandís óskað eftir áliti Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar á tillögum Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi um friðlýsingu Gjástykkis í september í fyrra.

Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi, SUNN, vilja að Gjástykki í Þingeyjarsýslu verði verndað fyrir hvers konar raski. SUNN lýsa andstöðu við rannsóknarboranir í Gjástykki sem nú eru í matsferli vegna umhverfisáhrifa.

Í áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum af rannsóknarborunum í Gjástykki í Þingeyjarsveit frá því í febrúar kemur fram að Skipulagsstofnun telur jarðfræðilega sérstæðni Gjástykkissvæðisins á landsvísu og heimsvísu óumdeilanlega og verndar- og fræðslugildi þess hátt.

Stutt er frá því að eldsumbrot voru á svæðinu og ummerki um gliðnun jarðskorpufleka eru óvenju skýr. Svæðið nýtur verndar skv. 37. gr. náttúruverndarlaga um eldhraun og Umhverfisstofnun hefur gert tillögu um friðlýsingu svæðis sem nær m.a. til fyrirhugaðs framkvæmdasvæðis.

Þá kemur fram í skýrslu Náttúrufræðistofnunar Íslands um mat á verndargildi háhitasvæða, sem unnin var í tengslum við Rammaáætlun 2, að Gjástykki sé eitt þeirra 9 svæða af alls 39 háhitasvæðum sem metin voru af stofnuninni sem að ætti að njóta hámarksverndar vegna sérstöðu sinnar.

Fyrirhugaðar framkvæmdir við rannsóknaboranir koma til með að hafa nokkuð neikvæð og varanleg áhrif á hraun frá Kröflueldum á afmörkuðu svæði þar sem borkjallari verður fleygaður niður í hraunið á borteig.

Á framkvæmdatíma verða nokkuð neikvæð áhrif á svæðið sem hluta af svæði sem skilgreina má sem víðerni. Þá verða sjónræn áhrif fyrirhugaðra framkvæmda nokkuð neikvæð fyrir þá ferðamenn sem sækja inn á svæðið til útivistar, auk þess sem hávaði mun berast frá holum í blæstri. Ofangreind áhrif verða fyrst og fremst bundin við þann tíma sem verið er að bora 1 til 3 holur og láta þær blása. Að öðru leyti er ljóst að framkvæmdasvæðið er ekki umfangsmikið og ásýndarbreytingar vegna borteigs ná einkum til svæðis í næsta nágrenni hans.

Skipulagsstofnun telur að fyrirhugaðar framkvæmdir muni þannig tímabundið rýra verndargildi svæðisins en ekki framtíðargildi þess. Skipulagsstofnun telur að allar forsendur eigi að vera til þess að hægt verði að afmá ummerki fyrirhugaðra rannsóknaborana.

Stofnunin leggur því áherslu á að niðurstaða stofnunarinnar um áhrif á verndargildi og jarðmyndanir, sjónræn áhrif og áhrif á útivist og ferðaþjónustu byggir á því að vel takist til með að fjarlægja ummerki um borteiginn. Á það við hvort sem borteigur verður fjarlægður með því að moka mölinni í burtu ásamt megninu af sandi í undirlagi eða komið verði fyrir jarðvegsdúk undir malarpúða borteigsins sem síðan yrði flett ofan af.

Skipulagsstofnun vill leggja áherslu á að í þessu máli er verið að meta umhverfisáhrif af rannsóknaholum á einum skilgreindum borteig á Gjástykkissvæðinu en ekki af hugsanlegri orkunýtingu á svæðinu með tilheyrandi mannvirkjum, þó að fjallað sé um framtíðarnýtingu og henni lýst í kafla 3 í þessu áliti. Ljóst er að neikvæð áhrif virkjunar á svæðinu yrðu allt annars eðlis og mun neikvæðari á marga umhverfisþætti en fyrirhugaðra framkvæmda vegna rannsóknaborana.

