Segja slökkviþjónustu standast allar kröfur
Reykjavíkurflugvöllur. mbl.is
Flugstoðir ítreka að slökkvi- og björgunarþjónusta á Reykjavíkurflugvelli standist allar kröfur Flugmálastjórnar Íslands og séu í samræmi við alþjóðasamninga. Fram kemur í tilkynningu frá Flugstöðum að ummæli slökkviliðsstjóra Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins um annað sé tilhæfulaus hræðsluáróður.
Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins (SHS), hótaði því í dag að loka Reykjavíkurflugvelli á næstu dögum fallist Flugstoðir ohf., sem reka völlinn, ekki á kröfur slökkviliðsins um mönnun brunavarna á flugvellinum sem og þjálfunarkröfur.
Eftirfarandi er tilkynning Flugstoða:
„Slökkviliðsmenn frá Slökkviliði Keflavíkurflugvallar hafa sinnt slökkvi- og björgunarþjónustu á Reykjavíkurflugvelli frá síðustu mánaðamótum. Þeir uppfylla allar kröfur sem gerðar eru vegna þeirra starfa.
Í þau tíu ár sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) sinnti slökkvi- og björgunarþjónustu á Reykjavíkurflugvelli var tryggt að þrír slökkviliðsmenn væru að lágmarki á vakt að degi og tveir að næturlagi. Í samningaviðræðum milli Flugstoða og SHS varðandi hugsanlega áframhaldandi verktöku SHS á viðbúnaðarþjónustu á Reykjavíkurflugvelli var lagt til að fækkað yrði um einn starfsmann á vakt.
Meðal forsendna fyrir fækkun starfsmanna er stórbættur tækjakostur á flugvellinum sem er einfaldari í notkun en áður var og krefst minni mannafla. Lágmarksmönnum slökkvi- og björgunarþjónustu Reykjavíkurflugvallar hefði þá orðið tveir að degi og einn að næturlagi. Slökkviliðsstjóri SHS gerði engar athugasemdir við þá fækkun í þeim viðræðum. Samningar tókust hins vegar ekki. Í dag er krafa slökkviliðsstjóra um að lágmarksmönnun skuli vera fjórir slökkviliðsmenn á vakt. Þessi nýja afstaða slökkviliðsstjóra kemur Flugstoðum verulega á óvart.
Slökkvi- og björgunarmál á flugvöllum eru á forræði Flugmálastjórnar Íslands, sem heyrir undir samgönguráðuneytið. Það er ráðuneytisins að setja reglur um slökkvi- og björgunarmál flugvalla. Samkvæmt lögum getur slökkviliðsstjóri SHS því ekki tekið stjórnvaldsákvörðun varðandi slökkvi- og björgunarmál á Reykjavíkurflugvelli eins og hann hyggst gera.
Flugstoðir ítreka að slökkvi- og björgunarþjónusta á Reykjavíkurflugvelli stenst allar kröfur Flugmálastjórnar Íslands og eru í samræmi við alþjóðasamninga,“ segir í tilkynningu frá Flugstoðum.





































