Leysir engann vanda að setja lög á okkur

Flugumferðastjórar hafa aflýst verkfalli. stækka

Flugumferðastjórar hafa aflýst verkfalli. Kristinn Ingvarsson

„Við erum vægast sagt mjög óhressir,“ segir Ottó Garðar Eiríksson, formaður Félags íslenskra flugumferðastjóra. Flugumferðastjórar aflýstu nú í kvöld verkfalli sem boðað hafði verið til í fyrramálið og á mánudag þegar lagasetning á verkfallið vofði yfir. „Það er með ólíkindum að svona inngrip skuli koma til hjá yfirvöldum. Það leysir engan vanda að setja lög á okkur.“

Sagði hann flugumferðastjóra nú verða að treysta því að það þokist í samningsátt á næstu dögum. „Annars koma lögin bara inn á næsta verkfall.“ Flugumferðastjórar ætli ekki að svo stöddu ekki að grípa til neinna annarra aðgerða en deilan haldi áfram.

Lítið hafði þokast í samningsátt í kjaradeilu flugumferðastjóra og ríkisins hjá sáttasemjara er fundi var slitið um kl. 17 síðdegis. „Þeir höfðu gert lítið til að koma til móts við okkur,“ segir Ottó.

Trúnaðarráð flugumferðastjóra mun hittast í kvöld, en ekki er búið að boða til nýs fundar hjá ríkissáttasemjara. Í tilkynningu frá Félagi íslenskra flugumferðarstjóra segir, að verkföllunum hafi verið aflýst í ljósi fyrirheits ríkisstjórnarinnar um að viðræður um nýjan kjarasamning flugumferðarstjóra verði teknar upp að nýju þegar í stað og að samningaborðinu komi þá menn sem hafi óskorað samningsumboð ríkisstjórnarinnar. 

Loftur Jóhannsson, formaður samninganefndar flugumferðarstjóra, lýsti í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld miklum vonbrigðum með ríkisstjórnina, sem hann sagðist hafa bundið miklar vonir við sem stjórn hinna vinnandi stétta. Sagði hann ríkisstjórnina hafa látið undan hvatningu stjórnarandstöðuþingmanns um að fremja mannréttindabrot og vísaði þá til þess, að Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lýsti þeirri skoðun í samtali við mbl.is í gærkvöldi, að setja ætti lög á deiluna.

Sáttafundi í kjaradeilu flugumferðarstjóra var slitið í dag og nýr fundur ekki boðaður. Í kjölfarið kom ríkisstjórnin saman á fundi klukkan 18 og afgreiddi lagafrumvarp um að binda enda á verkfall flugumferðarstjóra. Þingflokkar stjórnarflokkanna komu saman í kjölfarið og hafði þingfundur verið boðaður klukkan 19:30 til að fjalla um frumvarpið. Þeim fundi var aflýst eftir að flugumferðarstjórar aflýstu verkföllunum.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði við Kastljósið að stjórnvöld hefðu ekki talið annað forsvaranlegt en að grípa inn í deiluna í ljósi þess að þarna ætti í hlut fámenn starfsstétt sem væri í lykilstöðu í samfélaginu og verkfall hennar myndi valda miklu tjóni hjá aðilum sem ekki eiga aðild að vinnudeilunni, þar á meðal flugfélögum.

Bæði Illugi Gunnarsson og Gunnar Bragi Sveinsson,, þingflokksformenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, sögðu í Kastljósinu að þeir hefðu stutt lagafrumvarpið sem ríkisstjórnin ætlaði að leggja fram til að stöðva verkfallið. 

 
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.

Skoði betur kaflann um forsetann

13:34 Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar ætlar að senda stjórnlagaráði, sem kemur saman 8. mars, nokkrar spurningar sem hún vill að ráðið ræði. Ein af þeim er varðandi stöðu forseta Íslands. Meira »
Frá Patreksfirði.

