„Það væri gaman að setja í fisk“
Magnús Már Vilhjálmsson og Vilhjálmur sonur hans fengu fallega silunga í opnun Elliðavatns í fyrra. Þá hófst veiði þar 1. maí. mbl.is/Einar Falur
eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
„Mig langar svo sannarlega að bleyta í ef aðstæður leyfa en ætli ég mæti ekki nærri hádeginu þegar það hefur hlýnað svolítið og athugi aðstæður,“ sagði Geir Thorsteinsson, einn þeirra stangveiðimanna sem þekkja Elliðavatn hvað best. Stangveiðitímabilið hefst á morgun, 1. apríl, og að þessu sinni má hefja veiði í Elliðavatni í fyrsta sinn í aprílbyrjun en ekki mánuði síðar eins og vant er.
Geir er einn þeirra veiðimanna sem hafa barist fyrir því að opnun vatnsins verði flýtt en hann ætlar samt ekki að mæta klukkan sjö í fyrramálið, enda er spáð norðanblæstri og frosti. Seinnipartinn í gær virtist nær allt Elliðavatn vera komið undir ís, állinn við brúna var þó auður.
Geir sagði að sér fyndist að vatnið ætti í raun að vera opið veiðimönnum allan ársins hring, þannig að þeir geti veitt þegar viðrar. „Ég fór upp eftir um daginn í góða veðrinu og þá sá ég uppítökur, fiskurinn er því kominn af stað,“ sagði hann. „Það væri vissulega gaman að setja í fisk á opnunardaginn en það þarf kannski að fara á skautum út á Engi!“
Veiði hefst í mörgum vötnum
Af straumvötnum sem verða opnuð á morgun má nefna Varmá og Sogið, Brúará, Minnivallalæk og á sjóbirtingsslóð í Skaftafellssýslum, m.a. Tungufljót, Tungulækur, Geirlandsá og Vatnamótin. Þá hefst veiði í Litlá og Brunná í Öxarfirði.Nokkur vatnanna sem Veiðikortið veitir aðgang að verða opnuð á morgun. Það eru Vífilsstaðavatn, Þórisstaðavatn, Hraunsfjörður, Meðalfellsvatn, Syðridalsvatn og Þveit. Á vef Veiðikortsins segir ennfremur að þegar ísa leysi verði Víkurflóð, Baulárvallavatn, Hraunsfjarðarvatn, Hópið, Kringluvatn, Urriðavatn og nýjasta vatnið á Veiðikortinu, Sauðlauksdalsvatn, opnuð. Veiðimenn á Vestfjörðum staðhæfa að Sauðlauksdalsvatns sé perla sem fólk eigi eftir að uppgötva og njóta, þar sé oft mjög góð veiði þegar líður á sumarið.
Veiðikortið nýtur sívaxandi vinsælda enda hefur það auðveldað aðgang að veiðistöðum hringinn í kringum landið. Ingimundur Bergsson, framkvæmdastjóri Veiðikortsins, var á ferð um Norðurland í gær og viðurkenndi að stöngin væri ekki með, enda veðurhorfur slæmar.
„Mér sýnist ekki vera mikil veiði í kortunum, spáin er köld,“ segir Ingimundur. „Það verður ekki mjög notalegt þennan 1. apríl. Það er vænlegra að hitinn sé réttum megin við núllið.“ Hann kveðst ætla til veiða um leið og hlýnar, enda þarf meiri hlýindi til að lífríkið taki við sér og silungurinn fari á hreyfingu.





































