Öruggara að sofa ekki heima
„Ég held að fæst okkar hafi sofið mikið í nótt,“ segir Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri. Hann er einn af um 50 íbúum á bæjum undir Eyjafjöllum sem rýma hafa þurft hús sín. Ólafur segir jákvætt að geta sofið á öruggu svæði í nótt.
Ólafur segir að það hafi komið ónotalega við menn að fá tilkynningu um nótt um að gos væri hafið. Menn hafi frekar átt von á að fá viðvörun um yfirvofandi gos. Hann segist í engum vafa um að menn fái betri svefn þegar þeir sofi á öruggu svæði en heima hjá sér þar sem viss hætta sé til staðar.
Stórt bú er á Þorvaldseyri og fengu bændur að fara heim kl. 7 í morgun til að mjólka. Aftur var farið í kvöld til að mjólka og gefa búfé. Tvær kýr báru í nótt og fékkst leyfi til að fara til að sinna þeim, en draga þurfti kálf úr annarri beljunni.
Ólafur segir að það veki athygli hvað skjálftarnir í kvöld séu svipaðir skjálftunum sem voru í gærkvöldi. Þeir séu fáir en heldur sterkari en þeir voru þegar óróinn var sem mestur fyrr í mánuðinum. Hann segist ekki hafa þekkingu til að túlka þetta en að þetta sé eitt af því sem íbúar horfi á og telji því tryggara að vera að heiman í nótt.
Þorvaldseyri er í 5-6 kílómetra fjarlægð frá gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi. Íbúar á bænum sáu vel gosbjarmann í nótt. Slæmt verður hefur hins vegar verið undir Eyjafjöllum í dag.
Bloggað um fréttina
-
Helena Mjöll Jóhannsdóttir Öruggara að sofa ekki heima.... -
Guðrún María Óskarsdóttir. Fátt erfiðara fyrir bændur en að yfirgefa bústofninn. -
Eyrún Huld Haraldsdóttir Hér er kýr um belju, frá belju, til belju?
Innlent »
Sunnudagur, 12.2.2012
- „Ég hef sjaldan verið jafnglaður“
- Böðuð ljósi og litum
- Meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram
- Hundrað þúsund meira í bensínskatt
- „Okkar dyr hafa alltaf staðið opnar“
- „Þjóðin valdi okkur“
- Blár ópal fékk flest atkvæði
- Gæslan bíður eftir skýrslu
- Vilja nýtt kúakyn til Íslands
- Ók á ljósastaur
- Hundur fastur í neti
- Hjartað í tónlist en höfuðið í lækningum
- Mikið annríki á Læknavaktinni
- Nálgast 30.000 undirskriftir
- Kjörin formaður Sambands ungra framsóknarmanna
- Bæta við strætóferðum á Suðurlandi
- Gæði röntgenmynda margfaldast
- Nefbrotinn eftir árás
- 17 kýr mjólkuðu yfir 10 þúsund kíló
- Börnin uppgötva undraheima Legó
- Evrópusambandið kynnir sig sjálft
- SUF vill draga ESB-umsóknina til baka
- Vilja efla siðferði í stjórnmálum
- Enginn með einkarétt á Samstöðu
-
Yrði öðruvísi biskup
- Handteknir fyrir að keyra á mann
- Hefur hátt í fangaklefa
Laugardagur, 11.2.2012
- „Ég er í skýjunum“
- „Mjög sérstök tilfinning“
- Jónsi og Greta til Bakú
- Úrslitakeppnin hafin í Hörpu
- Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka
- Fjör á 112-deginum á Húsavík
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðarþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 18. nóvember 2010, Innlent Í lóninu leynast þúsund rúmmetrar af sandi
- Þriðjudagur, 25. ágúst 2009, Innlent Þreskja repju á Þorvaldseyri og ætla að vinna olíu
- Fimmtudagur, 10. júní 2010, Innlent Suðurlandsvegur slapp naumlega
- Miðvikudagur, 14. apríl 2010, Innlent „Stórflóð við Þorvaldseyri“
- Miðvikudagur, 14. apríl 2010, Innlent Leit illa út í nótt
-
Átök í Aþenu
-
Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni
-
Adele fékk sex Grammy-verðlaun
-
Benedikt: Stóðumst áhlaup Stjörnunnar
-
Skemmdarverk verða ekki liðin
-
Léttist um rúmlega 60 kíló
-
Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði
-
Aron: Frábær vörn og markvarsla
Nauðungarsala
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Bæjarhraun...



































