Varað við banvænum eiturgufum

Eldgos á Fimmvörðuhálsi
Eldgos á Fimmvörðuhálsi RAX / Ragnar Axelsson

Búist er við mikilli umferð almennings við gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi í dag og næstu daga.
 
Af því tilefni þykir Slysavarnafélaginu Landsbjörg rétt að vara við hættulegum eiturgufum er fylgja eldgosum sem þessu. Um er að ræða brennistein, flúor, koltvísýring og kolmonoxíð sem er lyktarlaust og banvænt. Efnin eru leysandi og geta valdið varanlegum lungnaskaða sé þeim andað að sér.
 
Eiturgasið eru þungt og lekur með jörðinni. Fólk er því varað við að fara inn í Hrunagil þar sem hraun lekur nú niður því gilið er þröngt og líklegt að mikið sé um eiturgufur þar.
 
Einnig er fólki sem er uppi á Fimmvörðuhálsi við eldstöðvarnar bent á að forðast lægðir ef veður er stillt, halda sig á hólum og hæðum.

Um 15 km eru frá Skógum að gosinu, ekki 12, eins og ranglega sagði í Morgunblaðinu í dag. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert