Samfylkingarkonur ánægðar með störf forsætisráðherra
Kvennahreyfing Samfylkingarinnar hélt ársþing sitt í Hveragerði í gær og lýsti þingið yfir ánægju með störf fyrsta kvenforsætisráðherra Íslandssögunnar, Jóhönnu Sigurðardóttur.
Í ályktun þingsins segir, að á liðnu ári hafi ríkisstjórn undir forystu Jóhönnu tekist á hendur eitt erfiðasta verkefni sem nokkur ríkisstjórn hafi staðið frammi fyrir, að endurreisa íslenskt efnahagslíf við afar erfiðar aðstæður. Mörg stór verkefni bíði en ekki megi gleyma að á sama tíma hafi margt áunnist í íslenskri kvennabaráttu.
„Kvennahreyfing Samfylkingarinnar vekur sérstaka athygli á fátækt og alvarlegri fjárhagsstöðu sem margar konur og börn þeirra búa við. Meirihluti öryrkja, aldraðra og láglaunafólks hér á landi er konur og þúsundir kvenna eru atvinnulausar. Þá eru einstæðir foreldrar í langflestum tilfellum konur. Konur og börn af erlendum uppruna eru í sérstakri áhættu fyrir félagslegri mismunun.
Sveitarstjórnir og ríkisvald skulu taka mið af þessum staðreyndum í ákvörðunum og aðgerðum sínum. En baráttan fyrir frelsi og réttindum kvenna einskorðast ekki við landsmálin. Miklu skiptir að ríkisstjórn undir forystu Samfylkingarinnar sé leiðandi í samstarfi og stuðningi við konur og samtök þeirra á alþjóðlegum vettvangi af framsýni og myndarbrag. Þá vill Kvennahreyfing Samfylkingarinnar brýna ríkisstjórn Íslands í því verkefni að vinna að friði og gegn stríðsrekstri hvers konar,“ segir meðal annars í samþykkt kvennahreyfingar Samfylkingarinnar.
Bloggað um fréttina
-
-
Jón Aðalsteinn Jónsson Kynjaskipt ánægja. -
Ólafur Ingi Hrólfsson Endemis kjaftablaður
Innlent »
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðaþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 27. mars 2009, Innlent Lýsa ánægju með störf Samfylkingar í ríkisstjórn
- Miðvikudagur, 8. september 2010, Innlent Þrír af sex flokksleiðtogum sátu kvöldverðinn
- Föstudagur, 25. mars 2011, Innlent Treysta þarf ráðningaferlið
- Sunnudagur, 27. júní 2010, Innlent Lýsa yfir stuðningi
- Fimmtudagur, 19. mars 2009, Innlent Dagur styður Jóhönnu
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá




































