Treysta á snjóinn á Suðureyri
Tökur á kvikmyndinni Vaxandi tungl hefjast innan skamms á Suðureyri. Vonir aðstandandenda myndarinnar gera ráð fyrir snjó og vetrarhörku á meðan á tökum stendur. Ef veðurguðirnir verða ekki hliðhollir treysta kvikmyndagerðarmenn á Suðueyri á snjóframleiðsluvél skíðasvæðisins á Ísafirði. Frá þessu er greint á vef myndarinnar, ontrack.is. Verið er að innheimta hlutafé þessa daga og er stefnt að því að því verði lokið um miðjan mánuðinn.
Um er að
ræða fjölskyldumynd sem byggir á sannri, rammvestfirskri sögu úr
nútímanum. „Gömul kona deyr í litlu sjávarþorpi. Eldri sonur hennar býr
á staðnum ásamt fjölskyldu, en yngri sonurinn býr í Reykjavík með konu
sinni. Lát gömlu konunnar vekur upp átök milli bræðranna. Óvænt þungun
flækir málin enn frekar. Kemur þá til skjalanna yngsta dóttirin,
augasteinn ömmu sinnar. Hún finnur fyrir nánd gömlu konunnar, afræður
að bjóða örlögunum byrginn og berjast fyrir sínu,“ segir í lýsingu á
efni myndarinnar.
Tökumenn myndarinnar verða Jóhannes Jónsson og
Guðmundur Bjartmarsson. Hljóðið verður í höndum þeirra Hrólfs
Vagnssonar og Péturs Hjaltested. Með aðalhlutverk í myndinni fara Elva
Ósk Ólafsdóttir og Pálmi Gestsson ásamt Birtu Maríu Gunnarsdóttur.
Fjórir ungir leikarar voru valdir úr áheyrendaprufum til þess að leika
í myndinni en það eru Ástrós Valsdóttir frá Suðureyri og Ísfirðingarnir
Birta María Gunnarsdóttir, Sunna Karen Einarsdóttir og Svanur Pálsson.
Auk ungmennanna hafa leikararnir Ársæll Níelsson, Elfar Logi Hannesson
og Rakel Dimar, sem er dönsk, verið ráðin til að leika í myndinni.
Mugison mun síðan semja og syngja titillag myndarinnar.
Innlent »
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 6. apríl 2010, Innlent Eitt myndband á dag til að kynna kvikmynd
- Miðvikudagur, 16. desember 2009, Innlent Vestfirsk kvikmynd í undirbúningi
- Fimmtudagur, 9. júlí 2009, Innlent Tökur hafnar á Laxdælu Lárusar
- Miðvikudagur, 28. apríl 2010, Innlent Mynd Profilm frumsýnd í Bandaríkjunum
- Mánudagur, 15. nóvember 2010, Innlent Hlíðarfjall opnar á fimmtudag
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