Draga hækkun til baka

13:26 Bæjarráð Vesturbyggðar hefur samþykkt að draga til baka hækkun á leikskólagjöldum sem sett var á um áramótin og fella niður innritunargjald í félagsstarfi aldraðra. Meira »

Gagnrýnir skamman fyrirvara

Örn Bárður Jónsson, prestur og fyrrverandi fulltrúi í stjórnlagaráði.
13:18 „Ég gerði mér vonir um að Alþingi færi rækilega yfir þessar tillögur og skrifaði síðan um þær álit. Ég gerði hins vegar alveg eins ráð fyrir því að hópurinn yrði kallaður saman til skrafs og ráðagerða,“ segir Örn Bárður Jónsson, prestur og einn fulltrúa í stjórnlagaráði. Meira »

Segir rangt farið með málsatvik

Jón Baldvin Hannibalsson.
13:11 Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra segir að ekki sé rétt farið með málsatvik í umfjöllun í Nýju lífi þegar því er haldið fram að hann hafi átt samskipti við vændiskonur er hann var í opinberum erindagjörðum í Tallin. Meira »

Afgreiðsla ekki í samræmi við lög

12:27 Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að skilyrði ríkissaksóknara um að tilgreina beri ástæður þess að óskað sé eftir gögnum í máli sem er lokið, eigi sér ekki stoð í lögum. Er þeim tilmælum beint til embættisins að það endurskoði ákvæði þess efnis. Meira »

Klára málið í næstu viku

Valgerður Bjarnadóttir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
13:11 Ef Alþingi vísar máli gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, frá verða gögn sem safnað hefur verið saman vegna málshöfðunarinnar send á Þjóðskjalasafnið til varðveislu. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd reiknar með að afgreiða tillögu um afturköllun málsmeðferðar í næstu viku. Meira »

Börn og unglingar í óhamingjugildru

12:32 Það er ekki nóg að tækifærin séu til, einstaklingurinn þarf að hafa hvata til þess að sjá þá möguleika sem hann hefur á að nýta sér þau,“ segir dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf og formaður stjórnar RBF, Rannsóknarstofnunnar í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands. Meira »

Baðst afsökunar fyrir 12 árum

Jón Baldvin Hannibalsson.
12:17 „Ég hef ekki séð blaðið og veit ekki hvað stendur í því,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra, um umfjöllun í Nýju lífi þar sem systurdóttir eiginkonu hans segir frá bréfum sem hann sendi henni er hún var á unglingsaldri. Meira »

Hundarnir finna dópið strax myndskeið

230212 logguhundar
12:00 Undanfarnar þrjár vikur hafa hundar verið í strangri þjálfun í Lögregluskólanum. MBL Sjónvarp fylgdist með einu lokaprófinu þegar þeir leituðu að fíkniefnum sem komið hafði verið fyrir í æfinga-íbúð skólans. Hundarnir nýtast þó til fleiri verka en niðurskurður hefur verið í hundahaldi lögreglunnar. Meira »

Gerir alvarlegar athugasemdir

Salvör Nordal, fyrrum formaður Stjórnlagaráðs, ásamt fleiri fulltrúum í ráðinu.
11:52 Fram koma alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá í bréfi fyrrverandi formanns ráðsins, Salvarar Nordal, til forsætisnefndar þingsins í kjölfar þess að samþykkt var á Alþingi í gær að vísa málinu til ráðsins á ný. Meira »

Ummerki um olíu frá Júratímabilinu

Drekasvæðið.
11:54 Nýjar rannsóknir á Drekasvæðinu sýna ummerki um olíu frá Júratímabilinu á hafsbotni og staðfesta tilvist jarðlaga frá miðlífsöld. Þetta kemur fram í frétt á vef Orkustofnunar. Meira »

D-vítamínbætt mjólk á markað

D-vítamínbætt léttmjólk.
11:44 Mjólkursamsalan, MS, hefur á næstu dögum sölu á D-vítamínbættri léttmjólk. Er það gert samkvæmt ráðleggingum Embættis landlæknis og rannsóknastofu í næringarfræði við HÍ og Landspítala. Meira »

Telja neytendur eiga betri rétt

11:36 Hagsmunasamtök heimilanna áttu fund með efnahags- og viðskiptanefnd í gær þar sem rætt var um nýfallinn Hæstaréttardóm um gengistryggð lán. Leggja samtökin til að Samtök fjármálafyrirtækja verði leyst upp með tilliti til þess að þar væri um grundvöll fyrir óheilbrigðan og skaðlegan samráðsvettvang. Meira »

Tæplega helmingur ók of hratt

Hraðamælingar lögreglu.
11:31 Tæplega helmingur ökumanna sem fór um Suðurgötu í Reykjavík á einni klukkustund eftir hádegið í gær ók of hratt eða yfir afskiptahraða. Á meðan lögregla vaktaði götuna fóru 122 ökutæki akstursleiðina og 48% þeirra voru á of mikilli ferð. Meira »

Vatnsleki vegna ræktunar

Kannabisræktun.
11:05 Lögregla höfuðborgarsvæðisins stöðvaði kannabisræktun í íbúð fjölbýlishúss í miðborg Reykjavíkur í fyrradag. Tilkynnt var um mikinn vatnsleka í húsinu og var slökkviliðið kallað á vettvang, en lekann mátti rekja til ræktunarinnar. Karlmaður á þrítugsaldri var yfirheyrður vegna málsins. Meira »

Unnur Brá: Eina lausnin?

Unnur Brá Konráðsdóttir
11:33 „Svo virðist sem forsætisráðherra hafi aðeins eitt svar við öllum spurningum og eina lausn á öllum vanda, það er að Ísland gangi í ESB og taki upp evru", segir Unnur Brá Konráðsdóttir, alþingismaður, í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum

Jón Baldvin Hannibalsson
11:14 Eitt bréfanna sem Jón Baldvin Hannibalsson sendi ungri systurdóttur eiginkonu sinnar var sent frá Tallinn í Eistlandi árið 2001. Þá var hann þar staddur í opinberum erindagjörðum sem heiðursræðumaður á hátíðarsamkomu, sem var skipulögð af upplýsingaskrifstofu Norræna ráðherraráðsins þar í landi. Hann lýsir þar samskiptum sínum við vændiskonur. Meira »

„Ég er komin með nóg“

Úr Nýju lífi
11:03 „Ég er komin með nóg. Reglulega kemur upp hjá mér reiði, sorg eða biturð yfir þessu máli og nú langar mig að koma því frá mér,“ segir Guðrún Harðardóttir, sem í viðtali í Nýju lífi segir frá bréfum sem eiginmaður móðursystur hennar, Jón Baldvin Hannibalsson, sendi henni er hún var unglingur. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Trigger punkta plaggöt
2 stk. plasthúðuð trigger-punkta plaggöt. Aðeins 10 þ. kr. 5619400 www.Rikki.is...
Gsm myndavélakerfi og þjófvörn
RSdata myndavélakerfið er einfalt kerfi sem tekur mynd og sendir í gegnum GSM ke...
Ideal-Combi rennihurð til sölu
Ál-Tré, Futura línan - Litur Ral 7043. Stærð 2460x2280, opnast frá hægri til vi...
Myndlistasýning á Café Mílanó.
Erum með lausa veggi til sýninga. Uppl. á staðnum eða í síma 5888860. Café Mílan...
 
Starfsmaður óskast í ökutækjaviðgerðir
Iðnaðarmenn
Starfsmaður óskast Stormur ehf. sérh...
Bækur til sölu

Bækur til sölu Jarðatal á Íslandi 1847 ...
Samkoma sunnudag - salt
Félagsstarf
Safnaðarheimili Grensáskirkju Sunnu...
Sérfræðingur
Sérfræðistörf
Starfsgreinasamband Íslands er stærsta l...