Vegir eru víða auðir

Vegir í nágrenni höfuðborgarinnar eru auðir.
Vegir í nágrenni höfuðborgarinnar eru auðir. mbl.is/Júlíus

Vegir eru auðir á Suðausturlandi,  Suðurlandi  og  Vesturlandi. Hálkublettir eða snjóþekja eru á fáeinum heiðum og hálsum á Vestfjörðum. Þæfingur er á Hrafnseyrarheiði.

Vegir eru að heita má auðir á Norðurlandi vestra en austan Skagafjarðar og allt austur á Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðarheiði er víða nokkur hálka eða snjóþekja og sumstaðar él. Þæfingsfærð er á Hólasandi.

Á Austurlandi er mikið autt, þó eru hálkublettir á flestum fjallvegum en snjóþekja á Breiðdalsheiði.

Þungatakmarkanir
Þeim sérstöku þungatakmökunum sem verið hafa í gildi í Húnavatns. og Skagafjarðarsýslum verður aflétt á Þjóðvegi 1, Hvammstangavegi (72) og Sauðárkróksbraut (75) að Sauðárkróki frá og með kl 18:00 í dag.

Þungatakmarkanir eru  víða um land. Nánari upplýsingar má fá á heimasíðu Vegagerðarinnar og í síma 1777.

Akstur á hálendisvegum
Vegna mikillar bleytu er allur akstur bannaður á Arnarvatnsheiði og eins á Kili norðan Hveravalla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert