Nær allt flug á áætlun í morgun

Flugvélar Icelandair fóru nær allar samkvæmt áætlun í morgun. Á myndinni sést ein af Boeing ... stækka

Flugvélar Icelandair fóru nær allar samkvæmt áætlun í morgun. Á myndinni sést ein af Boeing 757 flugvélum félagsins.

Flug Icelandair var með að mestu með eðlilegum hætti í morgun. Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, sagði að tekist hafi að stilla svo til að nær allt flug hafi verið samkvæmt áætlun. „Við þurfum bara að takast á við næsta verkfall - í fyrramálið,“ sagði Birkir.

Næsta boðaða verkfall flugumferðarstjóra hefst í fyrramálið og stendur frá klukkan 07:00 – 11:00. Samningafundur með flugumferðarstjórum á að hefjast kl. 11.00 í dag hjá Ríkissáttasemjara og fundur með flugvirkjum og viðsemjendum þeirra kl. 14.00.

Birkir sagði að sú röskun sem varð á flugi Icelandair í gær, vegna verkfalls flugumferðarstjóra, hafi valdið farþegum sem áttu tengiflug og annað töluverðu tjóni. „Það sem þetta gerir líka er að fólk hættir við að koma til Íslands eða hættir við að fljúga með okkur. Við teljum að þetta sé meira að fæla frá viðskiptavini en að valda kostnaðartjóni í bili,“ sagði Birkir.

Hann telur að eftir því sem verkfallsaðgerðir ná lengra verði tjónið meira og ekki síst ímyndartjónið. „Það eru 35.000 farþegar á þessum fimm dögum sem þeir [flugumferðarstjórar] stilla upp í verkfall. Það tekur okkur alltaf rúman sólarhring eða tvo daga að stilla af leiðakerfið og þá byrja þeir allaf aftur.“

Birkir telur greinilegt að flugumferðarstjórar beini aðgerðum sínum gegn Icelandair. „Þeir eru á sama tíma að vinna þessa fjóra tíma og sinna  alþjóðafluginu yfir hafið, því það má sinna því hvar sem er í heiminum. Þeir vilja ekki missa þann „bísniss“. Þessu er algjörlega stillt upp gegn okkur.“

Aðspurður sagði Birkir að Icelandair hafi ekki óskað eftir því að lög verði sett til að banna verkfallsaðgerðirnar. „Við höfum vonast til að deiluaðilar nái saman. Við erum sjálfir að reyna að semja við okkar flugvirkja. Við höfum óskað eftir því að samningsaðilar reyni að ná saman og að þessar stéttir taki tillit til þess á hverja þetta hefur áhrif.“

Birkir sagði að ef truflun verði á komum ferðamanna í sumar til landsins þá hafi það áhrif á gjaldeyristekjur ríkisins svo nemi háum fjárhæðum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10

Hera, Eyfi og Helga spá í Evróvisjón spilin

17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Terrano II 2,7 TD '96 varahlutir
Hef til sölu ýmsa varhluti í Terrano II 96 2,7 TD vél, dekk, ljós, boddy hlut...
VW Passat 2,0 Comfortline 5.2003
Til sölu VW Passat 2,0 Comfortline 5.2003 ekinn 147 þ.km Sjálfskiptur nýskoðaður...
Peougut 406. Sjálfskiptur, nýskoðaður og ÓDÝR!
Til sölu Peougut 406 árg. 1997, ekinn 169 þúsund km. Bíllinn er sjálfskiptur og ...
Vor í Tungunum - www.eyjasolibudir.is
Falleg sumarhús til leigu um helgar og virka daga. Fallegt umhverfi. Heit laug o...
 
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...