Fiskimjöl skráð sem hvalmjöl

Mjölið reyndist vera fsikimjöl og hafði ekkert með hval að gera. stækka

Mjölið reyndist vera fsikimjöl og hafði ekkert með hval að gera. Kristinn Ingvarsson

Rannsókn á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins hefur leitt í ljós að fréttir um útflutning á hvalamjöli til Danmerkur áttu ekki við rök að styðjast. Vegna mistaka við tollskýrslugerð hafði fiskimjöl verið skrá sem hvalmjöl.

„Við eftirgrennslan um meintan útflutning á hvalmjöli til Danmerkur kom í ljós að umrætt magn,  775 kíló í janúar 2009 og 22.750 kíló í mars 2009, var fiskimjöl sem vegna mistaka í tollskýrslugerð verið skráð á tollnúmer fyrir hvalmjöl. Viðkomandi fyrirtæki hefur nú leiðrétt mistökin.  Hagstofa Íslands mun í framhaldinu leiðrétta þetta á vef sínum þann 31. mars n.k. þegar endurskoðaðar lokatölur fyrir útflutning 2009 liggja fyrir. Íslensk yfirvöld munu einnig taka málið upp við yfirvöld í Danmörku,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu

Í febrúar 2010 var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti tilkynnt að íslenskt útflutningsfyrirtæki hefði flutt út 250 kíló af hrefnukjöti til Lettlands. Kjötinu hefði fylgt íslenskt CITES útflutningsvottorð eins og lög segja fyrir um. Hrefna er hjá CITES (alþjóðasamningi um verslun með dýr í útrýmingarhættu) skráð á Viðauka I, sem hefur í för með sér miklar hömlur á alþjóðaverslun. Ísland hefur gert fyrirvara við þessa listun fyrir sína hönd og er því ekki bundið reglum um verslun með hrefnu samkvæmt Viðauka I. Ísland hefur þó að eigin frumkvæði fylgt reglum sem gilda um tegundir á Viðauka II þegar kemur að verslun með hvalafurður. Reglur CITES um verslun með tegundir á Viðauka II gera kröfu um að útflutningsríki gefi út CITES-útflutningsvottorð, en engin lagaskilda er fyrir útflutningsland að krefjast innflutningsleyfis.


Engu að síður var haft samband við íslenska útflytjandann og honum tjáð að Lettland hefði ekki gert athugasemd við listun hrefnu á Viðauka I og þarlendum yfirvöldum óheimilt að  gefa út innflutningsvottorð fyrir farminum. Þar sem sendingin var farin úr land hafði útflytjandi samband við kaupandann úti og lét hann vita af þessu.


Í framhaldinu hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti verið með í athugun hvaða leiðir séu færar til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig og mun verða gripið til viðeigandi ráðstafana á næstunni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »
Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.

Veðurblíða víða um land

11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
Í gær, 16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
Í gær, 17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
Í gær, 16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

Í gær, 15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Kisi er týndur
Hann er hvítur og grábröndóttur og týndist í Fossvoginum. Hann er eyrnamerktur o...
BEAGLE HVOLPAR UNDAN VEL ÆTTUÐUM FORELDRUM
Beagle hvolpar undan vel ættuðum foreldrum eru að leita að góðum heimilum. Verða...
Dekurrófa til sölu - skoða skipti á jeppa
HÚSBÍLL TIL SÖLU skoða skipti á jeppa Fiat Joint 148 árg. 2005 ekinn 40 þús. ...
BAKPOKI SPLUNKUNÝR TIL SÖLU
Mjög góður og öflugur bakpoki til sölu ca 80-115L mörg hólf, fóðraðar ólar, regn...
 
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...