Meirihlutinn sprakk ekki
Sauðárkrókur. www.mats.is
Tillaga framsóknarmanna, sem eru í meirihluta í sveitarstjórn Skagafjarðar ásamt Samfylkingu, um að taka ákvörðun um að hefja framkvæmdir við byggingu Árskóla féll á jöfnu í kvöld. Meirihlutinn er þó ekki sprunginn í sveitarstjórninni, að sögn Gunnars Braga Sveinssonar oddvita framsóknarmanna.
Fjórir fulltrúar Framsóknar studdu tillöguna um ákvörðun um að hefja framkvæmdir, fulltrúi Samfylkingar sat hjá en fulltrúar Sjálfstæðisflokks og VG voru á móti.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, fulltrúi Samfylkingar og forseti sveitarstjórnar, bar fram breytingartillögu við tillögu framsóknarmanna sem var felld með fjórum atkvæðum. Fulltrúar Framsóknarflokks sátu hjá við þá atkvæðagreiðslu.
„Það eru gríðarleg vonbrigði fyrir okkur að ekki hafi náðst að klára að koma málinu áfram,“ sagði Gunnar Bragi Sveinsson, oddviti framsóknarmanna og varaforseti sveitarstjórnar. „Við höfum unnið að þessu lengi og þetta er í samstarfssáttmála flokkanna í meirihlutanum.“
Kaupfélag Skagfirðinga hafði boðist til að fjármagna framkvæmdirnar til að byrja með svo verkið gæti hafist en síðan ætlaði sveitarfélagið að útvega aðra fjármögnun. Áætlaður kostnaður við skólann er 1,4 milljarðar króna.
Gunnar Bragi gerir ráð fyrir því að meirihlutinn fari yfir þetta mál eftir páskana.
Fréttavefurinn Feykir greindi frá því í morgun að Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir segi í grein í Feyki að „það að fara af stað með verkið án þess að unnin sé vönduð áætlanagerð þar sem fram komi hvaða áhrif byggingin hafi á rekstur og þjónustu um ókomin ár sé fullkomlega óábyrgt.“
Fyrirsögn fréttar Feykis var „Meirihluti á endastöð?“ Hún gaf til kynna að málið kynni að reynast sveitarstjórnarmeirihlutanum skeinuhætt.
Innlent »
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 23. nóvember 2009, Innlent Segir sig frá meirihlutanum
- Sunnudagur, 30. maí 2010, Innlent Framsókn sigraði í Skagafirði
- Miðvikudagur, 9. desember 2009, Innlent Siv pöruð út á móti Helga
- Mánudagur, 31. maí 2010, Innlent Úrslit á Dalvík standa
- Laugardagur, 21. ágúst 2010, Innlent Skagfirðingar hafna öllum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































