Fá ekki að leiða vitni einslega fyrir dómara

stækka

mbl.is

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að fréttastjóri og fréttamaður Stöðvar 2 fái ekki að leiða vitni fyrir dóm til að gefa skýrslu einslega fyrir dómara og  án þess að nafn vitnisins yrði tilgreint í dómi eða gefið upp öðrum en dómara og votti. 

Um er að ræða heimildarmann frétta, sem Stöð 2 flutti í vetur um fjármagnsflutninga Björgólfs Thors Björgólfssonar, Björgólfs Guðmundssonar og Magnúsar Þorsteinssonar en þeir hafa allir höfðað meiðyrðamál gegn  Gunnari Erni Jónssyni, fréttamanni, og Óskari Hrafni Þorvaldssyni, fréttastjóra, vegna fréttanna.

Fram kemur í dómi Hæstaréttar, að fréttamennirnir beri því við, að fréttirnar séu réttar og styðjist við frásögn heimildarmanns, en sem fréttamenn megi þeir hvorki nafngreina hann né vilji þeir gera það. Því vilji þeir fá að leiða þennan heimildarmann fyrir dóm til skýrslugjafar án þess að fram komi hver hann er.

Hæstiréttur segir, að þótt lög geri ráð fyrir að nafnleyndar verði í undantekningartilvikum gætt um vitni, sem kemur fyrir dóm, sé sú heimild háð því, að dómari fallist á að lífi, heilbrigði eða frelsi vitnisins eða náins vandamanns þess yrði stefnt í hættu ef það yrði gert uppskátt hvert vitnið sé. „Því hefur ekki verið borið við í málinu að atvik séu hér með þeim hætti," segir Hæstiréttur, sem hafnar kröfu fréttamannanna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Slímseta á óvenju háu stigi

11:01 „Ríkisstjórnin þorir ekki að deyja. Þess vegna er hún þarna á sínum pólitíska grafarbakka og vonast til að tolla þar eitthvað áfram,“ segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á heimasíðu sinni í dag Meira »
Rauðar rósir eru eftirsóttar um þessar mundir.

Blómleg tíð hjá blómabændum

10:58 „Þetta er frekar mikill annatími hjá blómabændum,“ segir Sveinn A. Sædal, formaður Sambands garðyrkjubænda, en tveir miklir blómasöludagar eru á næstu grösum; Valentínusardagurinn á morgun og konudagurinn næstkomandi sunnudag. Meira »

Með fangið fullt af folaldalundum

Bónus
11:06 Lögreglan á Selfossi var kölluð út að Bónus á Selfossi síðdegis á laugardag þar sem karlmaður hafði farið út úr versluninni með fangið fullt af folaldalundum sem hann hafði ekki greitt fyrir. Meira »

Eldsneytisskattar hækkað um 58% á ári

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
10:34 Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spyr á Facebook-síðu sinni í dag hvort ekki sé tímabært að lækka skattbyrði á eldsneyti og kemur með reikningsdæmi af heimilisbifreið sem ekið er 20 þúsund kílómetra á ári. Meira »

Vörður tryggir fasteignir ríkisins

Frá undirritun samningsins. Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar, Atli Örn Jónsson, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs ...
09:53 Tryggingafélagið Vörður gekk nýverið frá samningi við ríkið um brunatryggingar vegna allra fasteigna þess samkvæmt fréttatilkynningu frá fyrirtækinu en fasteignir ríkisins eru tæplega 1200 talsins. Meira »

Skattheimta hækkar bensínverð

10:46 „Eldsneytisverð er orðið allt of hátt og venjulegt fólk þarf bráðum að leggja bílnum ef ekki verður eitthvað gert til að lækka verðið,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Meira »

174 milljónir í neyðaraðstoð

Frá Eþíópíu
10:24 Á fjárlögum 2012 er gert ráð fyrir 174 milljón króna framlagi til neyðar- og mannúðaraðstoðar og þróunarsamvinnuverkefna á vegum frjálsra félagasamtaka sem úthlutað er tvisvar á ári, vor og haust. Meira »

Enginn var í bílnum

Frá Vífilsstaðavatni í morgun.
09:32 Enginn var í bílnum sem fannst í Vífilsstaðavatni um níuleytið í morgun. Lögregla og slökkvilið leita nú af sér allan grun í vatninu og umhverfis það. Meira »

Stefán Snær: 100 ára íþróttasaga

Stefán Snær Konráðsson
09:22 „Það var stór dagur, ekki aðeins í íslenskri íþróttasögu heldur í Íslandssögunni allri, þegar framsýnir menn ákváðu að stofna Íþróttasamband Íslands 28. janúar árið 1912," segir Stefán Snær Konráðsson í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Komið í veg fyrir eðlilega meðferð

