Hjúkrunarfræðingur til Haítí

Íslendingar hafa lagt talsvert að mörkum við björgunar- og hjálparstörf á Haítí. stækka

Íslendingar hafa lagt talsvert að mörkum við björgunar- og hjálparstörf á Haítí. Ljósmynd/Landsbjörg

Valgerður Grímsdóttir, hjúkrunarfræðingur, heldur til Haítí þriðjudaginn 6. apríl til starfa fyrir Rauða kross Íslands. Valgerður hefur áður starfað í neyðarverkefnum Rauða krossins í Pakistan og Írak. Hún er fjórtándi hjálparstarfsmaðurinn sem Rauði kross Íslands sendir til Haítí.

Valgerður mun starfa við tjaldsjúkrahús norska Rauða krossins í Petit Goave, um 70 km  fyrir utan Port-au-Prince. Rauði krossinn er þar með tvö skurðlækningateymi auk þess að sinna almennri heilsugæslu á svæðinu sem varð mjög illa úti í jarðskjálftanum mikla sem reið yfir Haítí fyrir réttum tveimur mánuðum.

Núna eru tveir aðrir sendifulltrúar Rauða kross Íslands að störfum á Haítí: Sigurjón Valmundsson, sem starfar sem bráðatæknir á sjúkrahúsinu sem Valgerður mun einnig vinna á og Kristjón Þorkelsson sem er margreyndur hjálparstarfsmaður á sviði vatnshreinsimála.

Lilja Óskarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, sem hefur starfað við tjaldsjúkrahús þýska og finnska Rauða krossins í Carrefour, úthverfi Port-au-Prince, síðan um miðjan febrúar er væntanleg heim 2. apríl.

Frá því að jarðskjálftinn reið yfir um miðjan janúar hefur Rauði kross Íslands sent fjármálafulltrúa, átta heilbrigðisstarfsmenn, sérfræðing í hreinsun vatns, og fjóra sérfræðinga sem unnu með alþjóðlegu teymi að skipulagningu uppbyggingarstarfs Alþjóða Rauða krossins næstu þrjú árin.

Hjálparsamtök vinna nú í kappi við tímann að dreifa efni til þeirra 1,3 milljóna manna sem misstu heimili sín í skjálftanum áður en regntíminn gengur í garð af fullum krafti í apríl. Rauði krossinn óttast að ástandið eigi eftir að versna til muna meðan á regntímabilinu stendur, og er hlutverk heilbrigðisstarfsmanna mjög mikilvægt á næstu mánuðum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.

Versló brautskráir 311 nemendur

21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
IZUSU CRUCAB DMAX 3000
Isuzu Crucab DMAX 3000 CC Árg. ‘06, ek. 112 þús. Ver...
Aquaflex grindarbotnsþjálfi
Hvað gerist ef þú hlærð of mikið, hnerrar óvænt, beygir þig fram eða ferð í leik...
Hillusamstæða
Hillusamstæða 28 ára gömul hillusamstæða til sölu, var keypti í Heimilisprýði á...
Íbúð til leigu í Garðinum
4 herbergja Íbúð til leigu í Garðinum á Suðurnesjum. Laus 1. júlí. Langtímaleiga...
 
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...