Ný sprunga hefur opnast
Ný sprunga hefur opnast á Fimmvörðuhálsi, norðvestan við gígana sem fyrir voru, og gengur hún í átt að Hvannárgili. Hún er 300-400 metrar og í stefnu við gömlu sprunguna. Virknin í aðalgígunum minnkaði þegar nýja sprungan opnaðist, að sögn Ármanns Höskuldssonar eldfjallafræðings sem er við gosið.
Ármann sagði að gosið í nýju sprungunni verði kröftugra og kröftugra og að strókarnir séu að hækka. Hann sagði að nýja sprungan sé aðeins skásett við hina sprunguna.
„Við erum að horfa á þetta gerast. Þetta er að rifna hérna og nýir gígar að hlaðast upp. Þetta er stórfenglegt,“ sagði Ármann. „Það hefur minnkað mikið virknin í aðalgígunum út af þessu af því kvikan hleypur undan.“
Kristinn Garðarsson, kortagerðarmaður á Morgunblaðinu og mbl.is, kom á Bröttufannarfell um sjöleytið, um það bil sem sprungan var að opnast. „Þetta er að stækka en ekki eins stórt og hitt,“ sagði Kristinn. Hann sagði að hraun væri þegar tekið að renna niður að Hvannárgili og sýndist hraunstraumurinn vera þó nokkur.
Kristni sagði að enn væri gígur öflugur í eldri gosstöðinni. Hann taldi að fólk hafi ekki verið nálægt nýju sprungunni. Hann sagði að nýja sprungan sé þannig staðsett að fólk sem hafi farið upp á Fimmvörðuháls að sunnanverðu sjái illa eða ekki til nýju sprungunnar vegna nýja fellsins sem gosið myndaði.
„Þetta sést mjög vel þaðan sem ég er. Ég er bara um 200 metra frá þessu,“ sagði Kristinn þar sem hann stóð á Bröttufannarfelli. Hann sagði að töluvert mikil læti séu í nýja gosinu.
Uppfært kl. 19.45
Kristinn sagði að töluvert öskufall sé nú á Fimmvörðuhálsi. Einnig sé hraunið greinilega að renna út í snjó því töluverðir gufustrókar standi upp í loftið.
Norðanátt er á svæðinu og ber hún öskuna suður yfir Fimmvörðuháls. Kristinn sagði að þegar sé tekið að móta fyrir gjallhaugum við nýju sprunguna. Hann sagði að nýja sprungan sé í halla og virtist honum hraunið eiga greiða leið í Hvannárgil.
Bloggað um fréttina
-
Þórarinn Þ Gíslason NÚ LÍST MÉR EKKI Á ÞAÐ. NÝ SPRUNGA ÞÝÐIR, FLEIRI ... -
Jón Baldur L'Orange Sprunga sem opnaðist fyrir nokkrum dögum? -
Sigurður Haraldsson Já var það ekki! -
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Mín tilfinning er að gjósi í Eyjafjalla-jökli á næstu dögum ... -
Sóldís Fjóla Karlsdóttir Varúð..... -
Pálmi Freyr Óskarsson Vonandi sýnir þetta........ -
Ásdís Sigurðardóttir Góður strókur að sjá frá Selfossi. -
Gunnar Th. Gunnarsson Grjóti rignir yfir vefmyndavél Mílu -
Guðmundur Júlíusson Ný spunga opnast með miklum krafti rétt í þessu!
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 1. apríl 2010, Innlent Nýr gígur á hálsinum
- Miðvikudagur, 31. mars 2010, Innlent Ný jökulsprunga í Goðabungu
- Miðvikudagur, 31. mars 2010, Innlent Fólki vísað af Bröttufönn
- Miðvikudagur, 7. apríl 2010, Innlent Vísindamenn í stúkusæti
- Föstudagur, 2. apríl 2010, Innlent Nauðsynlegt að fara varlega
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































