Búist við mikilli umferð í dag

Gosið blasir við þegar komið er upp á Mýrdalsjökul.
Gosið blasir við þegar komið er upp á Mýrdalsjökul. Jónas Erlendsson

Lögreglan á Hvolsvelli segir að umferð hafi gengið vel í gær en varla hafi hægt á henni fyrr en upp úr miðnæitti. og síðustu bílar hafi verið á ferðinni milli tvö og þrjú. Að sögn varðstjóra er búist við enn meiri umferð á gossvæðinu í dag. Hann hvetur alla til að gæta varúðar.

Fólki er heimilt að fara gangandi upp á Fimmvörðuháls en það gerir það á eigin ábyrgð. Almannavarnanefnd vekur athygli á því að veður getur breyst hratt á þessu svæði. Gangan er ekki nema fyrir þá sem eru vanir fjallgöngum að vetrarlagi að fara upp á Fimmvörðuháls. Gangan upp á hálsinn tekur um fimm klukkutíma.

Slysavarnafélagið Landsbjörg bendir þeim sem ætla að ganga upp á Fimmvörðuháls á að hafa eftirfarandi atriði í huga: 
  
•           Fylgist með veðurspá og farið eftir henni 
•           Gerið ferðaáætlun og skiljið hana eftir hjá aðstandendum 
•           Kynnið ykkur vel það svæði sem ferðast á um 
•           Góður fatnaður er að sjálfsögðu algert lykilatriði. Best er að klæðast nokkrum lögum af fatnaði sem verður að anda og ysta lagið þarf að vera vatnshelt. 
•           Takið með lágmarks skyndihjálparbúnað og orkuríkan mat. 


•           Góður fjarskiptabúnaður er mikilvægt öryggistæki og kunnátta á hann verður að vera til staðar.  VHF talstöð eða NMT sími geta skipt sköpum ef eitthvað ber útaf og til þess að geta látið vita um breytta áætlun.  
•           GPS staðsetningartæki og áttavita ættu allir að hafa meðferðis. Kunnátta til að nota slík tæki þarf auðvitað að vera til staðar. 
•           Svefnpoki, einangrunardýna og vatnsheldur utanyfirpoki eða lítið tjald geta skilið á milli lífs og dauða ef til þess kemur að ferðalangur þarf að liggja utandyra af einhverjum orsökum 
•           Betra er að snúa við í tíma heldur en að koma sér í ógöngur. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert