Þolinmæðin á þrotum

Vilmundur Jósefsson.

Vilmundur Jósefsson. mbl.is/Ómar

Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, sagði á upphafi fundar samtakanna á Hótel Nordica að þolinmæði fyrirtækja og fólksins í landinu væri á þrotum gagnvart aðgerðaleysi stjórnvalda. Það dugir ekkert hálfkák," sagði Vilmundur í upphafi fundarins.

Vilmundur setti fundinn og fór stuttlega yfir stöðuna í efnahagslífinu, þar sem atvinnuleysi væri mikið og brottflutningar fólks hafnir. Lækka þyrfti vexti meira og örva fjárfestingar erlendra fyrirtækja. Hann sagði ríkisstjórnina hafa þetta í hendi sér en því miður hefði orðið dráttur á úrlausn margra mála.

Vilmundur sagði ljóst að draga þyrfti úr ríkisútgjöldum til að ná markmiðum í efnahagsáætlun AGS og stjórnvalda.

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, kynnti stefnu samtakanna í atvinnnumálum, Atvinna fyrir alla, sem boðuð var á dögunum. Hann sagði nauðsynlegt að stjórnvöld og atvinnulífið tækju höndum saman. Styrkja þyrfti gengi krónunnar, ná niður vöxtum og örva atvinnulífið. Skera þyrfti niður útgjöld ríkisins um amk 80 milljarða króna.

Sagði Vilhjálmur einnig fjölmörg tækifæri til að skapa ný störf. 11 þúsund störf hefðu tapast á árunum 2008 og 2009 og nefndi hann nokkrar atvinnugreinar sem gætu skapað fjölda nýrra starfa, s.s. í ferðaþjónustu og stóriðju.

Þá gagnrýndi Vilhjálmur stjórnvöld fyrir skattlagningu á lífeyrissjóðina.

Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins mbl.is/Árni Sæberg

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fremst ásamt Ragnheiði Elínu Árnadóttur og Bjarna Benediktssyni samflokksmönnum sínum.

Komið í veg fyrir eðlilega meðferð

08:41 „Enn og aftur er verið að snúa hlutum á hvolf. Hugmyndin var að rammaáætlun kæmi til Alþingis beint frá undirbúningsnefnd sérfræðinga. Nú ætlar ríkisstjórnin að reyna að koma í veg fyrir að Alþingi meðhöndli málið með eðlilegum vinnubrögðum þingmála,“ segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Meira »

Stærstur hluti tekna af samkeppnismarkaði

08:04 „Íslandspóstur fagnar umræðunni en segist ekki mynda sér skoðun á málinu þar sem einkarétturinn liggi hjá ríkinu en Íslandspóstur framfylgi eingöngu lögum um póstdreifingu,“ segir í fréttatilkynningu frá Íslandspósti vegna umræðu um hvort afnema eigi einkarétt ríkisins á póstdreifingu bréfa að 50 grömmum. Meira »

Vegir víðast hvar auðir

07:49 Vegir eru víðast hvar auðir á Suðurlandi, Vesturlandi og Austurlandi samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni en hálkublettir eru hins vegar á nokkrum fáfarnari leiðum. Meira »

28% vilja Vaðlaheiðargöng

Vaðlaheiðargöng.
06:56 Um 28 prósent landsmanna vilja að ráðist verði í gerð Vaðlaheiðarganga í ríkistryggðri einkaframkvæmd en 47 prósent eru því andvíg, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Meira »

Reyndu að stela blöndunartækjum og hurðum

06:06 Þrír menn voru teknir höndum af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um klukkan tvö í nótt í nýbyggingu við Boðaþing í Kópavogi. Voru þeir búnir að losa blöndunartæki, rafmagnsrofa og hurðir þegar lögreglumenn komu á vettvang og var eitthvað af þýfinu þegar komið út í bifreið sem þeir voru með skammt undan. Meira »

Sveiflukenndur skíðavetur

Þótt meira hafi snjóað í ár en oft áður skilar það sér ekki í fleiri ...
07:30 Skíðaveturinn hefur ýmist verið skelfilegur eða frábær hjá skíðasvæðum landsins. Í Hlíðarfjalli hafa síðustu helgar verið góðar með fallegu veðri og fjölda fólks að sögn Hólmfríðar Söru Friðjónsdóttur, verkstjóra innanhússtarfsmanna skíðasvæðisins. Meira »

Skilaboðin ekki gefin upp

Sprengjusérfræðingur skoðar kassa sem tengist sprengjunni.
06:30 Lögreglan gefur ekki upp hvaða skilaboðum reynt var að koma á framfæri með sprengingu á Hverfisgötu í lok janúar.  Meira »

