Þingfesting í nauðgunarmáli

Maðurinn kom sér í samband við stúlkurnar á samskiptavefnum Facebook. stækka

Maðurinn kom sér í samband við stúlkurnar á samskiptavefnum Facebook. Árni Sæberg

Mál á hendur karlmanni sem nálgaðist ungar stúlkur í gegnum samskiptavefinn Facebook og beitti þær kynferðislegu ofbeldi verður þingfest í dag. Maðurinn er ákærður fyrir tvö kynferðisbrot en hugsanlegt er að gefin verði út framhaldsákæra vegna tveggja brota til viðbótar.

Réttarhaldið fer fram fyrir luktum dyrum og ákæran fæst ekki afhend. Samkvæmt heimildum mbl.is er annars vega ákært fyrir nauðgun og frelsissviptingu en í því tilviki var um að ræða sextán ára stúlku. Hins vegar er ákært fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni yngra en fimmtán ára.

Maðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi frá síðasta ári. Hæstiréttur hefur ætíð staðfest gæsluvarðhaldsúrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur og má í þeim lesa „sláandi lýsingar“ svo notuð séu orð úr úrskurðinum. Án þess að farið sé djúpt ofan í þær lýsingar kemur fram að maðurinn sló aðra stúlkuna í andlitið þar sem hún stundi ekki nógu hátt.

Einnig ákært fyrir mjög gróft barnaklám

Auk ákærunnar sem þingfest verður eftir hádegið á ríkissaksóknari eftir að taka afstöðu til mála tveggja annarra stúlkna, sem grunur leikur á maðurinn hafi brotið gegn. Verði ákæra gefin út er líklegt að ákært verði fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn börnum.

Við rannsókn á tölvubúnaði mannsins fannst myndefni sem talið er benda til afbrigðilegra kynhvata ákærða og augljóst þyki að hann hafi ekki taumhald á þeim. Að mati rannsakenda er talið fíkniefnaneysla mannsins hafi þar einhver áhrif. Einnig er ákært vegna þessa efnis, en á meðal þess eru hreyfimyndir sem hafi að geyma barnaklám þar sem sjá megi stúlkubörn beitt grófu kynferðisofbeldi, svokölluðu BDSM.

Að endingu er maðurinn ákærður fyrir innbrot, þjófnaðarbrot, gripdeildir, umferðarlagabrot og fíkniefnabrot. Ljóst þykir að maðurinn hafi framfleytt sér með afbrotum.

Allt að sextán ára fangelsi

Brot mannsins eru litin afar alvarlegum augum, enda hafi hann yfirburði í aldri og þroska fram yfir stúlkurnar.  Þá sé það talið endurspegla aukinn ásetning mannsins að hann láti ekki segjast og hafi ekki liðið nema vika frá því að hann var yfirheyrður vegna meints kynferðisbrots gegn ungri stúlku og þar til hann hafði sett sig í samband við þá næstu.

Verði hann sakfelldur varða brot hans allt að sextán ára fangelsisrefsingu.

Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir manninum

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.

Meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

20:10 54% Íslendinga vilja að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér sem forseti landsins. Þetta sýnir ný könnun sem sagt var frá í fréttum Stöðvar tvö í kvöld. Meira »

Hundrað þúsund meira í bensínskatt

19:04 Venjuleg fjölskylda greiðir ríkinu hundrað þúsund krónum meira á ári í bensínskatta nú en fyrir fjórum árum. Sá hluti kaupverðsins sem olíufélögin fá til sín hefur hækkað um 87% á sama tíma. Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld. Meira »

„Okkar dyr hafa alltaf staðið opnar“

Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir, þingmenn Hreyfingarinnar, eru meðal þeirra sem stofna Breiðfylkinguna.
18:57 „Mér finnst að það ætti að íhuga mjög vandlega. Okkar dyr hafa alltaf staðið opnar,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, eftir fyrri stofnfund nýju hreyfingarinnar sem gengur undir vinnuheitinu Breiðfylkingin. Hún var spurð að því hvort ekki kæmi til greina að nýju stjórnmálaöflin sem fram hafa komið að undanförnu gætu boðið fram saman. Meira »

Blár ópal fékk flest atkvæði

Kristmundur Axel Kristmundsson, syngur með Bláum ópal í Hörpu í gærkvöldi.
18:16 Lagið Stattu upp í flutningi strákasveitarinnar Blás ópals fékk flest atkvæði í símakosningu Söngvakeppni Sjónvarpsins í gærkvöldi. Lagið fékk 700 fleiri atkvæði en lagið sem vann, Mundu eftir mér. Meira »

Vilja nýtt kúakyn til Íslands

Arnar Bjarni Eiríksson, sem rekur eitt stærsta kúabú landsins í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
17:49 Bændurnir í Gunnbjarnarholti og á Skáldabúðum vilja flytja inn nýtt kúakyn til landsins sem allra fyrst. Arnar Bjarni Eiríksson, sem rekur bæði búin ásamt konu sinni Berglindi Bjarnadóttur, segir nýtt kúakyn vera forsendu þess að kúabændur geti þróað mjólkurframleiðslu sína. Meira »

„Þjóðin valdi okkur“

Blár Ópal í Hörpu í gær. Hljómsveitina skipa þeir Franz Ploder Ottósson, Pétur Finnbogason, Agnar ...
18:31 „Þjóðin valdi okkur, það er mjög gaman að vita af öllum þessum stuðningi almennings,“ sagði Franz Ploder Ottósson, einn fjórmenninganna í Bláum ópal, eftir að fréttir bárust um að lagið þeirra, Stattu upp, hefði fengið flest atkvæði í símakosningunni í Söngvakeppni Sjónvarpsins í gær. Meira »

