Vara við skuldsetningu Kópavogsbæjar
Miklar framkvæmdir hafa verið í Kópavogi sem þýtt hafa að skuldir bæjarfélagsins hafa aukist eftir að kreppti að í efnahagslífinu. mbl.is/Rax
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur sent Kópavogsbæ bréf þar sem varað er við mikill skuldsetningu sveitarfélagsins. Jafnframt er óskað eftir frekari upplýsingum um fjárhagsstöðuna.
Bréfið er sent í kjölfar yfirferðar nefndarinnar yfir ársreikning Kópavogsbæjar vegna ársins 2008. Rekstrarniðurstaða bæjarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var neikvæð um 9.620 millj.kr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 4.605 millj.kr. neikvæðri rekstrarniðurstöðu.
Ólafur Nilsson, formaður eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, segir að bréf nefndarinnar til Kópavogsbæjar sé sambærilegt og sent hafi verið til Hafnarfjarðarbæjar fyrir skömmu.
„Við vörum við mikilli skuldsetningu eins hjá fleiri sveitarfélögum sem við höfum verið að skoða. Við munum óska eftir frekari upplýsingum þegar ársreikningur 2009 liggur fyrir. Við munum óska eftir tíðari upplýsingum til að fylgjast með þróun mála,“ sagði Ólafur.
Ólafur sagði að það hefði sigið á ógæfuhliðina hjá sveitarfélögunum að undanförnu. Þau sem væru með erlend lán hefðu orðið fyrir miklu gengistapi og lánin því hækkað mikið. Kópavogsbær hefði verið í miklum fjárfestingum í nýjum framkvæmdum og lóðum sem ekki hefðu gengið að öllu leyti upp.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 13. október 2009, Innlent Bréf send til sveitarfélaga
- Þriðjudagur, 2. febrúar 2010, Innlent Ekki aðhafst frekar
- Fimmtudagur, 2. september 2010, Innlent 12 sveitarfélög fá aðvörun
- Fimmtudagur, 23. desember 2010, Innlent Aðhafast ekki frekar vegna fjármála Kópavogs
- Mánudagur, 6. september 2010, Innlent Segja Voga ekki glíma við skuldavanda
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































