Fréttaskýring: Ertir Eyjafjallajökull gömlu skessuna?

Eldstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi í morgun. stækka

Eldstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi í morgun. mbl.is/KÖK

Morgunblaðið eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is

Eyjafjallajökull gaus síðast 1821-1823 þannig að hann hvíldi sig vel og lengi, að vísu voru svonefnd kvikuinnskot undir fjallinu árið 1999 en ekkert gaus. Að þessu sinni gýs á Fimmvörðuhálsi, sem er hluti af sömu eldstöð. Ljóst er að virknin getur færst undir ísinn með tilheyrandi flóði ef sprungan lengist. Önnur hætta er þó enn ófrýnilegri: Katla, skessan ægilega sem svo oft hefur valdið geysilegu tjóni.

Enn eru á lífi Íslendingar sem muna eftir gosinu 1918 en það eyddi mörgum bæjum. Ef tekið er mið af sögunni er þegar liðinn óvenjulangur tími frá síðasta Kötlugosi og hafa Almannavarnir gert miklar ráðstafanir til að búa sig undir flóðin og öskufallið.

Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur hefur bent á að mikil tengsl séu á milli eldstöðvanna í jöklunum tveim en rannsóknir bergfræðinga sýni að ekki sé þó um sömu eldstöðina að ræða. Kvikuinnskot undir Eyjafjallajökli gætu vakið Kötlu af blundi, virkað eins og gikkur, segir Páll. Hann minnir á að Katla hafi gosið 1823 í kjölfar Eyjafjallajökuls.

„Þetta gos er í fullum gangi núna og við fylgjumst vel með,“ segir Páll. „Atburðarásin getur tekið ýmsar stefnur, þess vegna er svo mikilvægt að fylgjast vel með öllu. Það er vel hugsanlegt næsta þrep að Katla taki eitthvað við sér en hún hefur ekki gert það enn. Liðið gætu nokkrar vikur eða mánuðir áður en hún gerir það. Þrýstingur undir Eyjafjallajökli hefur verið að aukast undanfarið, kvika hefur verið að troða sér upp og þá tútnar fjallið út og lyftist. Katla verður þá fyrir hliðarþrýstingi. Frá vísindalegu sjónarhorni er mjög forvitnilegt að fylgjast með þessu. “

Sagt var fyrir um Grímsvatnagos

Gosið á Fimmvörðuhálsi var óvænt, þar munu ekki hafa verið eldsumbrot í þúsundir ára. Einnig vakti athygli að gosið hófst án þess að þess sæjust strax merki á jarðskjálftamælum Veðurstofu Íslands. En Páll segir að síðustu 30 árin hafi orðið miklar framfarir í að segja fyrir um gos, ávallt sé þó erfitt sé spá um Heklugos. Í reynd sé nú spáð með einhverjum fyrirvara um allt að 70% allra eldgosa hérlendis og varað við.

Eftir gosið í Heimaey 1973 hafi menn fyrst farið að nota verulega næma jarðskjálftamæla. Beitt sé einnig GPS-tækjum og nýjum ratsjám sem sýni þróunina með mikilli nákvæmni og þetta skipti ekki síst máli þegar fólk fjalli um hættuna af Kötlu. Mjög vel hafi tekist að segja fyrir um þróun mála í Grímsvötnum 2004, fyrst með langtímaspá og loks með spá um gos rétt áður en það hófst.

„Við stöndum í allt öðrum sporum en við gerðum fyrir bara 25 árum,“ segir Páll. Hann minnir á að þótt Katla sé hættuleg verði Íslendingar að sætta sig við að lifa með eldfjöllunum. Ekki megi gleyma að eldurinn sem þau minna okkur stöðugt á sé líka undirstaða einnar af stærstu auðlindum okkar, jarðvarmans.

S&S

Hvað er langt milli gosa hér?

Að meðaltali líða um þrjú ár milli eldsumbrota en um fimm ár milli umtalsverðra gosa.

Hvers vegna gýs oft hér?

Landið liggur á „heitum reit“ á Mið-Atlantshafssprungunni þar sem ávallt er mikil eldvirkni. Hve mörg virk eldfjöll eru hér?

Um 20 fjöll hafa gosið eftir að land byggðist á 9. öld og þau eru því örugglega virk. En alls eru eldfjöll hér um 130. Hvað gerist ef gýs undir jökli?

Ísinn bráðnar mjög hratt og geysimikið vatnsflóð rennur til sjávar. Það gerðist þegar Katla gaus 1918 og í Vatnajökulsgosinu 1996. Hvað gerist þetta hratt?Það fer eftir aðstæðum. Ef gos yrði undir Eyjafjallajökli er hugsanlegt að hlaup gæti náð byggð á aðeins 15-30 mínútum. Hvað er vatnsmagnið mikið?

Gæti orðið allt að 30.000 rúmmetrar á sekúndu. Það er samt enn meira í Skaftárhlaupum. Hvað er langt milli Kötlugosa?

Líklegt er að síðustu aldir hafi liðið að jafnaði um 13 ár milli gosa. Nú eru hins vegar liðin 92 ár frá síðasta gosi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Negld vetrardekk til sölu
Stærð: 195/65 R15, lítið notuð. Kosta 75 þús. ný, seljast á 40 þús. stgr. Upplýs...
Til sölu Volvo 940GL árg.91, nýskoðaður
Til sölu Volvo 940GL árg.91, 5 cylindra, 2.4, nýskoðaður, sjálfskiptur, leður sæ...
Heimili í borginni- www.eyjasolibudir.is
Til Leigu fallegar 2-3ja herb. íbúðir í Rvík. Rúm fyrir 2-6. Allt til alls, sæng...
Hyundai Tuscon, 750.000 afsláttur
Til sölu gott eintak 06/2008 silfurgrár bensínbíll, vél 1975cc, fjórhjóladrifinn...
 
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Útboð nr. 20091
Tilboð - útboð
Útboð nr. 20091 Glerskipti...