Alvarlegum slysum fækkar á milli ára
Á síðasta ári fækkaði alvarlegum slysum í umferðinni um 15% á milli ára, eða úr 200 árið 2008 í 170 árið 2009. Að sögn Umferðarstofu fellur þó sá skuggi á að 17 hafi látist í 15 slysum í umferðinni í fyrra. Árið 2008 hafi 12 látist í jafnmörgum slysum.
Þetta sé þó langt undir meðaltali þess fjölda sem látist hafi í umferðarslysum á Íslandi undanfarin tíu ár en það séu að jafnaði 22 einstaklingar á ári. Á síðustu þremur árum hafi að meðaltali tæplega 15 látist í umferðarslysum á landinu, en næstu þrjú ár á undan hafi rúmlega 24 látist ár hvert.
Þetta er á meðal niðurstaðna samantektar slysaskráningar Umferðarstofu á umferðarslysum árið 2009. Slysaskráning Umferðarstofu byggist á lögregluskýrslum úr gagnagrunni Ríkislögreglustjóra. Í einhverjum tilfellum rata umferðaróhöpp ekki í gagnagrunninn heldur beint á borð tryggingafélaga, en það á yfirleitt við í tilfellum þar sem ekki er um slys á fólki að ræða.
35% fækkun slysa á Suðurnesjum
Í fréttabréfi Umferðarstofu kemur fram að þegar landshlutarnir séu skoðaðir komi í ljós að mest fækki slösuðum á Suðurnesjum, eða um 35% milli áranna 2008 og 2009. Á Vestfjörðum fækki þeim hlutfallslega um 32% og á Suðurlandi um 24%. Á höfuðborgarsvæðinu fækki slösuðum um 23%. Á Norðurlandi vestra fjölgi slösuðum hins vegar um 19% og á Austurlandi um 13%.
Ekki sé enn ljóst hvað valdi þessari aukningu á Norðurlandi vestra og Austurlandi en tilgangur skýrslunnar sé m.a. sá að greina þau atriði í umferðaröryggismálum sem krefjast frekari athugunar og aðgerða.
Á höfuðborgarsvæðinu er vitanlega mest umferð og flest umferðarslys og óhöpp verða á því svæði. Það er því ánægjulegt að sjá þann mikla árangur sem náðst hefur á höfuðborgarsvæðinu. Þegar skoðaður er fjöldi slasaðra og látinna árið 2009 m.v. 100 þúsund íbúa og sá fjöldi borin saman við 10 ára meðaltal kemur í ljós 26% fækkun. Fjöldinn var í fyrra 2,8 en meðaltalið er 3,8. Á landinu öllu nemur þessi fækkun 18%. Það er því ljóst að þessi mikla fækkun á höfuðborgarsvæðinu vegur þungt í þeim árangri sem náðst hefur.
Árið 2009 var samanlagður fjöldi þeirra sem létust og slösuðust bæði alvarlega og lítilsháttar á höfuðborgarsvæðinu komin niður í 564 manns úr 730 árið áður. Þessi fækkun nemur tæpum 23% milli ára.
Innlent »
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 8. júlí 2009, Innlent Alvarlegum umferðarslysum fjölgar
- Föstudagur, 17. apríl 2009, Innlent Alvarlegum slysum fjölgar
- Þriðjudagur, 5. janúar 2010, Innlent Færri börn látast í umferðinni
- Þriðjudagur, 14. desember 2010, Innlent Sex banaslys það sem af er ári
- Miðvikudagur, 28. apríl 2010, Innlent Bifhjólaslysum fækkar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































