Nærri 10 þúsund barnaverndarmál

Tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgaði um 13% í fyrra. stækka

Tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgaði um 13% í fyrra. Ásdís Ásgeirsdóttir

Tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgaði milli áranna 2008 og 2009 úr 8.201 í 9.299. Fjölgunin milli ára er rúmlega 13%. Fjölgunin á höfuðborgarsvæðinu er 17%, en 6% á landsbyggðinni. Þetta kemur fram í frétt frá Barnaverndarstofu.

Flestar tilkynningar voru vegna áhættuhegðunar barna eða 52,1% allra tilkynninga árið 2008, en 46,4% árið 2009. Alls voru 28,7% tilkynninga vegna vanrækslu á börnum árið 2008, en 34,7% árið 2009. Hlutfall tilkynninga um ofbeldi var 18,6% bæði árin og 0,4% tilkynninga var vegna þess að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu.

Í sískráningu barnaverndarnefnda var á árinu 2009 í fyrsta sinn spurt sérstaklega um áfengis-og fíkniefnaneyslu foreldra og heimilisofbeldi. Á árinu 2009 voru 806 tilkynningar þar sem tilkynnt var um vanrækslu og fram kom að foreldrar voru í áfengis-og/eða fíkniefnaneyslu. Það er tæplega 9% af heildarfjölda tilkynninga. Í tilkynningum um ofbeldi kom fram að í 281 tilviki var um heimilisofbeldi að ræða, eða 3% af heildarfjölda tilkynninga til nefndanna. Flestar tilkynningar voru frá lögreglu, en hlutfall þeirra var 55,1% árið 2008, en lækkaði í 49,7 árið 2009.

Tilkynnt var um 6.900 börn árið 2008, en sambærileg tala fyrir árið 2009 var 7.682. Tilkynnt var því um rúmlega 11% fleiri börn árið 2009 en 2008.

Umsóknum um meðferðarheimili hefur fjölgað milli ára. Umsóknir voru 132 árið 2008 en fjölgaði í 166 árið 2009. Flestar umsóknir voru frá Reykjavík og nágrenni Reykjavíkur eða 76,5% umsókna, en 23,5% umsókna voru frá nefndum á landsbyggðinni. Fleiri umsóknir bárust fyrir drengi en stúlkur og var meðalaldur barna sem sótt var um meðferð fyrir 15,4 ár árið 2009.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Frá Vífilsstaðavatni í morgun

Bíll á kafi í Vífilsstaðavatni

09:05 Kafarar voru sendir að Vífilsstaðavatni um klukkan níu í morgun, en vegfarandi tilkynnti um bíl í vatninu. Ekki er vitað hvort einhver er inni í bílnum. Meira »
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fremst ásamt Ragnheiði Elínu Árnadóttur og Bjarna Benediktssyni samflokksmönnum sínum.

Komið í veg fyrir eðlilega meðferð

08:41 „Enn og aftur er verið að snúa hlutum á hvolf. Hugmyndin var að rammaáætlun kæmi til Alþingis beint frá undirbúningsnefnd sérfræðinga. Nú ætlar ríkisstjórnin að reyna að koma í veg fyrir að Alþingi meðhöndli málið með eðlilegum vinnubrögðum þingmála,“ segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Meira »

Stefán Snær: 100 ára íþróttasaga

Stefán Snær Konráðsson
09:22 „Það var stór dagur, ekki aðeins í íslenskri íþróttasögu heldur í Íslandssögunni allri, þegar framsýnir menn ákváðu að stofna Íþróttasamband Íslands 28. janúar árið 1912," segir Stefán Snær Konráðsson í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Vegir víðast hvar auðir

07:49 Vegir eru víðast hvar auðir á Suðurlandi, Vesturlandi og Austurlandi samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni en hálkublettir eru hins vegar á nokkrum fáfarnari leiðum. Meira »

28% vilja Vaðlaheiðargöng

Vaðlaheiðargöng.
06:56 Um 28 prósent landsmanna vilja að ráðist verði í gerð Vaðlaheiðarganga í ríkistryggðri einkaframkvæmd en 47 prósent eru því andvíg, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Meira »

Stærstur hluti tekna af samkeppnismarkaði

08:04 „Íslandspóstur fagnar umræðunni en segist ekki mynda sér skoðun á málinu þar sem einkarétturinn liggi hjá ríkinu en Íslandspóstur framfylgi eingöngu lögum um póstdreifingu,“ segir í fréttatilkynningu frá Íslandspósti vegna umræðu um hvort afnema eigi einkarétt ríkisins á póstdreifingu bréfa að 50 grömmum. Meira »

Sveiflukenndur skíðavetur

Þótt meira hafi snjóað í ár en oft áður skilar það sér ekki í fleiri ...
07:30 Skíðaveturinn hefur ýmist verið skelfilegur eða frábær hjá skíðasvæðum landsins. Í Hlíðarfjalli hafa síðustu helgar verið góðar með fallegu veðri og fjölda fólks að sögn Hólmfríðar Söru Friðjónsdóttur, verkstjóra innanhússtarfsmanna skíðasvæðisins. Meira »

