Sigurður Tómas nýr prófessor við HR
Sigurður Tómas Magnússon lögfræðingur hefur tekið við stöðu atvinnulífsprófessors við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Hann er fyrstur til að gegna þeirri stöðu við HR.
Samkvæmt reglugerð skólans geta þeir einir orðið atvinnulífsprófessorar sem verið hafa leiðandi í atvinnulífinu á sínu sérsviði, eru þekktir af verkum sínum og viðurkenndir sem áhrifavaldar á vinnubrögð í faginu.
Atvinnulífsprófessor skal einnig hafa sýnt fram á ótvíræða hæfni til kennslu og miðlunar á háskólastigi, að því er segir í tilkynningu frá HR.
Þórður S. Gunnarsson, forseti lagadeildar HR, segir í tilkynningu til starfsmanna HR í dag að Sigurður Tómas sé vel að þessari virðingu kominn. „Ég vil nota tækifærið og færa Sigurði innilegar þakkir fyrir margháttað og veigamikið framlag hans til lagadeildar HR á liðnum árum í þeirri von að við njótum starfskrafta hans á vettvangi Háskólans í Reykjavík um langa framtíð.“
Sigurður Tómas hefur kennt við lagadeild HR frá árinu 2003, fyrst sem stundakennari en síðan eða frá 2004 sem fastráðinn sérfræðingur og aðalkennari í réttarfari.
Sigurður Tómas hefur samhliða kennslu og rannsóknum við lagadeild HR verið lögfræðilegur ráðgjafi sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins frá 2009.
Matsnefnd til að meta hæfi Sigurður Tómasar til að gegna umræddri stöðu var skipuð þeim Guðrúnu Erlendsdóttur, fyrrverandi hæstaréttardómara en hún var jafnframt formaður nefndarinnar, dr. juris Guðmundi Sigurðssyni, prófessor við lagadeild HR, og Ragnari Aðalsteinssyni hæstaréttarlögmanni.
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 20. mars 2011, Innlent Hafnaði boði um að segja af sér
- Mánudagur, 15. febrúar 2010, Innlent HR veitir kennslu- og rannsóknarverðlaun
- Þriðjudagur, 23. nóvember 2010, Innlent Nýr forseti lagadeildar HR
- Miðvikudagur, 23. febrúar 2011, Innlent Fjöldi mála veldur ósamræmi í dómum
- Laugardagur, 24. apríl 2010, Innlent Vísbendingar um refsiverða háttsemi
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































