Karen er járnkona

Karen Axelsdóttir. stækka

Karen Axelsdóttir. mbl.is/ G.Rúnar

Þríþrautarkonan Karen Axelsdóttir lauk keppni í Ironman í gær á tímanum 10 klukkustundir og 56 mínútur. Þetta er besti tími íslenskrar konu í þessari keppni og fimmti besti tími Íslendings skv. upplýsingum frá Þríþrautarsambandi Íslands.

„Ég er orðin Ironman(kona) og það er dásamleg tilfinning,“ skrifar Karen í pistli sínum á mbl.is. 

„Ég tengi Ironman alltaf við algjöra örmögnun og bjóst við að sligast í mark þannig það var ótrúlega skrítið að líða svona vel og þetta var einn besti dagur í lífi mínu,“ skrifar hún jafnframt.

Keppnin fór fram í Port Macquarie í Ástralíu, sem er um það bil miðja vegu milli Brisbane og Sydney. Í keppninni synda keppendur 3,8 kílómetra, hjóla 180 km og hlaupa maraþon, 42,2 km.

Karen hefur æft þríþraut í fjögur ár en þetta er í fyrsta skipti sem hún keppir í Járnkarlinum. Í pistlum Karenar hefur m.a. komið fram að hún hafi lítið sem ekkert getað hlaupið vegna meiðsla.

Upplýsingar um árangur Karena á vef Þríþrautarsambands Íslands.

Árangur Íslendinga í Ironman. (Ekki er búið að bæta við tíma Karenar þegar þetta er skrifað).

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Hundrað þúsund meira í bensínskatt

19:04 Venjuleg fjölskylda greiðir ríkinu hundrað þúsund krónum meira á ári í bensínskatta nú en fyrir fjórum árum. Sá hluti kaupverðsins sem olíufélögin fá til sín hefur hækkað um 87% á sama tíma. Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld. Meira »
Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir, þingmenn Hreyfingarinnar, eru meðal þeirra sem stofna Breiðfylkinguna.

„Okkar dyr hafa alltaf staðið opnar“

18:57 „Mér finnst að það ætti að íhuga mjög vandlega. Okkar dyr hafa alltaf staðið opnar,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, eftir fyrri stofnfund nýju hreyfingarinnar sem gengur undir vinnuheitinu Breiðfylkingin. Hún var spurð að því hvort ekki kæmi til greina að nýju stjórnmálaöflin sem fram hafa komið að undanförnu gætu boðið fram saman. Meira »

„Þjóðin valdi okkur“

Blár Ópal í Hörpu í gær. Hljómsveitina skipa þeir Franz Ploder Ottósson, Pétur Finnbogason, Agnar ...
18:31 „Þjóðin valdi okkur, það er mjög gaman að vita af öllum þessum stuðningi almennings,“ sagði Franz Ploder Ottósson, einn fjórmenninganna í Bláum ópal, eftir að fréttir bárust um að lagið þeirra, Stattu upp, hefði fengið flest atkvæði í símakosningunni í Söngvakeppni Sjónvarpsins í gær. Meira »

Gæslan bíður eftir skýrslu

Þór á siglingu.
17:56 Sérfræðingar á vegum Rolls Royce reyna nú að finna orsök bilunar í nýju varðskipi Landhelgisgæslu Íslands sem kom til hafnar í Bergen í Noregi sl. miðvikudagskvöld. Meira »

Ók á ljósastaur

17:29 Umferðaróhapp varð á Laugarnesvegi um kl. 14 í dag. Lögreglan fór á staðinn en ökumaður bifreiðarinnar hafði ekið á ljósastaur. Enginn slasaðist en bíllinn er skemmdur og óökuhæfur. Var hann fjarlægður af slysstað með kranabifreið. Meira »

Blár ópal fékk flest atkvæði

Kristmundur Axel Kristmundsson, syngur með Bláum ópal í Hörpu í gærkvöldi.
18:16 Lagið Stattu upp í flutningi strákasveitarinnar Blás ópals fékk flest atkvæði í símakosningu Söngvakeppni Sjónvarpsins í gærkvöldi. Lagið fékk 700 fleiri atkvæði en lagið sem vann, Mundu eftir mér. Meira »

Vilja nýtt kúakyn til Íslands

Arnar Bjarni Eiríksson, sem rekur eitt stærsta kúabú landsins í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
17:49 Bændurnir í Gunnbjarnarholti og á Skáldabúðum vilja flytja inn nýtt kúakyn til landsins sem allra fyrst. Arnar Bjarni Eiríksson, sem rekur bæði búin ásamt konu sinni Berglindi Bjarnadóttur, segir nýtt kúakyn vera forsendu þess að kúabændur geti þróað mjólkurframleiðslu sína. Meira »

Hundur fastur í neti

Hundur af border collie-kyni.
17:13 Lögreglan fékk í morgun tilkynningu um hund sem var fastur í netadræsum við Ægisgarð. Lögregla og tækjabíll frá slökkviliði fór á vettvang. Búið var að bjarga hundinum úr netunum og var hann frekar þjakaður en glaður björguninni. Meira »

