Eldgosið færist í aukana
Þessi mynd er tekin frá Fljótsdal innst í Fljótshlíðinni nú í nótt. Gosið er líklega í Fimmvörðuhálsinum norðanverðum. mynd/Katrín Möller Eiríksdóttir
Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur færst í aukana, að sögn Þrastar Sigfússonar í Kirkjulækjarkoti. Hann fór að Fljótsdal, innsta bæ í Fljótshlíð ásamt Katrínu Möller Eiríksdóttur. Töluvert öskufall var frá Fljótsdal og að Barkarstöðum, að sögn þeirra Þrastar og Katrínar.
Öskufallið var eins og „brunninn pappír eða litlar snjóflyksur“. Þau Þröstur og Katrín hættu sér ekki út úr bílnum enda var óþægilegt að anda utan hans. Björgunarsveitarmenn báðu þau að fara af staðnum og urðu þau við því. Þröstur sagði að þeim hafi virst eldgosið vera við Fimmvörðuháls að norðanverðu.
Fréttir hafa borist af því að eldsbjarminn frá gosinu hafi sést í Mývatnssveit núna á þriðja tímanum í nótt en hann er horfinn nú.
Á vef Veðurstofunnar kemur fram að undanfarnar þrjár vikur hefur verið mikil virkni í Eyjafjallajökli og hafa skjálftarnir flestir mæst á 7 - 10 kílómetra dýpi. Í fyrradag (19. mars) hófst innskotshrina til austurs þar sem skjálftarnir mældust á 4 - 7 kílómetra dýpi. Virknin færðist frekar austur á bóginn fram til laugardags og mældust nokkrir grunnir skjálftar þann dag.
Um 22:30 í gær sást lítilsháttar aukning á óróa á þremur jarðskjálftastöðvum sem næstar eru Eyjafjallajökli og um svipað leyti bárust fregnir af því að gos væri hafið í jöklinum.
Á jarðskjálftamælum sést ekki mikill órói og um kl. 2.30 í nótt sást ekki enn gosmökkur á ratsjá Veðurstofunnar sem merkir að hann er ekki kominn í þriggja kílómetra hæð.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Bjarki Smárason Vafasamt að senda fólk til Víkur -
S i g u r ð u r Sigurðarson Gos á miðjum Fimmvörðuhálsi
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 21. mars 2010, Innlent Eldurinn sést úr Fljótshlíð
- Föstudagur, 5. mars 2010, Innlent Heldur dregur úr skjálftavirkni
- Föstudagur, 21. maí 2010, Innlent Gosið gengur upp og niður
- Sunnudagur, 21. mars 2010, Innlent Bjarminn hefur aukist
- Sunnudagur, 21. mars 2010, Innlent Ekki mikill gosmökkur
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































