Sjö doktorar fá styrk úr Eggertssjóði

Háskóli Íslands stækka

Háskóli Íslands Ómar Óskarsson

Sjö nýdoktorar við Háskóla Íslands hafa hlotið styrk til rannsóknaverkefna úr Eggertssjóði. Markmið sjóðsins er að styrkja rannsóknir á sviði jarðfræði og líffræði. Styrkupphæð nemur samtals sex milljónum króna, samkvæmt tilkynningu frá HÍ.

Styrkhafar eru: Bergrún Arna Ólafsdóttir og Eyjólfur Magnússon frá Jarðvísindadeild, Brynhildur Thors, Lena Rós Ásmundsdóttir og Stefán R. Jónsson frá Læknadeild og Valerie H. Maier og Ægir Þór Þórsson frá Líf- og umhverfisvísindadeild.

Eggertssjóður var stofnaður af Háskóla Íslands árið 1995. Eggert V. Briem, (f. 18. ágúst 1895, d. 14. maí 1996), ánafnaði Háskóla Íslands í erfðaskrá sinni eignir, erlend verðbréf og fjárhæð á gjaldeyrisreikningi. Eggert styrkti um áratuga skeið margvísleg vísindaverkefni við Háskóla Íslands.

Rannsóknaverkefni Bergrúnar Örnu Ólafsdóttur í felst í að meta stærð ákveðinna basískra sprengigosa á nútíma og að byggja upp gagnagrunn um gjóskulög á Íslandi. Basísk sprengigos, sem eiga sér stað undir jökli, hafa verið ein algengustu eldgos á Íslandi en þrátt fyrir það er lítið vitað um stærð þessara eldgosa. Vegna hárrar tíðni eldgosa sem skilja eftir sig gjóskulög mun gagnagrunnurinn ná yfir stóran hluta þeirra eldgosa sem hafa orðið hérlendis á nútíma.

Rannsóknaverkefni Brynhildar Thors felst í því að kanna hvernig myndun nituroxíðs í æðaþeli er stjórnað. Skert æðaþelsstarfsemi, oft tengd truflun í myndun nituroxíðs, er orsakavaldur í mörgum algengustu og alvarlegustu sjúkdómum samtímans. Þetta á t.d. við í kransæðasjúkdómum, heilablóðföllum, útæðasjúkdómum, háþrýstingi og sykursýki.

Rannsóknaverkefni Eyjólfs Magnússonar snýst um kanna ísflæði og kelfingu Breiðamerkurjökuls. Kelfing á sér stað þegar skriðjöklar mynda kálfa sem ganga fram í sjó eða lón, og brotna af jöklinum. Ísbjörgin fljóta þá sjálfstæð. Sérstaklega verður skoðað hvaða áhrif þættir eins og hop jökulsins á undanförnum árum og vatnsrennsli undir jökli hafa á hreyfingu hans. Rannsóknin er unnin með samfelldum GPS-mælingum og fjarkönnun úr gervitunglum.

Rannsóknaverkefni Lenu Rósar Ásmundsdóttur felst í því að kanna mögulega ættlægni Candida-gersveppasýkinga og einnig að skoða faraldursfræði blóðsýkinga af völdum Candida-gersveppa hér á landi. Tíðni alvarlegra sýkinga af völdum Candida hefur aukist á síðustu áratugum. Dánartíðni sem rekja má beint til slíkra sýkinga er mjög há og hafa horfur ekki batnað þrátt fyrir framfarir á ýmsum sviðum læknisfræði. Niðurstöður rannsóknarinnar gætu nýst til að bæta meðferð og fyrirbyggja þessar lífshættulegu sýkingar.

Rannsóknaverkefni Stefáns R. Jónssonar í felst í því að kanna innbyggðar varnir lífvera gegn retróveirusýkingum. Tiltekin prótein geta hindrað retróveirusýkingar og í rannsókninni verður sjónum beint að samspili þessara próteina við veirupróteinin. HIV-veiran tilheyrir retróveirum en sú ætt veira hefur verið mikið rannsökuð. Þegar retróveira sýkir frumu innlimar litningur sýktu frumunnar erfðaefni veirunnar. Innlimað erfðaefni veirunnar verður eftir það varanlegur hluti af erfðaefni frumunnar.

Rannsóknaverkefni Valerie H. Maier felst í því að rannsaka virkni peptíða úr þorski gegn mismunandi bakteríum. Peptíð gegna lykilhlutverki í ónæmiskerfi spendýra. Magn ákveðinna peptíða í fiskum eykst við sýkingu og athyglisvert er að peptíðin eru til staðar strax eftir klak úr eggjum. Þessar niðurstöður benda til þess að peptíðin gegni mikilvægu varnarhlutverki gegn sýkingum í fiskum. Aukið magn af bakteríudrepandi peptíðum í fiskum í fiskeldi gæti virkað sem vörn gegn sjúkdómum.

Rannsóknaverkefni Ægis Þórs Þórssonar felst í því að einangra tegundasérhæfða DNA-þreifara úr erfðamengi ilmbjarkar og fjalldrapa. Þreifarana má nota til að meta genaflæði innan genamengis íslenskra birkitegunda. Þannig verður hægt að greina uppruna litninga og genamengis raða hjá tegundablönduðu birki og fjalldrapa auk þess sem hægt verður að meta samsetningu genamengjanna. Með þessu móti verður hægt að skoða hversu mikið erfðaefni tegundablendingur hefur frá hvoru foreldri. Niðurstöðurnar verða svo tengdar útliti plantnanna og frjósemi, að því er segir í fréttatilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HREINSA ÞAKRENNUR
Hreinsa þakrennur, laga ryðbletti, hreinsa garða og tek að m...
Tilboð á Oolong- og Pu-erh tei
Er líka á Facebook: Tesíða Jónínu Ragnars http://www.facebook.com/profile.php...
VW TOUAREG V6 TDI
Tilboð 4.200 þ. kr. Ásett 4.600 þ. kr., árg.2005, akst. 110.000 km. Álfelgur, au...
Íbúð til leigu í Garðinum
4 herbergja Íbúð til leigu í Garðinum á Suðurnesjum. Laus 1. júlí. Langtímaleiga...
 
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Atvinnuhúsnæðitil leigu eða sölu
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði Til leig...
Einstakt atvinnutækifæri
Til sölu
Einstakt atvinnutækifær...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...