Hraunið verður afgirt
Setja á upp girðingu til að bægja fólki frá hættulegri nálægð við hraunstrauminn á Fimmvörðuhálsi. Þeim sem eru þar við gæslu óar við því hvað margir fara óvarlega og óttast að slys geti orðið verði ekkert að gert.
Björgunarsveitir hafa aðstoðað 15-20 lúna og kalda göngumenn á Fimmvörðuhálsi síðdegis og í kvöld. Svanur Sævar Lárusson, formaður Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu, sagði að göngufólkið hafi flest verið á leið niður þegar það þáði far. Það hafði ekki gert sér grein fyrir því hvað gangan er krefjandi og aðstæður erfiðar.
„Það er alveg hrikalega kalt,“ sagði Svanur. „Það er ekki undir 15 gráðu frosti þarna uppi. Maður finnur strax þegar maður er berhentur að maður tekur ekki meira en tvær myndir í einu. Frostið bítur rosalega.“
Svanur sagði að sér þætti fólk fara mjög glannalega í nánd við hraunið sem er að brjótast fram. Honum þótti „skuggalegt“ hvað margir fara nærri því. Þessir ofurhugar eru þó ekki að orna sér heldur að taka ljósmyndir. Vilja helst vera alveg ofan í glóðinni.
Gerðar verða ráðstafanir til að halda fólki frá hrauninu, því ljóst þykir að framferði margra er stórhættulegt. Búið er að panta girðingu úr Reykjavík og á að reyna að nota hana til að halda fólki frá hættulegri nálægð við hraunstrauminn.
„Hraunið er að renna undir snjóinn og svo hrynur niður þar sem fólk er nýbúið að standa,“ sagði Svanur. Hann sagði líka ógnvænlegt að sjá hvað margir fara tæpt á brúninni á Hrunagili. Þar fari það jafnvel fram á snjóhengur sem geti brostið hvenær sem er.
Fólk getur nú gengið í átt að gosstöðvunum frá Þórsmörk. Þeim tilmælum hefur verið beint til fólks að það fari ekki lengra en upp á Morinsheiði. Svanur sagði að í kvöld hafi verið brögð að því að menn hafi ekki virt þessi tilmæli heldur gengið upp Heljarkamb til að komast svolítið nær eldstöðinni.
Á þeirri leið þarf að ganga upp snjóbrekku sem getur mögulega brostið og skriðið fram. „Fólk virðist vera tilbúið að leggja sig í lífshættu til að komast kannski örlítið nær,“ sagði Svanur.
Flugbjörgunarsveitin á Hellu flutti almannavarnanefnd Rangárþings og Vestur-Skaftafellssýslu í vettvangsferð að eldstöðvunum í dag og var verið að flytja hana af fjallinu í kvöld. Aðrar sveitir voru einnig á svæðinu við gæslu og aðstoð.
Bloggað um fréttina
-
Gunnar Typpakeppni veitingamanna - -
Stefán Stefánsson Forvitnin víkur fyrir skynseminni -
Ómar Ragnarsson Munum: Einn maður hefur þegar farist. -
Jóhannes Ragnarsson Sem minnir á að nauðsynlegt er ... -
Þorsteinn Helgi Steinarsson Ofverndun -
Sigurður Haraldsson Það er ekki lengur spurning. -
S i g u r ð u r Sigurðarson Ja, hérna, girðingar og allt ... -
Hansína Hafsteinsdóttir Frábært! -
-
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson „Búið er að panta girðingu úr Reykjavík“ -
Guðrún María Óskarsdóttir. Maðurinn kunni fótum sínum forráð.
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Mánudagur, 5. apríl 2010, Innlent Meta áframhald björgunarstarfs
- Fimmtudagur, 1. apríl 2010, Innlent Gæsla við gosstöðvar
- Miðvikudagur, 31. mars 2010, Innlent Ný jökulsprunga í Goðabungu
- Laugardagur, 24. apríl 2010, Innlent Hraun bræðir sér leið
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































