Fá hraun og ösku á móti sér
Hraun fór að renna í suðurátt úr Eyjafjallajökli rétt fyrir klukkan sex, þannig að það stefnir á móti fólki sem kemur gangandi upp Fimmvörðuháls, segir lögreglan á Hvolsvelli.
Jafnframt hefur vindáttin breyst þannig að göngugarpar hafa fengið yfir sig ösku og reyk og hafa björgunarsveitarmenn vísað fólki frá svæðinu.
Ekki hefur þó verið mikið um skjálfta og óróa á svæðinu í dag, segir Sigþrúður Ármannsdóttir, landfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, sem fylgist grannt með þróun mála í Eyjafjallajökli. „Þetta hefur bara verið á rólegri nótunum.“
Aðspurð segir hún það þó ekki endilega vera vísbendingu um að gosið sé í rénun. Ennfremur segist hún ekki telja að hægt sé að spá með nokkurri vissu hversu lengi gosið muni vara.
Lögreglan og björgunarsveitarfólk brýnir enn og aftur fyrir fólki að fara varlega og að ekki reyna við Fimmvörðuháls nema vel búið. Þá er varað við því að fara af stað upp hálsinn úr þessu, enda næst það alls ekki fyrir myrkur.
Lögreglumaður á Hvolsvelli sem mbl.is ræddi við segir allt of mikið um að fólk leggi af stað upp hálsinn illa búið, og ætli sér jafnvel upp jökulinn á litlum mótorhjólum. Hann segir ekki mikið þurfa til að fólk, sem ekki er vant og illa búið, týnist hreinlega á jöklinum. Í raun sé ótrúlegt að ekki hafi orðið alvarleg slys.
Þrátt fyrir mikinn fólksfjölda og umferð á svæðinu hefur allt að mestu gengið vel. Fisflugvél þurfti að lenda nærri gosstaðnum og eru lögreglan á Hvolsvelli og rannsóknarnefnd flugslysa á leið á staðinn. Engin slys urðu á fólki.
Dæmi eru um að fólk á gönguleiðinni upp Fimmvörðuháls hafi þurft að leita aðstoðar björgunarsveita og er eitt dæmi um einstakling sem varð örmagna og þurfti hjálp við að komast niður. Fjöldi björgunarsveitamanna er á staðnum og munu verða þar næsta sólarhringinn. Fólk sem hyggst ganga upp að gosinu þarf að vera vel búið til slíkrar göngu.
Borið hefur á kvörtunum vegna ógætilegs akstur vélsleðamanna um svæðið er eru þeir minntir á að fara varlega þar sem mikið af fótgangandi fólki er á staðnum auk fjölda annarra ökutækja.
Nú um kl.18:00 í kvöld varð smá breyting á vind þannig að gufu og ösku leggur nú í átt að gönguleiðinni upp Fimmvörðuháls. Hraun hefur losnað úr suður kantinum við gosstöðina þannig að hraun rennur nú að litlu leiti til suðurs. Ekki er ljóst að þessar stundu hversu mikið það er þar sem skyggni vegna gufu og reyks er ekki mikið. Björgunarsveitarmenn eru á staðnum og fylgjast vel með, samkvæmt upplýsingum frá almannavörnum.
Bloggað um fréttina
-
Tryggvi Marteinsson 27. mars 2010 - Kaupstaðarbúinn fer í sveitina. -
Ásdís Sigurðardóttir Glannaakstur og símakjaftæði undir stýri á Hellisheiði. -
Pálmi Freyr Óskarsson Á meðan flest fólk.................... -
Axel Jóhann Hallgrímsson Hver er munurinn á gosi og gosi? -
Ómar Ragnarsson Ná í upplýsingar um vindinn. -
Sigríður Sigurðardóttir Skárra að fara undan...
Innlent »
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 27. mars 2010, Innlent Ekkert lát á gosinu
- Sunnudagur, 28. mars 2010, Innlent Streyma að gosstöðvunum
- Sunnudagur, 6. júní 2010, Innlent Áfall að sjá ástand Þórsmerkur
- Föstudagur, 2. apríl 2010, Innlent Smala fólki af gossvæðinu
- Sunnudagur, 28. mars 2010, Innlent Nýr hraunfoss í Hrunagili
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