Hjartað í tónlist en höfuðið í lækningum

Magni Ásgeirsson söng lag Sveins Rúnar, Hugarró, af mikilli innlifun.
16:12 Síðustu vikurnar hefur lagahöfundurinn Sveinn Rúnar Sigurðsson, sem átti tvö lög í úrslitakeppni Söngvakeppni sjónvarpsins í gærkvöldi, starfað við lækningar á Heilsugæslunni í Árbæ á daginn og sinnt undirbúningi Evróvisjón á kvöldin. Meira »

Nálgast 30.000 undirskriftir

Skorað er á forsetann að gefa áfram kost á sér til embættis.
15:19 Undirskriftum fjölgar enn á vefsíðunni Áskorun til forseta þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að gefa áfram kost á sér til embættis í komandi forsetakosningum. Meira »

Mikið annríki á Læknavaktinni

15:33 Mikið annríki hefur ríkt á Læknavaktinni um helgina, og nánast stöðugur straumur fólks. Sökum þessa hefur biðtími lengst og kalla þurfti út lækna bæði í gær og í dag. Upplýsingar um hvað helst er að hrjá landann liggja þó ekki fyrir. Meira »

Kjörin formaður Sambands ungra framsóknarmanna

Ásta Hlín Magnúsdóttir
15:18 Ásta Hlín Magnúsdóttir var í dag kjörin nýr formaður Sambands ungra framsóknarmanna. Ásta Hlín fékk 32 atkvæði eða 53%. Mótframbjóðandi hennar, Ragnar Stefán Rögnvaldsson, fékk 28 atkvæði eða 47%. Meira »

Bæta við strætóferðum á Suðurlandi

Mjóddin er upphafs- og endastaður Suðurlandsstrætósins.
15:10 Frá og með deginum í dag verða gerðar nokkrar breytingar á akstri Strætó bs. á Suðurlandi. M.a. verður bætt við hádegisferð frá Reykjavík á Selfoss og til baka til Reykjavíkur, tekinn upp akstur í Reykholt og bætt við ferð frá Vík til Hafnar á þriðjudögum. Meira »

Nefbrotinn eftir árás

Maðurinn var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl.
15:04 Karlmaður var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala snemma í morgun eftir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu sagðist maðurinn hafa orðið fyrir árás tveggja manna sem hann kunni ekki deili á, ekki hefur tekist að hafa uppi á þeim. Maðurinn er talinn nefbrotinn. Meira »

Börnin uppgötva undraheima Legó

Börnin skemmtu sér hið besta við að búa til alls kyns byggingar úr kubbunum.
14:05 Gríðarleg umferð hefur verið í Ráðhúsi Reykjavíkurborgar um helgina en þar er sýningin Undraheimar Legó sett upp. Yngstu kynslóðinni gefst þar kostur á að gleyma sér framkvæmdum með fjölmarga Legó-kubba. Meira »

Gæði röntgenmynda margfaldast

Lesið úr röntgenmyndum á Landspítalanum í Fossvogi. Mynd úr safni.
15:06 Tekinn hefur verið í notkun stafrænn búnaður til framköllunar á röntgenmyndum á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga. Þessi nýju tæki koma í stað gamalla tækja sem voru úr sér gengin og nær ónýt. Meira »

17 kýr mjólkuðu yfir 10 þúsund kíló

14:50 Þær voru duglegri að mjólka í fyrra, kýrnar í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu, en árið á undan. Í fyrra mjólkuðu sautján kýr yfir 10 þúsund kíló en árið 2010 voru þær aðeins fimm. Meira »

Evrópusambandið kynnir sig sjálft

Fánar Evrópusambandsins fyrir utan höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar sambandsins í Brussel.
13:35 Sérstök upplýsingaskrifstofa um Evrópumál, sem fengið hefur heitið Evrópustofa, var opnuð við Suðurgötu í Reykjavík í síðasta mánuði en markmið hennar er að miðla hlutlægum upplýsingum til Íslendinga um Evrópusambandið og kosti og galla þess fyrir Ísland að ganga í sambandið. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Klassískt og vandað sófasett
Afar vandað klassískr sófasett, rauðbrúnt. Sófi og tveir stóla til sölu. Vel með...
PARSUN UTANBORÐSMÓTORAR 2,6 - 5- 15 -25 HP Á LAGER
Erum að fara panta, getum tekið niður óskir um aðrar stærðir. Einnig hægt að fá...
Fallegu silfurskeiðarnar eru smíðaðar
í smiðjunni okkar ásamt borðsilfrinu íslenska. Skeiðarnar kosta 17.500,- og við ...
Skýjaluktir / Himnaljós
Erum með skýjaluktir í mörgum litum á góðu verði, eða aðeins kr 690. pr stk. Net...
 
Fundur fulltruaráðs sjálfstæðisfélaganna í kópavogi

Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Kó...
Þerapisti
Sérfræðistörf
BARNAVERNDARSTOFA STARF ÞERAPISTA Í ...
Landsst.
Félagsstarf
Landsst. 6012020919 VII...
Vélavörður á sighvat gk-57
Sjávarútvegur
Vélavörður Vísir hf. óskar eftir vél...