Fréttaskýring: „Mikill hasar á markaðnum“
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Svo virðist sem samkeppni hafi aukist á eldsneytismarkaðnum eftir því sem sjálfsafgreiðslustöðvum fer fjölgandi. Nærliggjandi stöðvar bregðast þá við og lækka hjá sér verðið.
Að Atlantsolíu undanskildri eru hinar sjálfsafgreiðslustöðvarnar í eigu tveggja af stóru olíufélögunum. Orkan er í eigu Skeljungs og ÓB í eigu Olís og N1 hefur þá brugðist við með lækkun ef þeirra stöð er nálægt sjálfsafgreiðslustöðvum keppinautanna. Dæmi um þetta er við Byko í Breidd. Þar er nú þrjár stöðvar á nánast sama blettinum; N1, Orkan og nú síðast Atlantsolía sem opnaði nýja stöð um síðustu helgi.
Þetta er einnig að gerast á landsbyggðinni. Þannig opnaði Orkan nýverið stöð á Sauðárkróki og þá brugðust N1 og Olís þar á bæ við með verðlækkun. Á vefnum bensinverd.is sést þetta glöggt, þar sem fylgst er með eldsneytisverði um allt land. Þar sem sjálfsafgreiðslustöðvar eru nýlega komnar upp, þar hafa keppinautarnir brugðist við. Spurningin er bara hver heldur þetta lengst út því heimsmarkaðsverð hefur farið hækkandi og gengið verið óhagstætt.
Af sem áður var
Aukin samkeppni hefur að ýmsu leyti komið til af þeirri breyttu neysluhegðun að um 90% bíleigenda dæla á tankinn hjá sér sjálfir. Einnig vegur þungt að bílaumferð hefur minnkað í kreppunni og bensínsala dregist saman. „Það er af sem áður var,“ myndi einhver segja, þegar „bensíntittirnir“ sáu um þetta fyrir fólk og verðið var nær alls staðar það sama. Kreppan hefur sömuleiðis haft í för með sér aukna verðvitund meðal neytenda, þar sem þeir í meira mæli en áður leita sér hagstæðustu tilboðanna hverju sinni.Dæmi eru um að verði sé breytt oft á dag en Orkan hefur t.d. sett sér það markmið að bjóða ódýrasta verðið hverju sinni á sínu svæði. Hefur ÓB þá fylgt fast á eftir í mörgum tilvikum og Atlantsolía ekki skammt undan. Þá eru fjölmargir viðskiptavinir olíufélaganna komnir með vildarkjör af ýmsum toga sem veita þeim afslátt af uppgefnu verði. Getur sá afsláttur numið allt að 5-6 krónum hjá einstaklingum en fyrirtæki og atvinnubílstjórar njóta betri kjara í mörgum tilvikum.
Hélt áfram að lækka í gær
Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær getur verið allt að 9% verðmunur á eldsneyti í landinu, allt eftir því hvar það er keypt eða með hvaða hætti, þ.e. hvort bíleigendur láta dæla á tankinn fyrir sig eða gera það sjálfir og með mismunandi vildarkjörum.Lægsta bensínverð á landinu er á Vestfjörðum en sjálfsafgreiðslustöðvar Orkunnar og ÓB eru bæði á Ísafirði og Bolungarvík, auk þess sem Orkan er einnig á Súðavík. Á Ísafirði hefur N1 brugðist við þessu með því að bjóða sama eða svipað verð og hinir, 192 krónur, á meðan algengasta verð N1 annars staðar á landinu er rúmar 204 krónur, eða um 6% hærra. Verðið á Ísafirði og í Bolungarvík hélt svo áfram að lækka í gær, þegar Orkan bauð bensínlítrann á 191,30 kr. og ÓB fylgdi á eftir með 191,40 kr.
Magnús Ásgeirsson, forstöðumaður eldsneytisinnkaupa hjá N1, segir eldsneytisverð taka stöðugum breytingum hjá félaginu, bæði eftir stað og tíma. Það sé í sjálfu sér ekki nýtt að mikill verðmunur sé á milli olíufélaganna og innan hvers félags á mismunandi stöðum um landið.
„Þá förum við alltaf undir“
Guðmundur Gíslason, framkvæmdastjóri neytendasviðs hjá Orkunni, segir engan vafa leika á því að samkeppnin hafi harðnað. Skeljungur hafi brugðist við með því að breyta Shell-stöðvum yfir í Orkuna víða um land. Þannig var Orkan með 25 stöðvar um síðustu áramót en síðan þá hafa bæst við átta, allt fyrrum Shell-stöðvar.„Það er mikill hasar á markaðnum og samkeppnin mikil. Við setjum okkur það markmið að vera alltaf ódýrastir á því svæði sem við störfum á. Sé til dæmis ÓB nálægt okkur þá förum við alltaf undir þá. Þessi hluti markaðarins er stöðugt að breytast,“ segir Guðmundur en Orkan líkt og önnur félög er með sérstaka starfsmenn í því að vakta verð keppinautanna og bregðast þá við ef ástæða þykir til.





