Gæslan bíður eftir skýrslu

Þór á siglingu.
17:56 Sérfræðingar á vegum Rolls Royce reyna nú að finna orsök bilunar í nýju varðskipi Landhelgisgæslu Íslands sem kom til hafnar í Bergen í Noregi sl. miðvikudagskvöld. Meira »

Ók á ljósastaur

17:29 Umferðaróhapp varð á Laugarnesvegi um kl. 14 í dag. Lögreglan fór á staðinn en ökumaður bifreiðarinnar hafði ekið á ljósastaur. Enginn slasaðist en bíllinn er skemmdur og óökuhæfur. Var hann fjarlægður af slysstað með kranabifreið. Meira »

Hundur fastur í neti

Hundur af border collie-kyni.
17:13 Lögreglan fékk í morgun tilkynningu um hund sem var fastur í netadræsum við Ægisgarð. Lögregla og tækjabíll frá slökkviliði fór á vettvang. Búið var að bjarga hundinum úr netunum og var hann frekar þjakaður en glaður björguninni. Meira »

Mikið annríki á Læknavaktinni

15:33 Mikið annríki hefur ríkt á Læknavaktinni um helgina, og nánast stöðugur straumur fólks. Sökum þessa hefur biðtími lengst og kalla þurfti út lækna bæði í gær og í dag. Upplýsingar um hvað helst er að hrjá landann liggja þó ekki fyrir. Meira »

Hjartað í tónlist en höfuðið í lækningum

Magni Ásgeirsson söng lag Sveins Rúnar, Hugarró, af mikilli innlifun.
16:12 Síðustu vikurnar hefur lagahöfundurinn Sveinn Rúnar Sigurðsson, sem átti tvö lög í úrslitakeppni Söngvakeppni sjónvarpsins í gærkvöldi, starfað við lækningar á Heilsugæslunni í Árbæ á daginn og sinnt undirbúningi Evróvisjón á kvöldin. Meira »

Nálgast 30.000 undirskriftir

Skorað er á forsetann að gefa áfram kost á sér til embættis.
15:19 Undirskriftum fjölgar enn á vefsíðunni Áskorun til forseta þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að gefa áfram kost á sér til embættis í komandi forsetakosningum. Meira »

Kjörin formaður Sambands ungra framsóknarmanna

Ásta Hlín Magnúsdóttir
15:18 Ásta Hlín Magnúsdóttir var í dag kjörin nýr formaður Sambands ungra framsóknarmanna. Ásta Hlín fékk 32 atkvæði eða 53%. Mótframbjóðandi hennar, Ragnar Stefán Rögnvaldsson, fékk 28 atkvæði eða 47%. Meira »

Gæði röntgenmynda margfaldast

Lesið úr röntgenmyndum á Landspítalanum í Fossvogi. Mynd úr safni.
15:06 Tekinn hefur verið í notkun stafrænn búnaður til framköllunar á röntgenmyndum á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga. Þessi nýju tæki koma í stað gamalla tækja sem voru úr sér gengin og nær ónýt. Meira »

17 kýr mjólkuðu yfir 10 þúsund kíló

14:50 Þær voru duglegri að mjólka í fyrra, kýrnar í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu, en árið á undan. Í fyrra mjólkuðu sautján kýr yfir 10 þúsund kíló en árið 2010 voru þær aðeins fimm. Meira »

Bæta við strætóferðum á Suðurlandi

Mjóddin er upphafs- og endastaður Suðurlandsstrætósins.
15:10 Frá og með deginum í dag verða gerðar nokkrar breytingar á akstri Strætó bs. á Suðurlandi. M.a. verður bætt við hádegisferð frá Reykjavík á Selfoss og til baka til Reykjavíkur, tekinn upp akstur í Reykholt og bætt við ferð frá Vík til Hafnar á þriðjudögum. Meira »

Nefbrotinn eftir árás

Maðurinn var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl.
15:04 Karlmaður var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala snemma í morgun eftir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu sagðist maðurinn hafa orðið fyrir árás tveggja manna sem hann kunni ekki deili á, ekki hefur tekist að hafa uppi á þeim. Maðurinn er talinn nefbrotinn. Meira »

Börnin uppgötva undraheima Legó

Börnin skemmtu sér hið besta við að búa til alls kyns byggingar úr kubbunum.
14:05 Gríðarleg umferð hefur verið í Ráðhúsi Reykjavíkurborgar um helgina en þar er sýningin Undraheimar Legó sett upp. Yngstu kynslóðinni gefst þar kostur á að gleyma sér framkvæmdum með fjölmarga Legó-kubba. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
PARSUN - UTANBORÐSMÓTORAR - GÆÐI Í GEGN
Eigum á lager á góðu verði eftirfarandi stærðir: 2,6 hp 5 hp 15 hp 25 hp Al...
Heil/parta nudd sniðið að þínum þörfum.
Lúxus dekur þar sem þú velur áherslusvæði t.d. herðar, herðablöð, háls, axilir, ...
Rafstöðvar 5 kw diesel
Eigum á lager 5 kw diesel rafstöðvar á fínu verði. Einnig 2,8 kw bensin rafstöðv...
Queen size rúm úr Rekkjunni
Hef til sölu um 2 ára rúm frá Rekkjunni. 153*203. Sér ekki á rúminu. Verð 80.000...
 
Bifreiðauppboð
Nauðungarsala
Uppboð Eftirtaldar bifreiðir ver...
Sýslumaðurinn í keflavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Til sölu
Tilboð - útboð
Til sölu Sveitarfélagi...