Fréttaskýring: Bankarnir veittu ekki upplýsingar og skiluðu ekki alltaf staðgreiðslu

Morgunblaðið Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is

Flest bendir til að einstaklingar hafi í verulegum mæli reynt að koma sér hjá því að greiða fjármagnstekjuskatt. Ábyrgð viðskiptabankanna á þessum málum er mikil.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði eftir ríkisstjórnarfund á þriðjudaginn að inn í bönkunum hefði verið „svart skattkerfi“. Þetta eru nokkuð stór orð en ekki verður betur séð en innistæða sé fyrir þeim. Bankarnir buðu viðskiptavinum sínum upp á fjármálaþjónustu af ýmsu tagi sem m.a. byggðist á því að halda ekki eftir staðgreiðslu á fjármagnstekjum þrátt fyrir að það sé alveg skýrt í lögum að greiða beri 10% skatt af tekjunum.

Samkvæmt lögum um fjármagnstekjuskatt frá árinu 1996 ber lánastofnunum „skylda til að draga staðgreiðslu af vaxtatekjum“ einstaklinga. Þetta á við um fjármagnstekjur „er myndast í atvinnurekstri þeirra eða sjálfstæðri starfsemi“. Bankarnir hafa alltaf séð um að skila fjármagnstekjum sem myndast vegna vaxta á innlánsreiknum og sama gildir um vaxtatekjur vegna peningamarkaðssjóða. Þegar bankarnir byrjuðu að bjóða svokölluðum góðum viðskiptavinum eignastýringu í formi afleiðuviðskipta virðist hafa verið ákveðið að skila ekki staðgreiðslu vegna hagnaðar af þessum viðskiptum.

Vala Valtýsdóttir, héraðsdómslögmaður hjá Deloitte, segir alveg skýrt að bönkunum hafi borið að halda eftir staðgreiðslu vegna hagnaðar sem viðskiptamenn þeirra höfðu af afleiðuviðskiptum.

Bankarnir hafa heldur ekki skilað staðgreiðslu vegna hagnaðar viðskiptavina sinna af hlutabréfaviðskiptum nema í mjög takmörkuðum mæli. Það er kannski alveg eins skýrt í lögum að bönkunum hafi borið að skila staðgreiðslu vegna þessara viðskipta. Það leikur hins vegar enginn vafi á að það ber að greiða fjármagnstekjuskatt af hagnaði af hlutabréfaviðskiptum og af arði.

Tregir að veita upplýsingar

Það sem er aftur á móti athyglisvert er hvað bankarnir hafa verið tregir til að veita skattyfirvöldum upplýsingar sem þeir búa yfir um hlutabréfaviðskipti viðskiptamanna sinna. Ríkisskattstjóri hefur um árabil reynt að fá upplýsingar frá bönkunum um þessi viðskipti. Í bréfi sem hann ritaði bönkunum árið 2001 segir: „Viðskipti með hlutabréf hafa farið mjög vaxandi á undanförnum árum og það því orðið meira hagsmunamál fyrir ríkissjóð og brýnna jafnréttismál fyrir skattborgarana að tryggt sé eftir mætti að framtaldar tekjur séu réttar og skattar ákveðnir í samræmi við það.“

Mjög erfiðlega gekk hins vegar að fá þessar upplýsingar og á endanum fór málið til dómstóla. Það er fyrst núna, næstum 9 árum síðar, sem þessar upplýsingar eru að skila sér til skattyfirvalda. Og þá kemur líka í ljós að þarna hafa verið stunduð stórfelld skattsvik, að nokkru leyti í skjóli bankanna. Samkvæmt bráðabirgðatölum vantar um 127 milljarða viðskipti með hlutabréf inn á skattframtöl. Frá þessari tölu dragast kaupverð bréfanna og eins kann að vera að gerð hafi verið grein fyrir sumum af þessum viðskiptum í einkahlutafélögum.

Sú spurning vaknar hvort skattyfirvöldum takist að innheimta þá skatta sem ekki hafa verið greiddir. Ljóst er að margir sem voru mjög ríkir eru það ekki lengur. Skúli Eggert Þórðarson sagði að skattayfirvöld mættu ekki láta það hafa nein áhrif á sig hvernig gjaldfærni manna væri. Hann sagðist telja að flestir væru borgunarmenn fyrir þessum vantöldu tekjum.

Í þessu sambandi skiptir máli frumvarp sem er fyrir þinginu sem veitir skattyfirvöldum heimild til að leggja hald á eignir. Stefán Skjaldarson skattrannsóknastjóri sagði í samtali við RÚV í gær að vitað væri um eignir sem hefðu verið til staðar, en væru nú horfnar.

