Missa Guðrúnarstofu
Frá Osló en þar hafa þúsundir Íslendinga farið til náms á síðustu áratugum. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Íslenskir námsmenn munu í haust missa aðstöðu sína í Ósló, Guðrúnarstofu, sem þeir hafa haft til afnota allt frá árinu 1960. Talsmenn Félags íslenskra námsmanna í Osló og nágrenni (FÍSN) segja þetta hafa djúpstæð áhrif á starfsemi félagsins.
FÍSN var stofnað árið 1951. Haustið 1960 afhenti stjórn Félagsstofnunar stúdenta í Osló (SiO) félaginu dagsstofu í blokk á nemendagörðunum að Sogni í norðurhluta Oslóar án endurgjalds, til heiðurs íslenskri konu. Konan hét Guðrún Brunborg og hafði unnið mikið hugsjónastarf í þágu íslenskra námsmanna og bættra samskipta Íslands og Noregs á árunum eftir seinni heimsstyrjöld, segir í tilkynningu frá FÍSN.
„Þessi stofa hefur alla tíð borið nafnið Guðrúnarstofa. Á síðustu 50 árum hefur tíðarandinn breyst og eins starfsemin innan SiO. Nú er svo komið að SiO hyggst leggja Guðrúnarstofu niður á komandi hausti og reisa viðbyggingu þar sem Guðrúnarstofa er nú. Vegna reglna sem SiO starfar eftir verður ekki hægt að bæta FÍSN skaðann af þessu og verður FÍSN því ekki boðin ný húsakynni í staðinn.
Guðrúnarstofu þekkja án efa langflestir sem sótt hafa nám til Oslóar síðustu 50 árin. Guðrúnarstofa hefur verið fastur punktur í tilveru íslenskra stúdenta og þaðan eiga margir góðar minningar. Að missa Guðrúnarstofu hefur vægast sagt djúpstæð áhrif á starfsemi félagsins. Þá sér í lagi þegar horft er til þess að félögum hefur fjölgað síðustu mánuði og má búast við því að þeim muni halda áfram að fjölga á næstu misserum," segir í tilkynningu FÍSN.
Fram kemur að íslenski söfnuðurinn í Osló hafi verið FÍSN afar hliðhollur og boðist til að veita félaginu skrifstofu til afnota en Guðrúnarstofa hefur að geyma eitt stærsta íslenska bókasafn í Noregi og ýmsar minjar um sögu FÍSN og frá tíð Guðrúnar Brunborg. Það sé hinsvegar augljóst að sú skrifstofa muni á engan hátt fylla skarðið eftir Guðrúnarstofu.
Innlent »
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 3. júní 2010, Innlent Stúdentar ósáttir við breyttar reglur LÍN
- Þriðjudagur, 14. apríl 2009, Innlent 600 milljónir til sumarnáms
- Fimmtudagur, 11. júní 2009, Innlent Námsmenn á Austurvöll í dag
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Mánudagur, 7. júní 2010, Innlent Námsmenn boða til mótmæla
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































