Margir komnir í Þórsmörk
Lögregla og björgunarsveitarmenn standa nú vaktina í Þórsmörk. Þeir verða við skálana og munu einnig gæta þess að ferðamenn fari ekki inn í Hrunagil eða Hvannárgil. Skálaverðir verða í Húsadal, Langadal og í Básum og boðið verður upp á ferðir að gosstöðvunum. Margir eru nú að ganga á Morinsheiði.
Lögreglan á Hvolsvelli segir að einungis sé fært fyrir breytta jeppa eða stóra bíla inn í Þórsmörk. Helst þurfi jepparnir að vera á 38" dekkjum eða stærri. Leiðin er mjög stórgrýtt á köflum. Að sögn lögreglunnar áttu lögreglumenn í nokkru basli með að komast leiðar sinnar á 35" breyttum jeppa.
Nú þegar eru margir á göngu upp á Morinsheiði í átt að gosstöðvunum, að sögn Helgu Garðarsdóttur, skálavarðar í skála Ferðafélags Íslands í Langadal. Nokkrir bílar, sex eða sjö. biðu við vegartálmann þegar opnað var inn í Þórsmörk um hádegið.
Skálaverðir eru í farfuglaheimilinu í Húsadal og hjá FÍ í Langadal. Þar geta ferðamenn fengið leiðsögn og ráðgjöf og leitað gistingar. Verslunin í Langadal verður einnig opin. Ferðafélagið mun einnig bjóða leiðsögn að gosstöðvunum.
Góð sýn er yfir gosstöðvarnar af Valahnjúk sem er í þægilegu göngufæri úr Húsadal og Langadal.
Skálaverðir og fararstjórar eru komnir í skála Útivistar í Básum og verða þar alla páskana og taka á móti gestum og gangandi. Fararstjórar fara í reglubundnar ferðir alla dagana upp að gosstöðvunum og byrjuðu skoðunarferðirnar á morgun.
Öll umferð fólks um Hrunagil og Hvannárgil, þar sem hraun er að renna, er bönnuð. Það er vegna hættu á eitruðu gasi sem þar kann að safnast fyrir og vegna hættu á gufusprengingum. Vísindastofnanir hafa bannað sínu fólki að fara inn í gilin vegna þessarar hættu, að sögn Almannavarna.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Ragnarsson Stysta leiðin. -
S i g u r ð u r Sigurðarson Ekkert að færðinni inn í Bása -
Ingibjörg Magnúsdóttir Gos-áhugafólk klæði sig vel - áður en það heldur á ...
Innlent »
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Dagsferðir í Þórsmörk um páska
- Föstudagur, 9. júlí 2010, Innlent Göngubrýr á hjólum yfir Krossá
- Þriðjudagur, 15. júní 2010, Innlent Þórsmörkin grænkar í skugga flóðahættu
- Mánudagur, 29. mars 2010, Innlent Gosórói er aftur að vaxa
- Föstudagur, 11. september 2009, Innlent „Allir lækir eins og stórfljót"
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































