Íþróttafélög fá inni í Egilshöll
Borgarráð samþykkti í dag að gengið verði til samninga um aukin afnot af Egilshöll fyrir íþróttafélög í Grafarvogi sem og aðstöðu fyrir frístundastarf ÍTR í þágu fatlaðra barna og ungmenna.
Átak verður gert til að bæta umhverfi Egilshallarinnar, lagfæra lóð og bílastæði. Jafnframt verður gengið til samninga um afnot af svokölluðu Mest-húsi í Norðlingaholti til að koma upp aðstöðu fyrir fimleika, aðrar íþróttir og frístundastarf fyrir börn og unglinga í austurhluta borgarinnar. Með húsnæðinu verður bætt úr verulegum skorti á aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni í Norðlingaholti, samkvæmt fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.
„Samningurinn um aukin afnot af Egilshöll fyrir Ungmennafélagið Fjölni og önnur íþróttafélög tryggir áframhaldandi öfluga íþróttastarfsemi í höllinni á vegum Reykjavíkurborgar og aukinn aðgang fyrir barna- og unglingastarf, m.a. knattspyrnuæfingar, skautaiðkun, fimleika, frjálsar íþróttir o.fl. Þá felur samningurinn í sér afnot af gervigrasvelli, battavöllum og tennisvöllum við Egilshöll.
Fjölni er þannig tryggð framtíðaraðstaða í og við Egilshöll en þess í stað hefur félagið fallið frá fyrri áformum um kostnaðarsama uppbyggingu íþróttamannvirkja í hverfinu. Þá hefur frístundaheimili fyrir fötluð börn og ungmenni úr Grafarvogi og nærliggjandi hverfum verið flutt í húsnæði Egilshallar.
Með samningi um afnot af Mest húsnæðinu í Norðlingaholti verður aðstaða íþróttafélagsins Fylkis fyrir fimleika og aðrar inniíþróttir í þágu barna- og unglingastarfs í austurhluta borgarinnar stórbætt. Þar verður einnig rekið frístundaheimili og félagsmiðstöð ÍTR frá og með næsta hausti. Lögð verður áhersla á aukið samstarf ÍTR og Fylkis vegna samþættingar íþróttastarfs, skóla og frístundaheimilis í húsinu," segir í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, segir í fréttatilkynningu að íþrótta- og félagsstarf sé mikilvægt fyrir uppbyggingu góðra hverfa í borginni.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 18. mars 2010, Innlent Mest-húsið nýtt sem íþróttahús
- Fimmtudagur, 2. júlí 2009, Innlent Fjölnir í Egilshöllina
- Fimmtudagur, 11. júní 2009, Innlent Tvær unglingasmiðjur starfræktar áfram
- Mánudagur, 9. ágúst 2010, Innlent 14 þúsund grunnskólanemar í Reykjavík
- Fimmtudagur, 18. febrúar 2010, Innlent Gufunes lagt undir skemmtigarða?
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































