Komast í morgunmjaltir
Bændur á hættusvæðum í Rangárvallasýslu fá að fara til síns heima í morgunsárið, eins og þeir hafa lagt mikla áherslu á. Þá verða þeir sem fara inn á skilgreind hættusvæði skráðir þegar þeir fara inn fyrir mörkin og aftur þegar þeir koma til baka.
Bændur hafa lagt mikla áherslu á þetta, að sögn Kjartans Þorkelssonar sýslumanns á Hvolsvelli, meðal annars til að komast í morgunmjaltir. Þeir hafa eðlilegar áhyggjur af stöðunni og hópur bænda úr Landeyjum sem var í skemmtiferð á Akureyri er væntanlegur til síns heima undir morgun, eftir að hafa farið náttfari að norðan.
„Ég er kominn um í kvistherbergi og núna sé bjarmann frá gossprungunni. Nei, það er ekki til í dæminu að ég sé hrædd,“ sagði Jóna Guðmundsdóttir á Kirkjulæk í Fljótshlíð í samtali við Mbl. fyrir stundu.
Fólki á bæjunum í innanverðri Fljótshlíð og öllum sem búa neðan vegarins sem liggur inn sveitina var gert að yfirgefa heimili sín. Kirkjulækjarbæirnir, sem eru nokkrir í sömu torfunni, standa hins vegar uppi í Hlíðinni, og því gat fólk þar haldið kyrru fyrir.
„Við hjónin vorum farin að sofa þegar gosið hófst en sonur var enn á fótum og vakti okkur upp. Þá sáum við mjög vel til gossprungunnar og eins sá dóttir mín sem var úti á Skeiðum það mjög vel. Nei, það er ekki til í dæminu að ég sé hrædd," sagði Jóna sem kvaðst búast við að búskapur á Kirkjulæk raskaðist ekki þrátt fyrir þetta og þau eiginmaður hennar, Eggert Pálsson, færu venju samkvæmt til mjalta í býtið.
Innlent »
Laugardagur, 11.2.2012
- „Ég er í skýjunum“
- „Mjög sérstök tilfinning“
- Jónsi og Greta til Bakú
- Úrslitakeppnin hafin í Hörpu
- Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka
- Fjör á 112-deginum á Húsavík
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðaþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 14. apríl 2010, Innlent Um 700 yfirgefa heimili sín
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Mánudagur, 22. mars 2010, Innlent Almannavarnir loka leiðum
- Mánudagur, 22. mars 2010, Innlent Litlar breytingar á gosinu í nótt
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
-
Fólk víða að minnast Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði ōðruvísi biskup
-
Lík Houston flutt af hótelinu
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað





































