Ríkinu gert að greiða kennara bætur

Héraðsdómur Reykjavíkur. stækka

Héraðsdómur Reykjavíkur. mbl.is/Þorkell

  Íslenska ríkið var í gær dæmt til þess að greiða fyrrum framhaldsskólakennara 900 þúsund krónur í bætur auk dráttarvaxta vegna þess að ekki var gerður við hann ótímabundinn ráðningasamningur við Menntaskólann í Kópavogi líkt og hann átti rétt á samkvæmt lögum. Er ríkinu einnig gert að greiða honum 627.500 krónur í málskostnað. Hafði kennarinn farið fram á að fá greiddar rúmar 10 milljónir króna í bætur.

Kennarinn sem um ræður var ráðinn í lausa stöðu sögukennara við Menntaskólann í Kópavogi til eins árs frá 1. ágúst 2002 til 31. júlí 2003. Samningurinn var endurnýjaður frá 1. ágúst 2003 til 31. júlí 2004.

Haustið 2004 var enn á ný gerður tímabundinn ráðningarsamningur við kennarann í 100% starf frá 1. ágúst 2004 til 31. júlí 2005. Haustið 2005 var útbúinn ráðningarsamningur við hann sem átti að gilda frá 1. ágúst 2005 en kennarinn neitaði að skrifa undir þann samning.

Skólameistari MK útbjó á ný samning við sögukennarann sem átti að gilda frá 1. janúar 2006 til 31. júlí s.á. en kennarinn neitaði einnig að skrifa undir þann ráðningarsamning. Með tölvupósti 6. júní 2006 tilkynnti skólameistari Menntaskólans í Kópavogi að ekki gæti orðið af frekari ráðningu mannsins hjá skólanum og starfaði hann ekki við skólann eftir það.

Sögukennarinn kvartaði til umboðsmanns Alþingis í febrúar 2007 vegna fyrirkomulags ráðningar hans til kennslu við Menntaskólann í Kópavogi og starfsloka hans við skólann. Samkvæmt áliti umboðsmanns Alþingis 31. desember 2007 er það niðurstaða hans að sú ákvörðun Menntaskólans í Kópavogi haustið 2004 að bjóða honum aðeins tímabundinn ráðningarsamning eftir að hann hafði starfað við skólann samfellt í tvö ár hafi ekki verið í samræmi við ákvæði  laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

 Með bréfi Félags framhaldsskólakennara til Menntaskólans í Kópavogi 11. apríl 2008 var þess óskað að skólinn tæki afstöðu til þess með hvaða hætti yrði komið til móts við kennarann í ljósi álits umboðsmanns Alþingis.

Með bréfi lögmanns Menntaskólans í Kópavogi 22. maí 2008 var bótaskyldu hafnað og því höfðaði kennarinn málið gegn íslenska ríkinu.

Segir í niðurstöðu héraðsdóms að í  samræmi við lög verði fallist á það með kennaranum að hann hafi átt rétt á ótímabundinni ráðningu er hann var ráðinn áfram til kennslu við Menntaskólann í Kópavogi haustið 2004.

Þau sjónarmið skólans að ekki gæti komið til fastráðningar viðkomandi við skólann vegna minnkandi kennslumagns í sögu og breytinga á námskrá framhaldsskóla og skólaskrá skólans breyta engu í þessu efni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »
Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.

Veðurblíða víða um land

11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
Í gær, 16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
Í gær, 17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
Í gær, 16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

Í gær, 15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til leigu
Til leigu í sumar 3 herbergja íbúð í Grafarvogi GSM 8940458...
Aliner Expedition Nýskr 3/2008 Hlaðið aukabúnaði
Sólarsella Loftpúðafjöðrun, Nýtt fortjald, grjótgrind, 2 gaskútar, 2 rafgeymar. ...
TIL LEIGU
Til leigu nýinnréttuð skrifstofuherbergi í 104 Rvk. Securitas-öryggiskerfi. Tölv...
TRAKTORSDEKK
Traktorsdekk rýmingarsala 11.2-24 kr. 35.900. 14.9-24 kr. 49.900. 13.6-24...
 
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Tækniskólinn - atvinnuauglýsing
Önnur störf
Framúrskarandi kennarar óskast í ...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...