Skipulagsstofnun tekur að öðru leyti ekki afstöðu til áhrifa af slíkum framkvæmdum enda munu þær fara í ferli mats á umhverfisáhrifum ef til þeirra kemur, samkvæmt áliti Skipulagsstofunar.

Sjá nánar hér

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Eldsneytisskattar á meðal heimilisbíl hækkað um 58%

10:34 Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spyr á Facebook-síðu sinni í dag hvort ekki sé tímabært að lækka skattbyrði á eldsneyti og kemur með reikningsdæmi af heimilisbifreið sem ekið er 20 þúsund kílómetra á ári. Meira »
Frá Eþíópíu

174 milljónir í neyðaraðstoð

10:24 Á fjárlögum 2012 er gert ráð fyrir 174 milljón króna framlagi til neyðar- og mannúðaraðstoðar og þróunarsamvinnuverkefna á vegum frjálsra félagasamtaka sem úthlutað er tvisvar á ári, vor og haust. Meira »

Vörður tryggir fasteignir ríkisins

Frá undirritun samningsins. Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar, Atli Örn Jónsson, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs ...
09:53 Tryggingafélagið Vörður gekk nýverið frá samningi við ríkið um brunatryggingar vegna allra fasteigna þess samkvæmt fréttatilkynningu frá fyrirtækinu en fasteignir ríkisins eru tæplega 1200 talsins. Meira »

Stefán Snær: 100 ára íþróttasaga

Stefán Snær Konráðsson
09:22 „Það var stór dagur, ekki aðeins í íslenskri íþróttasögu heldur í Íslandssögunni allri, þegar framsýnir menn ákváðu að stofna Íþróttasamband Íslands 28. janúar árið 1912," segir Stefán Snær Konráðsson í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Komið í veg fyrir eðlilega meðferð

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fremst ásamt Ragnheiði Elínu Árnadóttur og Bjarna Benediktssyni samflokksmönnum sínum.
08:41 „Enn og aftur er verið að snúa hlutum á hvolf. Hugmyndin var að rammaáætlun kæmi til Alþingis beint frá undirbúningsnefnd sérfræðinga. Nú ætlar ríkisstjórnin að reyna að koma í veg fyrir að Alþingi meðhöndli málið með eðlilegum vinnubrögðum þingmála,“ segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Meira »

Enginn var í bílnum

Frá Vífilsstaðavatni í morgun.
09:32 Enginn var í bílnum, sem fannst í Vífilsstaðavatni um níu leytið í morgun. Lögregla og slökkvilið leita nú af sér allan grun í vatninu og umhverfis það. Meira »

Bíll á kafi í Vífilsstaðavatni

Frá Vífilsstaðavatni í morgun
09:05 Kafarar voru sendir að Vífilsstaðavatni um klukkan níu í morgun, en vegfarandi tilkynnti um bíl í vatninu. Ekki er vitað hvort einhver er inni í bílnum. Meira »

Stærstur hluti tekna af samkeppnismarkaði

08:04 „Íslandspóstur fagnar umræðunni en segist ekki mynda sér skoðun á málinu þar sem einkarétturinn liggi hjá ríkinu en Íslandspóstur framfylgi eingöngu lögum um póstdreifingu,“ segir í fréttatilkynningu frá Íslandspósti vegna umræðu um hvort afnema eigi einkarétt ríkisins á póstdreifingu bréfa að 50 grömmum. Meira »

Vegir víðast hvar auðir

07:49 Vegir eru víðast hvar auðir á Suðurlandi, Vesturlandi og Austurlandi samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni en hálkublettir eru hins vegar á nokkrum fáfarnari leiðum. Meira »

28% vilja Vaðlaheiðargöng

Vaðlaheiðargöng.
06:56 Um 28 prósent landsmanna vilja að ráðist verði í gerð Vaðlaheiðarganga í ríkistryggðri einkaframkvæmd en 47 prósent eru því andvíg, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Meira »