Skilaboðin ekki gefin upp

Sprengjusérfræðingur skoðar kassa sem tengist sprengjunni.
06:30 Lögreglan gefur ekki upp hvaða skilaboðum reynt var að koma á framfæri með sprengingu á Hverfisgötu í lok janúar.  Meira »

Reyndu að stela blöndunartækjum og hurðum

06:06 Þrír menn voru teknir höndum af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um klukkan tvö í nótt í nýbyggingu við Boðaþing í Kópavogi. Voru þeir búnir að losa blöndunartæki, rafmagnsrofa og hurðir þegar lögreglumenn komu á vettvang og var eitthvað af þýfinu þegar komið út í bifreið sem þeir voru með skammt undan. Meira »

Staðið í strætó

Staðið í strætó.
05:30 „Ég persónulega kæri mig ekki um að drengurinn minn standi í strætó á milli byggðarlaga og borgi svo fullt fargjald fyrir,“ segir Halldór Guðmundsson, leigubifreiðarstjóri. Meira »

Þurfa að vinna nær arnarhreiðrum

Unnið að vegagerð á Melanesi við Vestfjarðaveg nr. 60, skammt austan Skálaness.
05:30 Vegagerðin mun sækja um undanþágu til að geta unnið að vegagerð á Vestfjarðavegi á varptíma arnarins næstu þrjú til fjögur ár. Meira »

Fimm segja skilið við Y-lista

Í Kópavogi.
05:30 Fimm konur hyggjast segja sig formlega úr Y-lista Kópavogsbúa á fundi sem haldinn verður í dag, að sögn Ásdísar Ólafsdóttur, eins af stofnendum framboðsins. Meira »

Hætt sem mönnuð veðurathugunarstöð

Frá Hrauni á Skaga
05:30 Samkvæmt heimildum frá Veðurstofu Íslands var veðurathugunum á Hrauni á Skaga hætt nú um áramótin. Veðurathugun hefur verið þar allt frá árinu 1952 og út árið 2011. Meira »

Ekki einfalt að kaupa

Grímsstaðir á Fjöllum.
05:30 Það gæti reynst flóknara en virðist í fyrstu fyrir sveitarfélagið Norðurþing að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum, með láni frá Huang Nubo, til að endurleigja honum. Meira »

Búast má við hvössum vindhviðum

04:34 Búast má við hvössum vindhviðum, 25-30 m/s, við fjöll suðaustan- og austanlands en á norðan og austanverðu landinu um og eftir hádegi. Annars verður vestan 8-15 og súld á köflum um vestanvert landið og dálítil slydda á stöku stað norðvestantil í fyrstu. Meira »

Dreifa peningum í samfélaginu

Í Húnaþingi.
05:30 Íbúar Húnaþings vestra njóta þess með ýmsum hætti að Landsbankinn hefur fellt niður lán sem sveitarfélagið tók vegna kaupa á stofnfé í sparisjóði sínum fyrir hrun. Peningar eru nú veittir til þarfra verkefna. Meira »

Andlát: Sigríður Guðmundsdóttir, Hvítanesi á Akranesi

Sigríður Guðmundsdóttir.
05:30 Sigríður Guðmundsdóttir, Sigga á Hvítanesi, lést á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi í fyrradag. Hún varð 102 ára að aldri.  Meira »

„Ég hef sjaldan verið jafnglaður“

Kristmundur Axel Kristmundsson söng og dansaði með Bláum ópal í Hörpu í gær.
Í gær, 23:53 „Við í Bláum ópal erum rosalega sáttir og þakklátir fyrir allan stuðninginn, þvílík snilld,“ segir Kristmundur Axel Kristmundsson, einn fjórmenninganna í Bláum ópal. Í bréfi sem hann sendi mbl.is eru endalausir broskarlar :-) enda segir Kristmundur Axel: „Ég hef sjaldan verið jafn glaður og bjartsýnn á lífið eins og núna.“ Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Polaris Fusion 2006 600 cc
Allur yfirfarinn. 121" x 15" x 36.mm, negling - Brúsgrind - Handahlífar. Með sna...
16" Bens álfelgur til sölu. Ótrúlegt verð.
Líta út eins og nýjar. Voru notaðar bara á sumrin fyrir Bens E320 2007. Verð : ...
4 stólar til sölu - mjög gott verð !
Þessir flottu stólar eru til sölu. 5.000 kr. stk. Upplýsingar í s. 663-5892....
Hyundai Starex 7.manna 06 4x4 krókur 2.8
Til Sölu glæsilegur 7.manna árg 06 4x4 krókur stigbretti frábær ferðabíll rúmgóð...
 
Íbúð fræðimanns
Tilkynningar
Umsóknir um dvöl í ...
Stúkan hamar
Félagsstarf
l HAMAR 6012020719 III...
Aðalfundur
Fundir - mannfagnaðir
Aðalfundur Aðalfundur F...
Skuðrhjúkrunarfræðingur
Heilbrigðisþjónusta
Mynd af auglýsingu ...