Kynna Hörpu sem ráðstefnuhús
Í dag boðuðu aðstandendur Ráðstefnuskrifstofu
Íslands og Portusar ehf. fulltrúa 300 stærstu fyrirtækja landsins og
ýmissa fagaðila til samkomu í nýbyggingu nýja tónlistar- og ráðstefnuhússins
Hörpu við Reykjavíkurhöfn til að kynna þeim möguleika sem Harpa skapar til
alþjóðlegs ráðstefnuhalds hérlendis. Í tilkynningu segir að með með samkomunni sé
blásið til stórsóknar í þágu ráðstefnuhússins á alþjóðlegum ráðstefnumarkaði.
„Gestir okkar í Hörpu nú er
fólk sem hefur áhrif og sambönd í heimi fagfélaga og viðskiptalífs. Við hvetjum
það til að hjálpa okkur til að koma Íslandi og Hörpu á framfæri erlendis sem
áhugaverðum ráðstefnustað. Meirihluti alþjóðlegra fagfélaga óskar eftir
uppástungum um fundarstaði frá tengiliðum sínum í viðkomandi landi. Þess vegna viljum
við koma á góðum samskiptum við þessa „sendiherra“ okkar og kynna það sem
stendur til boða þeim sem velta fyrir sér Reykjavík sem ráðstefnuvettvangi,“
segir Anna R. Valdimarsdóttir, verkefnastjóri Ráðstefnuskrifstofunnar.
Segir eftir miklu að slægjast
Verkefnastjórinn segir að vaxandi áhugi sé fyrir ráðstefnuhaldi í Hörpu erlendis. Reynslan sýnir að ráðstefnum og fundum fjölgar þegar stórar ráðstefnumiðstöðvar eru teknar í gagnið. Markaðurinn taki án efa fljótt við sér vænta megi að minnsta kosti tíu 1.000 manna alþjóðlegar ráðstefnur á Íslandi árlega. Eftir miklu sé að slægjast þar sem tíu, 1.000 manna ráðstefnur skili til dæmis um 260 milljónum króna í virðisaukaskatti, eingöngu af ráðstefnugjöldum og hótelkostnaði. Því til viðbótar fylgi tekjur af flugvallasköttum og af virðisaukaskatti vegna almennrar eyðslu ráðstefnugesta sem hingað koma.“
Kristín Heimisdóttir, formaður Tannréttingafélags Íslands, ávarpaði gesti í Hörpu í dag í tilefni af því að ein þeirra ráðstefna, sem þegar er búið að bóka í Hörpu, er Evrópuþing tannréttingasérfræðinga árið 2013. Hún sagði mikinn áhuga hafa verið fyrir því að halda ráðstefnuna hér þrátt fyrir fyrir efnahagshrun og efasemdaraddir íslensku fulltrúanna í Evrópusamtökum tannréttingasérfræðinga. „Þinghaldinu fylgir engin fjárhagsleg áhætta fyrir okkur en hins vegar þurfum við á mörgum fagaðilum að halda, svo sem listamönnum, matreiðslumönnum og tæknifólki. Hingað koma um 2.000 manns og dvelja í vikutíma á hótelum, borða á veitingastöðum og skilja eftir gjaldeyri sem íslensk þjóð þarf svo sannarlega á að halda.“Hún sagði nauðsynlegt að „styðja ferðamennsku sem skilar okkur sem mestum tekjum með sem minnstu álagi á okkar viðkvæma land. Til þess þarf góða ráðstefnuaðstöðu og ég vil nota tækifærið til að senda þeim baráttukveðjur sem stutt hafa byggingu Hörpu og þakka þeim fyrir að þora að horfa fram á veginn. Slíkt er því miður alltof sjaldgæft á Íslandi í dag.“
„Harpa
verður tekin í gagnið í maí 2011. Húsið
mun gjörbreyta öllum forsendum til ráðstefnuhalds á Íslandi enda
aðstæður til
slíkrar starfsemi með þeim glæsilegustu sem þekkjast,“ segir Pétur J.
Eiríksson, stjórnarformaður Portusar, eignarhaldsfélags Hörpu.





































