Íslendingar þurfa að vinna heimavinnuna sína
Stigi í húsi Evrópuþingsins í Strassborg. mbl.is/GSH
Þingmenn austurríska þjóðarflokksins (ÖVP) og austurríska sósíaldemókrataflokksins (SPÖ) voru gagnrýnir í umræðum á Evrópuþinginu í Strassborg í dag um væntanlegar aðildarviðræður Íslands og við Evrópusambandið, segir í frétt frá austurrísku fréttastofunni APA.
Varaformaður þingflokks sósíaldemókrata á þinginu, Hannes Swoboda mælti reyndar með því að viðræður yrðu hafnar, en bætti við að „kæmi í ljós að íslenska þjóðin eftir hálft ár“ hefði engu breytt yrði hægt að „slíta viðræðunum og bíða betri tíma“.
Ernst Strasser, formaður þingflokks ÖVP, sagði að vildu „Íslendingar koma til Evrópu væru þeir hjartanlega velkomnir. En þeir verða fyrst að vinna heimaverkefnin sín“. Það takist ekki með því að skrifa „jólabarninu bréf“, Evrópusambandið væri ekki í því að deila út gjöfum. Ísland eigi sinn þátt í efnahagskreppunni og verði að sjá til þess að hreinsað verði til.
Swoboda var mildaðist þegar kom að byrðum íslenskra borgara. Ekki ætti að tengja atkvæðagreiðsluna um Icesave-samningana við Breta og Hollendinga aðildarviðræðum við ESB. Swoboda lýsti hins vegar yfir áhyggjum vegna fremur neikvæðrar afstöðu Íslendinga til ESB. Ef stemmingin á Íslandi breyttist ekki væri um tvennt að ræða, annað hvort héldu Íslendingar þjóðaratkvæði um hvort yfirhöfuð ætti að semja við Evrópusambandið eða viðræðum yrði hætt. Hvað höfnun Icesave-samkomulagsins varðaði sagði Swoboda að ekki væri hægt að gera íslensku þjóðina eina ábyrga. Nýtt Icesave-samkomulag gæti falið í sér léttari byrðar fyrir Íslendinga, en ESB ætti ekki að blanda sér í það.
Austurrískir græningjar á Evrópuþinginu lýstu yfir áhyggjum af vaxandi tortryggni meðal Íslendinga og sögðu að það gæti verið hindrun í aðildarviðræðum. Ulrike Lunacek sagði að ekki mætti fara að eins og með Noreg þar sem Evrópusambandið vildi fá Norðmenn inn, en síðan var aðild hafnað í tvígang. Hún gengi þó út frá því að á leiðtogafundi ESB í þessum mánuði yrði ákveðið að hefja viðræður. Lunacek tók sama pól í hæðina og Swoboda varðandi Icesave og kvaðst sýna íslensku þjóðinni skilning. Þegar þriggja prósenta vextir tíðkuðust í Evrópu og Íslendingum væru boðnir miklu hærri vextir væri hægt að tala um „ákveðna samábyrgð“ Breta og Hollendinga, sem borið hafi ábyrgð á þessu vafasama tilboði.
Bloggað um fréttina
-
Haukur Brynjólfsson ESB með allt á þurru ? -
Kolbrún Hilmars Taki nú til sín sem eiga! -
Páll Höskuldsson Við eigum að krefjast þess..... -
Gunnar Th. Gunnarsson Eigum við að borga... yfir höfuð? -
Axel Jóhann Axelsson Gott ráð til Samfylkingarinnar -
Andrés Kristjánsson Thank you but no.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 4. febrúar 2010, Innlent Aðildarviðræður taki 1-2 ár
- Miðvikudagur, 10. mars 2010, Innlent Vilja aðildarviðræður þrátt fyrir Icesave
- Mánudagur, 8. mars 2010, Innlent Áhyggjur af áhugaleysi Íslendinga
- Fimmtudagur, 26. nóvember 2009, Innlent Skora á Alþingi að samþykkja Icesave
- Sunnudagur, 26. júlí 2009, Innlent Vill fresta umsóknarferli ESB
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