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fremst ásamt Ragnheiði Elínu Árnadóttur og Bjarna Benediktssyni samflokksmönnum sínum.
08:41 „Enn og aftur er verið að snúa hlutum á hvolf. Hugmyndin var að rammaáætlun kæmi til Alþingis beint frá undirbúningsnefnd sérfræðinga. Nú ætlar ríkisstjórnin að reyna að koma í veg fyrir að Alþingi meðhöndli málið með eðlilegum vinnubrögðum þingmála,“ segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Meira »

Bíll á kafi í Vífilsstaðavatni

Frá Vífilsstaðavatni í morgun
09:05 Kafarar voru sendir að Vífilsstaðavatni um klukkan níu í morgun, en vegfarandi tilkynnti um bíl í vatninu. Ekki er vitað hvort einhver er inni í bílnum. Meira »

Stærstur hluti tekna af samkeppnismarkaði

08:04 „Íslandspóstur fagnar umræðunni en segist ekki mynda sér skoðun á málinu þar sem einkarétturinn liggi hjá ríkinu en Íslandspóstur framfylgi eingöngu lögum um póstdreifingu,“ segir í fréttatilkynningu frá Íslandspósti vegna umræðu um hvort afnema eigi einkarétt ríkisins á póstdreifingu bréfa að 50 grömmum. Meira »

Vegir víðast hvar auðir

07:49 Vegir eru víðast hvar auðir á Suðurlandi, Vesturlandi og Austurlandi samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni en hálkublettir eru hins vegar á nokkrum fáfarnari leiðum. Meira »

28% vilja Vaðlaheiðargöng

Vaðlaheiðargöng.
06:56 Um 28 prósent landsmanna vilja að ráðist verði í gerð Vaðlaheiðarganga í ríkistryggðri einkaframkvæmd en 47 prósent eru því andvíg, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Meira »

Reyndu að stela blöndunartækjum og hurðum

06:06 Þrír menn voru teknir höndum af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um klukkan tvö í nótt í nýbyggingu við Boðaþing í Kópavogi. Voru þeir búnir að losa blöndunartæki, rafmagnsrofa og hurðir þegar lögreglumenn komu á vettvang og var eitthvað af þýfinu þegar komið út í bifreið sem þeir voru með skammt undan. Meira »

Sveiflukenndur skíðavetur

Þótt meira hafi snjóað í ár en oft áður skilar það sér ekki í fleiri ...
07:30 Skíðaveturinn hefur ýmist verið skelfilegur eða frábær hjá skíðasvæðum landsins. Í Hlíðarfjalli hafa síðustu helgar verið góðar með fallegu veðri og fjölda fólks að sögn Hólmfríðar Söru Friðjónsdóttur, verkstjóra innanhússtarfsmanna skíðasvæðisins. Meira »

Skilaboðin ekki gefin upp

Sprengjusérfræðingur skoðar kassa sem tengist sprengjunni.
06:30 Lögreglan gefur ekki upp hvaða skilaboðum reynt var að koma á framfæri með sprengingu á Hverfisgötu í lok janúar.  Meira »

Þurfa að vinna nær arnarhreiðrum

Unnið að vegagerð á Melanesi við Vestfjarðaveg nr. 60, skammt austan Skálaness.
05:30 Vegagerðin mun sækja um undanþágu til að geta unnið að vegagerð á Vestfjarðavegi á varptíma arnarins næstu þrjú til fjögur ár. Meira »

Innlend málefni

Finnur.is
Sendibíll www.keyrsla.is
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Fyrirtækjaþjónusta. Öll almenn sendibílaþjón...
Nuddbekkir : Breiðir fyrir fólk af stærri gerðinni sem og ófrískar.
Nuddbekkur- Sterkur-Fallegur-Endingagóður. 1.92*81cm Tilboð 67.000. Allt á mynd ...
Skýjaluktir / Himnaljós
Erum með skýjaluktir í mörgum litum á góðu verði, eða aðeins kr 690. pr stk. Net...
Húsbíll til sölu. Peugeot 290 dísel 2500cc ár 1991 ekinn 236.þús
Einstaklega vel með farinn húsbíll fluttur inn notaður ár 2000. Hjónarúm, ný T...
 
Aðalfundur félags eldri borgara

Aðalfundur Aðalfundur Félags eldri b...
Patreksfjörður rafmagn - útboð

Útboð Vesturbyggð Patreksfjörður â...
12755 klapparstígur útboð

ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Leikskólastjóri
Leikskólakennsla
Leikskólastjóri Seyðisfjarðarkaups...