Keppt í kattasmölun í dag
Kattavinafélagið og Kattaræktarfélag Íslands, Kynjakettir, efna í dag kl. 11 til fjölskylduskemmtunar í sýningaraðstöðu Kynjakatta að Miðhrauni 2 í Hafnarfirði, þar sem áður var verslunin Just 4 Kids. Þar verður keppt í kattasmölun og tveir þingmenn VG munu byrja, þau Ögmundur Jónasson og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, sem til þessa hafa tilheyrt „órólegu deildinni“ innan VG.
Kattholt mun leggja til ketti í smölunina en svæði á sýningargólfinu verður girt af fyrir keppnina. Þeim sem tekst að smala köttunum inn í afmarkað hólf á sem skemmstum tíma fara með sigur af hólmi. Vegleg verðlaun verða í boði. Aðgangur að skemmtuninni er ókeypis en hins vegar geta áhorfendur heitið á keppendur og mun allur ágóði renna óskiptur til starfseminnar í Kattholti.
Að sögn Sigríðar Heiðberg, formanns Kattavinafélagsins, og Marteins Tausen, formanns Kynjakatta, var megintilefni þessarar skemmtunar þau ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um síðustu helgi að það að smala saman meirihluta á Alþingi væri eins og að smala köttum.
„Við teljum að það sé vel hægt að smala köttum saman og sjálfsagt að gefa fólki færi á því, um leið og það getur styrkt gott málefni í leiðinni,“ sagði Sigríður við Morgunblaðið er hún gaf þingmönnunum, sem ætla að hefja leikinn í dag, góð ráð við smölunina í Kattholti í gær.
Nánar er fjallað um keppnina í Morgunblaðinu í dag.
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 1. apríl 2010, Innlent „Fólk hafði gaman af þessu"
- Mánudagur, 29. mars 2010, Innlent Gremja í herbúðum VG
- Þriðjudagur, 9. júní 2009, Innlent Valtur meirihluti í Icesave
- Þriðjudagur, 11. ágúst 2009, Innlent Stjórnarsamstarf undir Ögmundi komið
- Föstudagur, 13. mars 2009, Innlent Vilja 1. og 2. sæti hjá VG í SV-kjördæmi
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































