Fær bætur vegna synjunar um skólavist

mbl.is/Ómar

Hæstiréttur hefur dæmt að maður, sem ekki fékk skólavist í Lögregluskólanum vegna þess að hann hafi verið of gamall, eigi rétt á bótum vegna þess að valnefnd skólans hefði ekki gætt jafnræðis þegar hún gerði upp á milli mannsins og annars umsækjanda, sem einnig var of gamall en fékk undanþága.

Maðurinn, Davor Davíð Purušić, sótti um skólavist árið 2005 þegar hann var 39 ára. Davor er íslenskur ríkisborgari og fluttist til Íslands árið 1993 frá Bosníu. Þar hafði hann starfað sem lögreglumaður en hann slasaðist í átökum sem  urðu þegar serbneski herinn réðst inn í Bosníu. 

Davor sótti um að fá að þreyta inntökupróf í Lögregluskóla ríkisins vorið 2005, en var hafnað þar sem hann fullnægði ekki almennu skilyrði um hámarksaldur, sem þá var 35 ár. Með úrskurði dóms- og kirkjumálaráðuneytisins árið 2007 var komist að þeirri niðurstöðu að valnefnd hefði ekki gætt jafnræðis er hún með ólögmætum hætti hefði gert upp á milli Davors og annars umsækjanda við veitingu undanþágu frá þessu skilyrði.

Davor höfðaði skaðabótamál á hendur ríkinu og taldi bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og Hæstiréttur að ríkið væri bótaskylt. Skilyrðum um hámarksaldur var breytt og átti Davor þess því kost að sækja um skólavist ári síðar en gerði það ekki heldur hóf nám í viðskiptalögfræði við háskólann á Bifröst og stundar nú meistaranám þar.

Héraðsdómur dæmdi ríkið til að greiða Davor 2,3 milljónir króna í bætur en Hæstiréttur segir að ólögmæt synjun valnefndar á umsókn hans hefði hvað sem öðru liði ekki geta orðið þess valdandi að það drægist meira en eitt ár að hann gæti hafið störf innan lögreglunnar.

Segir Hæstiréttur, að þegar litið sé til þess hversu lítill munur sé á mánaðartekjum í því starfi sem Davor gegndi og þeim störfum sem hann hugsanlega hefði átt kost á innan lögreglunnar á því ári sem um ræddi, hefði honum ekki tekist að sýna fram á að hann hefði orðið fyrir fjártjóni vegna synjunarinnar. Hins vegar taldi Hæstiréttur að Davor ætti rétt á 300.000 króna miskabótum. 
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »
Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.

Ákærður fyrir að stinga mann

14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Plexiform Dugguvogi 11 104 simi 5553344
Póstkassar reyklitaðir, hvítir, svartir og trékassar. Bæklingavasar á borð og á ...
Ford Focus, '99 árgerð til sölu
Tilboð óskast í Ford Focus, '99 árgerð, beinskiptur, 5 dyra, sparneytinn, ekinn ...
Mercedes Benz 500 SE árg 1990
Til sölu góður og vel með farinn Mercedes Benz 500 SE árg 1990 ekinn 239.000 Bíl...
Fellihýsi, tjaldvagnar, hjólhýsi, pallhýsi, húsbílar ...
Fellihýsi, tjaldvagnar, hjólhýsi, pallhýsi, húsbílar, eldhús á hjólum, Hobby hús...
 
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...
Einstakt atvinnutækifæri
Til sölu
Einstakt atvinnutækifær...