Hópurinn sem grunaður er um skattsvik vegna afleiðuviðskipta telur rúmlega þúsund manns. Álíka margir einstaklingar hafa stundað hlutabréfaviðskipti í stórum stíl án þess að telja viðskiptin fram. Þá er átt við viðskipti sem telja tugi milljóna eða jafnvel milljarða.

Er að koma í ljós það sem okkur hefur grunað

„Allar aðvaranir skattayfirvalda í gegnum árin hafa margsinnis verið hundsaðar og kröfur ríkisskattstjóra og skattrannsóknarstjóra hafa ekki fengist í gegn fyrr en núna með þessum dómum og með lagabreytingu sem varð í árslok 2008 og í ársbyrjun 2009. Nú er að koma í ljós það sem okkur hefur grunað alla tíð að þetta væri ekki í lagi. Það eru býsna alvarlegir atburðir sem þarna virðast hafa átt sér stað,“ sagði Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri um hvernig bankarnir hafa staðið að skattskilum og upplýsingagjöf.

Skúli Eggert sagði að mál sem væru til skoðunar hjá skattyfirvöldum varðandi hlutabréfa- og afleiðuviðskipti færu núna í venjulegan farveg. Viðkomandi gæfist kostur á að koma að sjónarmiðum og leiðrétta framtölin. Síðan færu málin í venjulegt úrskurðarferli. Samkvæmt lögum er heimilt að leggja 25% álag á tekjur sem ekki hafa verið taldar fram til skatts. Skúli Eggert vildi ekkert tjá sig um hvort til greina kæmi að beita þessari heimild.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Jónsi og Greta í Hörpu.

Jónsi og Greta til Bakú

22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »
Keppnin fer fram í Hörpu.

Úrslitakeppnin hafin í Hörpu

20:33 Úrslitakvöld forkeppni Evróvisjón er hafið í Hörpu, en í kvöld kemur í ljós hverjir keppa fyrir hönd Íslands í lokakeppni söngvakeppninnar sem fram fer í Bakú í Aserbaídjan síðar á árinu. Meira »

Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka

Geir H. Haarde fyrir Landsdómi.
19:52 Jafnmargir eru því fylgjandi að ákæra á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði dregin til baka og andvígir því, samkvæmt niðurstöðum úr könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins sem greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. Meira »

Hvessir af suðri seint í kvöld

Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt.
17:16 Heldur hvessir af suðri í kvöld og hlýnar á landinu, samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt, en slyddu og rigningu í byggð. Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð byljóttum vindi í nótt og mjög hvössum vindhviðum. Meira »

Ekki hika – hringdu til öryggis

Meðal þess sem var í boði, var að læra hvernig á að beita hjartahnoði.
16:46 Gagn og gaman, voru þau orð sem gestir í Smáralind höfðu um 112-daginn sem þar var haldinn í dag. Markmið dagsins var að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. En ekki síður voru viðbragðsaðilar með umfangsmiklar kynningu. Meira »

Fjör á 112-deginum á Húsavík

Börnum og unglingum var boðið í stutta sjóferð á Jóni Kjartanssyni, báti Björgunarsveitarinnar Garðars.
17:35 Víðar var haldið upp á 112-daginn en aðeins í Reykjavík. Þannig lögðu fjölmargir leið sína í björgunarsveitarhúsið Naust á Húsavík þar sem viðamikil dagskrá fór fram. Meira »

Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti

Ögmundur Jónasson
16:46 Ögmundur Jónasson, innanríkis- og mannréttindaráðherra Íslands, segir það vel koma til greina að skoða með hvað hætti Ísland geti beint spjótum sínum að mannréttindabrotum í Aserbaídsjan í kjölfar Evróvisjón keppninnar. Meira »

Möguleikar nýju framboðanna

16:05 Væntanlega mun ýmislegt skýrast á næstunni frekar varðandi stefnur stjórnmálahreyfinganna og hvernig þær ætli sér að skipuleggja starfsemi sína fyrir næstu þingkosningar sem verða í síðasta lagi vorið 2013 eða eftir rúmt ár en gætu skollið á hvenær sem er. Meira »

Enginn flótti af Y-lista

Rannveig Ásgeirsdóttir, fulltrú Y-lista Kópavogsbúa og Ármann Kr. Ólafsson, sjálfstæðisflokki.
16:04 Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Y-lista í bæjarstjórn Kópavogs, segir það ekki rétt að nokkur fjöldi hafi sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að listinn myndaði meirihluta með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi á fimmtudaginn. Henni er aðeins kunnugt um að einn hafi sagt sig af listanum vegna þessa. Meira »