Þurfa að vinna nær arnarhreiðrum

Unnið að vegagerð á Melanesi við Vestfjarðaveg nr. 60, skammt austan Skálaness.
05:30 Vegagerðin mun sækja um undanþágu til að geta unnið að vegagerð á Vestfjarðavegi á varptíma arnarins næstu þrjú til fjögur ár. Meira »

Staðið í strætó

Staðið í strætó.
05:30 „Ég persónulega kæri mig ekki um að drengurinn minn standi í strætó á milli byggðarlaga og borgi svo fullt fargjald fyrir,“ segir Halldór Guðmundsson, leigubifreiðarstjóri. Meira »

Hætt sem mönnuð veðurathugunarstöð

Frá Hrauni á Skaga
05:30 Samkvæmt heimildum frá Veðurstofu Íslands var veðurathugunum á Hrauni á Skaga hætt nú um áramótin. Veðurathugun hefur verið þar allt frá árinu 1952 og út árið 2011. Meira »

Fimm segja skilið við Y-lista

Í Kópavogi.
05:30 Fimm konur hyggjast segja sig formlega úr Y-lista Kópavogsbúa á fundi sem haldinn verður í dag, að sögn Ásdísar Ólafsdóttur, eins af stofnendum framboðsins. Meira »

Dreifa peningum í samfélaginu

Í Húnaþingi.
05:30 Íbúar Húnaþings vestra njóta þess með ýmsum hætti að Landsbankinn hefur fellt niður lán sem sveitarfélagið tók vegna kaupa á stofnfé í sparisjóði sínum fyrir hrun. Peningar eru nú veittir til þarfra verkefna. Meira »

Ekki einfalt að kaupa

Grímsstaðir á Fjöllum.
05:30 Það gæti reynst flóknara en virðist í fyrstu fyrir sveitarfélagið Norðurþing að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum, með láni frá Huang Nubo, til að endurleigja honum. Meira »

Búast má við hvössum vindhviðum

04:34 Búast má við hvössum vindhviðum, 25-30 m/s, við fjöll suðaustan- og austanlands en á norðan og austanverðu landinu um og eftir hádegi. Annars verður vestan 8-15 og súld á köflum um vestanvert landið og dálítil slydda á stöku stað norðvestantil í fyrstu. Meira »

Böðuð ljósi og litum

Ýmsar verur klífa nú Hallgrímskirkju í magnaðri ljósasýningu.
Í gær, 20:52 Hallgrímskirkja verður böðuð mögnuðum ljósum og litum á sífelldri hreyfingu til miðnættis en gjörningurinn er hluti af dagskrá Vetrarhátíðar sem lýkur í kvöld. Höfundur ljósasýningarinnar er Marcos Zotes. Meira »

Andlát: Sigríður Guðmundsdóttir, Hvítanesi á Akranesi

Sigríður Guðmundsdóttir.
05:30 Sigríður Guðmundsdóttir, Sigga á Hvítanesi, lést á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi í fyrradag. Hún varð 102 ára að aldri.  Meira »

„Ég hef sjaldan verið jafnglaður“

Kristmundur Axel Kristmundsson söng og dansaði með Bláum ópal í Hörpu í gær.
Í gær, 23:53 „Við í Bláum ópal erum rosalega sáttir og þakklátir fyrir allan stuðninginn, þvílík snilld,“ segir Kristmundur Axel Kristmundsson, einn fjórmenninganna í Bláum ópal. Í bréfi sem hann sendi mbl.is eru endalausir broskarlar :-) enda segir Kristmundur Axel: „Ég hef sjaldan verið jafn glaður og bjartsýnn á lífið eins og núna.“ Meira »

Meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
Í gær, 20:10 54% Íslendinga vilja að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér sem forseti landsins. Þetta sýnir ný könnun sem sagt var frá í fréttum Stöðvar tvö í kvöld. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Zodiak
Góðan daginn, er með Zodiak á mjög góðri kerru til sölu sjá nánar hér... http:/...
HARMONIKKUHURÐIR - FELLIHURÐIR
Bæði með og án glugga. Hringdu inn málin, hurðin getur verið tilbúinn samdægurs....
FJÓRHJÓLADEKK Á ÁLFELGUM F.CAN-AM 28"
Wing BKT. 28x10x12 framan og 28x12x12 aftan. Framdekk eru mjög góð, afturdekkin ...
Til sölu
VW Polo árg. ´97, ekinn 145 þús. Þarfnast viðhalds. Gunnar, 8257234...
 
Reykjavíkurborg deiliskipulag

Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingar...
Sýslumaðurinn í keflavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
15182 matsala til starfsmanna landspítal
Tilboð - útboð
Útboð nr. 15182 - Matsal...
Hjúkrunardeildarstjóri
Heilbrigðisþjónusta
Skjól  hjúkrunarhe...