Fréttaskýring: Fullgilding rétt handan við hornið

Tekið er á mansali í Palermó bókuninni stækka

Tekið er á mansali í Palermó bókuninni mbl.is/Árni Sæberg

Morgunblaðið Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is

Gengið verður frá því á næstu dögum að Ísland fullgildi formlega Palermó-samninginn rúmum níu árum eftir að hann var undirritaður. Nú á vorþinginu verður lögð fram þingsályktun um fullgildingu mansalsbókunar Palermó-samningsins.

Samþykkt var á ríkisstjórnarfundi sl. þriðjudag að leggja fram tillögu til þingsályktunar um fullgildingu mansalsbókunar við Palermó-samninginn sem samþykkt var af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 2000. Hátt í tvö ár eru síðan Alþingi samþykkti að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd Palermó-samninginn gegn fjölþjóðlegri skipulagðri glæpastarfsemi. Sem liður í því hefur verið komið á aðgerðaráætlun gegn mansali auk þess sem gerðar voru nauðsynlegar breytingar á almennum hegningarlögum í desember sl. Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á hegningarlögum hafði raunar verið lagt fram þrjú síðustu löggjafarþing þar áður án þess að hljóta afgreiðslu.

Hjá Urði Gunnarsdóttur, fjölmiðlafulltrúa utanríkisráðuneytisins, fengust þær upplýsingar að í reynd uppfyllti Ísland nú þegar Palermó-samninginn en gengið yrði frá formlegum fullgildingarskjölum vegna þessa á allra næstu dögum. Spurð hvers vegna ákveðið hafi verið að skilja að annars vegar Palermó-samninginn og hins vegar Palermó-bókunina segir hún það hafa verið gert þar sem ekki hafi skýrst fyrr en nýverið að búið væri að gera allar nauðsynlegar lagabreytingar hérlendis til þess að Ísland geti fullgilt hvort tveggja en í millitíðinni hafi menn ekki viljað tefja fullgildingu Palermó-samningsins.

Í samtali við Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformann Samfylkingarinnar, segist hann fastlega reikna með því að fyrrgreind þingsályktun um mansalsbókun Palermó-samningsins fáist samþykkt á Alþingi nú á vormánuðum og því sé þess ekki langt að bíða að Ísland fullgildi formlega bæði samninginn og bókunina.

 Leiðrétta hlut kvenna

Kolbrún Halldórsdóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Vinstri grænna, fagnar því að Ísland skuli loks formlega vera að fullgilda Palermó-samninginn og meðfylgjandi bókun. Frá árinu 2003 mælti hún reglulega fyrir lagafrumvarpi á Alþingi um fórnarlamba- og vitnavernd til handa fórnarlömbum mansals sem í grunninn byggðist á ákvæðum mansalsbókunar Palermó-samningsins án þess að það hlyti hljómgrunn.

„Það er alveg greinilegt að hugmyndafræði kvenfrelsis og femínisma, sem hefur átt góða fótfestu í báðum stjórnarflokkunum, skiptir sköpum þegar kemur að breytingum á þessu sviði. Enda er það stefna þessara flokka að leiðrétta hlut kvenna vítt og breitt í samfélaginu og hluti af þeirri leiðréttingu er að koma þessum málum öllum í lag,“ segir Kolbrún. Segist hún skynja ákveðna hugarfarsbreytingu í íslensku samfélagi og tengir það m.a. við þau sterku viðbrögð sem urðu við klámráðstefnunni á sínum tíma. „Þá var eins og fólk áttaði sig allt í einu á tengslunum milli klámiðnaðarins, vændis, nektardansstaða og mansals,“ segir Kolbrún.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
ELTAK - VOGIR
Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum. Bjóðum mesta úrval á Íslandi af s...
Óska eftir utanborðsmótor 60 til 90 Hp
Óska eftir utanborðsmótor 70 til 90 hp á sanngjörnu verði! e mail: bjoggi11@ma...
Plexiform Dugguvogi 11 104 simi 5553344
Póstkassar reyklitaðir, hvítir, svartir og trékassar. Bæklingavasar á borð og á ...
Chesterfield sófasett til sölu!
Vel með farið 10 ára gamalt Chesterfield sófasett 3+1+1 til sölu. Uppl í síma 86...
 
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Bl atvinnuaugl
Önnur störf
HYUNDAI FLYTUR Í NÝJA OG GLÆSILEGA FRAMT...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...