Bjartsýnn eftir fund með Strauss-Kahn

Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði eftir fund með Dominique Strauss-Khan, framkvæmdatjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,  að hann væri ágætlega bjartsýnn á að stjórn sjóðsins muni afgreiða innan skamms tíma endurskoðaða efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins síðdegis en mbl.is hefur ekki náð tali af Steingrími eftir fundinn, sem haldinn var í Washington og Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, sat einnig.

Haft var eftir Steingrími að hvorki staða Icesave-málsins né spurning um lán frá Norðurlöndunum eigi að koma í veg fyrir endurskoðun á efnahagsáætluninni.

Steingrímur sagði við Morgunblaðið í dag eftir að hafa átt fundi með fulltrúum nokkurra landa í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, að vonir standi til að endurskoðuninni ljúki í apríl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert