Vélsleðar fram af snjóhengju

Úr vélsleðaferð.
Úr vélsleðaferð. mbl.is/Ómar Óskarsson

Tveir vélsleðamenn óku fram af snjóhengju við Drangajökul í nótt. Annar slasaðist nokkuð í andliti og á hendi. Þeir voru fluttir á heilsugæslustöðina á Hólmavík til aðhlynningar og skoðunar.

Mennirnir voru á heimleið úr vélsleðaferð rétt fyrir klukkan eitt í nótt. Skyggni var lélegt. Samkvæmt upplýsingum lögreglu sáu þeir ekki snjóhengjuna fyrr en of seint og lentu fram af henni.

Sleðarnir eru illa farnir.

Félagar í Björgunarsveitinni Dagrenningu á Hólmavík fóru til aðstoðar. Þeir komu með mennina á heilsugæslustöðina snemma í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert