„Fólk hafði gaman af þessu"

Ögmundur Jónasson, Guðfríður Lilja, Haraldur Áss sonur hennar, og Sigríður Heiðberg undirbúa ,,kattasmölunina" sem fór ... stækka

Ögmundur Jónasson, Guðfríður Lilja, Haraldur Áss sonur hennar, og Sigríður Heiðberg undirbúa ,,kattasmölunina" sem fór víst aldrei fram. Árni Sæberg

„Fólk hafði gaman af þessu," sagði Sigríður Heiðberg, formaður Kattavinafélagsins, um baksíðufrétt Morgunblaðsins í dag um keppnina í kattasmöluninni sem kynnt var til sögunnar. Hún segir fjölmarga hafa hringt í Kattholt í morgun til að kanna hvort þetta væri ekki örugglega gabbfrétt. „Ég harðneitaði því að sjálfsögðu.“

Ögmundur Jónasson og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmenn VG, brugðu á leik ásamt Sigríði við undirbúning fyrir kattasmölunina, en fræg eru orðin þau ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra að það að smala saman meirihluta á Alþingi væri eins og að smala köttum. Vildu Ögmundur og Guðfríður Lilja sýna fram á að þetta væri vel hægt, með því að fara vel að köttunum! Hyggajst þingmenn VG a.m.k. safna liði og gerast félagar í Kattavinafélaginu. Er þingmönnunum og Sigríði þökkuð aðstoðin við „fréttina“.

Önnur einkennileg frétt var í Morgunblaðinu og á mbl.is í dag, um myndlistargjörning nemenda í Listaháskólanum. Nakin kona í búri og á hlaupahjóli að auki, með jakkafataklædda menn á hælunum, var hreinn hugarburður blaðamanna í tilefni dagsins. Reyna eflaust margir að opna myndskeið sem á að vera tengt við fréttina.

Ennfremur var það aprílgabb hjá Heimdellingum með ókeypis ljósakortin en einhver forvitin og sólþyrst ungmenni munu hafa gripið í tómt í Valhöll í dag.

Hrægammurinn Gordon Brown

Fleiri fjölmiðlar hafa brugðið á leik í dag. Svo tekin séu nokkur dæmi af handahófi þá var RÚV með frétt í hádeginu af hrægammi sem fundist hefði í borginni og verið vistaður í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Óskaði fréttastofan eftir nafni á fuglinn og ekki stóð á ábendingunum. Vildu margir hlustendur nefna hrægamminn eftir útrásarvíkingunum en einnig komu nöfn eins og Gosi, Ási og Gordon Brown.

Á Stöð 2 í kvöld var „frétt“ þess efnis að aukin virkni væri komin í goshverinn við Perluna í Öskjuhlíð, sem rekja mætti til eldgossins á Fimmvörðuhálsi. Talað var við Harald Sigurðsson eldfjallafræðing sem útlistaði þessi tengsl, en þess skal getið að um manngerðan hver er að ræða sem er ekki í nokkrum tengslum við jarðskorpuna undir niðri.

Fréttablaðið var með frétt í dag um ókeypis flug fyrirtækisins ECA yfir gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi í Herkúles-herflugvélum, í þeim tilgangi að bæta ímynd fyrirtækisins sem hyggst vera með starfsemi á Keflavíkurflugvelli.

Margir munu hafa hlaupið 1. apríl vegna fréttar Víkurfrétta um víðtæka páskaeggjaleit á Suðurnesjum, í tilefni 30 ára afmælis blaðsins. Vefurinn feykir.is sagði frá því í morgun að Keflvíkingar hefðu gefið oddaleikinn gegn Tindastóli í úrslitakeppni úrvalsdeildar karla í körfuknattleik, vegna innbyrðis deilna í stjórn körfuknattleiksdeildar Keflvíkinga. Leikurinn fór nú fram engu að síður í Keflavík í kvöld og Tindastóll tapaði.

Að endingu fyrir áhugasama um kattasmölun þá getur hér að líta myndband af kattahirðum í Bandaríkjunum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.

Versló brautskráir 311 nemendur

21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
IZUSU CRUCAB DMAX 3000
Isuzu Crucab DMAX 3000 CC Árg. ‘06, ek. 112 þús. Ver...
Aquaflex grindarbotnsþjálfi
Hvað gerist ef þú hlærð of mikið, hnerrar óvænt, beygir þig fram eða ferð í leik...
Hillusamstæða
Hillusamstæða 28 ára gömul hillusamstæða til sölu, var keypti í Heimilisprýði á...
Íbúð til leigu í Garðinum
4 herbergja Íbúð til leigu í Garðinum á Suðurnesjum. Laus 1. júlí. Langtímaleiga...
 
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...