Búðaþjófur ógnaði starfsmanni

Maðurinn reyndi að stela vörum úr Hagkaup.
15:54 Starfsfólk Hagkaupa í Skeifunni óskaði eftir aðstoð lögreglu höfuðborgarsvæðisins á öðrum tímanum í dag. Þar hafði karlmaður reynt að stela vörum og brást illa við afskiptum öryggisvarðar. Búðaþjófurinn sem ógnaði öryggisverðinum með skærum var handtekinn og bíður skýrslutöku. Meira »

Iðnaðarmaður ræsti brunaboða

Kleppsspítali
15:57 Lögregla og slökkvilið voru kölluð að Kleppsspítala rétt fyrir hádegið í dag þegar brunaboði og innbrotsboði voru ræstir. Í ljós kom að iðnaðarmaður setti brunaboðann af stað með vinnu sinni og þegar hann reyndi að slökkva á honum ræsti hann óvart innbrotsboðann. Meira »

Börn grétu vegna útigangsmanna

Klambratún.
15:48 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að Klambratúni í dag þar sem útigangsmenn voru með ofstopa og ógnuðu fólki sem þar gekk um. Tilkynnandi sagði að börn hefðu orðið mjög skelfd og brostið í grát vegna þessa. Þegar lögregla kom á vettvang voru mennirnir hins vegar horfnir á braut. Meira »

Fangar reyna oft að ná í fíkniefni

Fangi fluttur fyrir dómara.
15:39 Tilvik þess að fangar reyni að nálgast fíkniefni þegar verið er að flytja þá á spítala, fyrir dóm eða til tannlæknis koma reglulega upp. Þetta sagði deildarstjóri á fangelsinu á Litla-Hrauni í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Því þurfi sífellt að endurskoða fangaflutninga. Meira »

Skjálftahrina við Grímsey

Kort af skjálftunum.
14:48 Jarðskjálftahrina varð úti fyrir Grímsey í morgun. Á vefsvæði Veðurstofu Íslands má sjá að hrinan hófst um klukkan níu í morgun og stóð til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 2,3 stig, en einnig mældust skjálftar up á 2 stig og 1,9 og 1,7. Engir skjálftar hafa mælst eftir hádegið. Meira »

Fleiri vilja aukið íbúalýðræði

14:31 Áhugi á auknum tengslum kjósenda við fulltrúa sína hefur aukist mikið á sveitarstjórnarstiginu á umliðnum árum, og raunar einnig upp á það síðasta á landsmálastiginu. Í niðurstöðum könnunar sem unnin var fyrir innanríkisráðuneytið kemur fram að áhuginn sé heldur að aukast með stjórnmálamanna heldur en hitt. Meira »

Slökkt á meðan Kolaportið er opið

Kolaportið
15:26 Tollstjóri hyggst slökkva á eftirlitsmyndavélum á húsi embættisins við Tryggvagötu á meðan Kolaportið er opið. Þetta kemur fram í umsögn Persónuverndar um fyrirhugaða vöktun hússins. Meira »

Öskureið út í Pál Óskar

14:41 Ulker Gasanova sem fluttist til Íslands frá Aserbaídsjan árið 2001 með móður sinni, Sevil Gasanova, er ekki sátt við málflutning Páls Óskars vegna undirbúnings Evróvisjónkeppninar sem fer fram í Aserbaídsjan í ár. Meira »

„Stærstu verðlaunin eru heima“

Gísli Örn Gíslason, skyndhjálparmaður ársins 2011 og dóttir hans, Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
14:30 „Það hjálpaðist allt að á þessum degi. Það var röð tilviljana sem olli því að við vorum öll heima,“ segir Gísli Örn Gíslason, sem í dag var valinn skyndihjálparmaður ársins 2011 af Rauða krossi Íslands. Hann bjargaði lífi 18 ára gamallar dóttur sinnar í fyrra. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Havanese til sölu m/ ættbók frá HRFI
Hreinræktaður frábær heimilishundur blíður og góður. Tæplega 2 ára strákur. Þæg...
Sumarhús.
Húsasmíðameistari getur bætt við sig verkefnum í sumarbústaðasmíði.Nýsmíði og st...
PARSUN UTANBORÐSMÓTORAR 2,6 - 5- 15 -25 HP Á LAGER
Erum að fara panta, getum tekið niður óskir um aðrar stærðir. Einnig hægt að fá...
AKUREYRI
AKUREYRI Höfum til leigu ýmsar gerðir sumar-húsa við Akureyri og á Akureyri. Upp...
 
Samkoma
Félagsstarf
Kaffi, sunnudag kl.16 Fyrir samko...
Laus staða í grunnskóla snæfellsbæjar
Grunn-/framhaldsskóla
Laus staða í Grunnskóla Snæfellsbæja...
Verkefnastjóri vindorku
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Aðalfundur
Fundir - mannfagnaðir
Aðalfundur Aðalfundur F...