Vilja af skammarlega lágum launum
Hægt miðar í kjaraviðræðum milli verkalýðsfélags Akraness og Norðuráls. Deilendur funduðu í Karphúsinu í gær án árangurs. Fundur er boðaður á fimmtudag. Óþreyju er farið að gæta meðal starfsmanna Norðuráls, segir Vilhjálmur Birgisson, formaður verkalýðsfélagsins.
„Kjarasamningurinn rann út 1. janúar og þar af leiðandi áttu laun að hækka frá og með þeim tíma. Það er allt í landinu að taka stórkostlegum hækkunum og fólk á því að erfitt með að bíða eftir sínum kjarasamningsbundnum hækkunum,“ segir hann.
Vilhjálmur segir gott svigrúm sé til launahækkana hjá álverinu: „Ef einhver fyrirtæki á Íslandi hafa burði til að hækka laun eru það þau í áliðnaði. Það á að vera skýlaus krafa hjá okkur að erlendir eignaraðilar greiði hér góð laun handa starfsfólkinu. Þeir fá afnot af landinu okkar og ódýra raforku. Það er því skylda okkar að ná sem mestu út úr þessu og það getum við gert með því að laun starfsmanna í þessum geira séu viðunandi. Þau eru það ekki í dag því grunnlaun hjá starfsmanni í Norðuráli eru einungis 167 þúsund krónur rúmar.“ Vilhjálmur segir þó rétt að þeir fái vaktaálag, ferðapeninga og annað slíkt.
„Þessi laun eru til skammar,“ segir Vilhjálmur. Starfsmenn vilji sömu laun og starfsmenn hjá Alcan í Straumsvík. „Þegar við höfum gert launasamanburð milli fyrirtækjanna, berum saman vinnustundafjölda og fáum einingarverð, kemur í ljós að það munar tugþúsundum milli þessara verksmiðja. Krafan okkar er einfaldlega sú að þessi laun verði leiðrétt til samræmis við starfsbræður þeirra í Alcan við Straumsvík.“
Ekki náðist í Gunnar Guðlaugsson, framkvæmdastjóra Norðuráls. Hann var á fundi.
Innlent »
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 4. mars 2010, Innlent Fundað í kjaradeilu starfsmanna Norðuráls
- Föstudagur, 17. júlí 2009, Innlent Væntingar um töluverðar kjarabætur
- Föstudagur, 26. febrúar 2010, Innlent Vísað til ríkissáttasemjara
- Fimmtudagur, 4. febrúar 2010, Innlent Ætla ekki að hvika frá kröfu um leiðréttingu launa
- Miðvikudagur, 28. apríl 2010, Innlent Samþykktu kjarasamning við Norðurál
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