Sveiflukenndur skíðavetur

Þótt meira hafi snjóað í ár en oft áður skilar það sér ekki í fleiri ...
07:30 Skíðaveturinn hefur ýmist verið skelfilegur eða frábær hjá skíðasvæðum landsins. Í Hlíðarfjalli hafa síðustu helgar verið góðar með fallegu veðri og fjölda fólks að sögn Hólmfríðar Söru Friðjónsdóttur, verkstjóra innanhússtarfsmanna skíðasvæðisins. Meira »

Skilaboðin ekki gefin upp

Sprengjusérfræðingur skoðar kassa sem tengist sprengjunni.
06:30 Lögreglan gefur ekki upp hvaða skilaboðum reynt var að koma á framfæri með sprengingu á Hverfisgötu í lok janúar.  Meira »

Reyndu að stela blöndunartækjum og hurðum

06:06 Þrír menn voru teknir höndum af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um klukkan tvö í nótt í nýbyggingu við Boðaþing í Kópavogi. Voru þeir búnir að losa blöndunartæki, rafmagnsrofa og hurðir þegar lögreglumenn komu á vettvang og var eitthvað af þýfinu þegar komið út í bifreið sem þeir voru með skammt undan. Meira »

Staðið í strætó

Staðið í strætó.
05:30 „Ég persónulega kæri mig ekki um að drengurinn minn standi í strætó á milli byggðarlaga og borgi svo fullt fargjald fyrir,“ segir Halldór Guðmundsson, leigubifreiðarstjóri. Meira »

Hætt sem mönnuð veðurathugunarstöð

Frá Hrauni á Skaga
05:30 Samkvæmt heimildum frá Veðurstofu Íslands var veðurathugunum á Hrauni á Skaga hætt nú um áramótin. Veðurathugun hefur verið þar allt frá árinu 1952 og út árið 2011. Meira »

Þurfa að vinna nær arnarhreiðrum

Unnið að vegagerð á Melanesi við Vestfjarðaveg nr. 60, skammt austan Skálaness.
05:30 Vegagerðin mun sækja um undanþágu til að geta unnið að vegagerð á Vestfjarðavegi á varptíma arnarins næstu þrjú til fjögur ár. Meira »

Fimm segja skilið við Y-lista

Í Kópavogi.
05:30 Fimm konur hyggjast segja sig formlega úr Y-lista Kópavogsbúa á fundi sem haldinn verður í dag, að sögn Ásdísar Ólafsdóttur, eins af stofnendum framboðsins. Meira »

Dreifa peningum í samfélaginu

Í Húnaþingi.
05:30 Íbúar Húnaþings vestra njóta þess með ýmsum hætti að Landsbankinn hefur fellt niður lán sem sveitarfélagið tók vegna kaupa á stofnfé í sparisjóði sínum fyrir hrun. Peningar eru nú veittir til þarfra verkefna. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Atvinnu/lagerhúsnæði með mikla möguleika
Um er að ræða 83fm hús með stórum innkeyrsludyrum að Eyrartröð 3 í hafnafirði. ...
Vantar þig Iðnaðarmann?
Vantar þig sólpall, skipta um gler eða glugga, lekur húsið? nýsmíði og viðhald h...
Bókhald-Vsk.uppgjör-Launavinnsla-Ársreikningar
Get bætt við mig verkefnum. Færsla á bókhaldi, vsk-uppgjör, launavinnslur, ársr...
SUBARU FORESTER
Til sölu Subaru Forester 1/08 "17 felgur og heilsárdekk e.35þ skoðaður 13 topp...
 
Afgreiðslustarf
Afgreiðsla/verslun
Traustur starfskraftur með góða þjónustu...
Sýslumaðurinn á akranesi - bifreiðauppboð

Uppboð Eftirtaldar bifreiðir verða boðna...
Efni í skolpútrás

Vestmannaeyjabær Útboð Efni í skolp...
Aðalfundur félags sjálfstæðismanna í bakka- og stekkjahverfi
Fundir - mannfagnaðir
Aðalfundur Félags sjálfstæðismanna ...