Húnvetningar í skuldafeni
Gjaldþrot blasir við fjórðungi heimila við innanverðan Húnaflóa eftir að stofnfjáraukning í Sparisjóði Húnaþings og Stranda breyttist í skuldafen. Áhrif á byggðina gætu orðið þungbær og langvarandi, að mati Byggðastofnunar. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Í tengslum við sameiningu sparisjóðsins við Sparisjóð Keflavíkur síðla árs 200 skrifuðu um 200 stofnfjáreigendur í Húnaþingi vestra og Bæjarhreppi sig fyrir nærri tveggja milljarða króna stofnfjáraukningu, í tveimur áföngum. Tóku flestir kúlulán, samkvæmt frétt Stöðvar 2, verðtryggt eða í erlendri mynt og áætlar Byggðastofnun að skuldirnar standi nú í um þremur milljörðum króna.
Í fréttinni kom fram að stofnféð væri nú svo gott sem glatað og eftir stæðu hrikalegar skuldir, í mörgum tilvikum 15-25 milljónir króna á hverju heimili. Eru einstök dæmi um skuldir á annað hundrað milljónir króna.
Haft var eftir Elínu R. Líndal, formanni Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, að hið sérstaka við þetta mál væri hvað stór hluti samfélagsins þarna væri undir, eða um fjórðungur heimila á svæðinu. Í samfélagslegum skilningi væri þetta mjög alvarlegt og stórt mál.
Samkvæmt frétt Stöðvar 2 standa nú yfir viðræður milli fulltrúa skuldaranna og kröfuhafa, sem eru Sparisjóður Keflavíkur og Landsbankinn. Féllust þeir á um sl. áramót að framlengja greiðslufrest fram í maí nk.
Bloggað um fréttina
-
Jón Pétur Líndal Skora á ykkur að fjölmenna til Reykjavíkur og banka uppá ... -
Dingli Vitfirringin blómstrar. -
Guðmundur Baldursson Nú þurftu þau að leggja fram tryggingar -
Sigurður Haraldsson Hverjir tóku lán og hvers vegna?
Innlent »
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 21. janúar 2011, Innlent Sýknudómar fordæmisgefandi?
- Föstudagur, 21. janúar 2011, Innlent Gríðarlegir hagsmunir undir
- Laugardagur, 10. október 2009, Innlent Hörmuleg staða Húnvetninga
- Þriðjudagur, 22. desember 2009, Innlent Fá frest á greiðslu fram í maí
- Þriðjudagur, 1. febrúar 2011, Innlent Miklar skuldir afskrifaðar
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































