Sex sækja um brauð á Akureyri

Akureyrarkirkja
Akureyrarkirkja Ómar Óskarsson

Sex sóttu um embætti prests í Akureyrarprestakalli í Eyjafjarðarprófastsdæmi en umsóknarfrestur rann út þann 18. mars. sl. Samkvæmt Dagskránni er um að ræða stöðu séra Óskars Hafsteins Óskarssonar, sem hefur verið ráðinn prestur við Selfossprestakall.

Umsækjendur samkvæmt Dagskránni eru: séra Guðmundur Guðmundsson, cand. theol. Haraldur Örn Gunnarsson, séra Hildur Eir Bolladóttir, séra Jóna Lovísa Jónsdóttir,  cand. theol. Salvar Geir Guðgeirsson og  cand. theol. Sveinbjörn Dagnýjarson. 

Mun Biskup Íslands skipa í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipa níu manns úr prestakallinu ásamt prófasti Eyjafjarðarprófastsdæmis. Embættið veitist frá 1. júní 2010.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert