Jón Böðvarsson er látinn
Jón Böðvarsson, fyrrverandi skólameistari og ritstjóri Iðnsögu Íslendinga, andaðist í gær á Landspítalanum á 80. aldursári. Jón var fæddur í Reykjavík 2. maí 1930. Hann var kennari mestan hluta starfsævi sinnar og átti mikinn þátt í að endurvekja áhuga almennings á íslenskum fornritum.
Jón Böðvarsson lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1951. Hann nam íslensku við Háskóla Íslands og lauk cand.mag prófi 1964 og prófi í uppeldis- og kennslufræðum frá sama skóla 1973.
Jón kenndi við ýmsa gagnfræðaskóla og framhaldsskóla, einnig á námskeiðum fyrir kennara og leiðsögumenn og var skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja frá stofnun hans 1976 til ársins 1984. Hann var ritstjóri Iðnsögu Íslendinga frá 1985 til 1996.
Jón hélt fjölsótta fyrirlestra og námskeið um íslensk fornrit, einkum Íslendingasögur, á vegum Mímis-Tómstundaskólans og Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands. Þá var hann fararstjóri um söguslóðir Íslendingasagna og fornar Íslendingaslóðir innanlands og utan.
Á yngri árum var Jón mjög virkur í pólitísku starfi og var m.a. starfsmaður Æskulýðsfylkingarinnar og Sameiningarflokks alþýðu - Sósíalistaflokksins 1955-56 og var forseti Æskulýðsfylkingarinnar 1956-58. Í miðstjórn og framkvæmdanefnd Sósíalistaflokksins 1962-64.
Jón gegndi einnig fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir samtök kennara og á sviði menntamála. Eftir hann liggja kennslubækur, handbækur og ljóðabók auk þess sem hann bjó fornsögur til skólaútgáfu. Viðtalsbók Guðrúnar Guðlaugsdóttur við Jón, Sá á skjöld hvítan, kom út í fyrra.
Jón var fyrsti heiðursfélagi Skólameistarafélags Íslands 1979, hann var Paul Harris féagi í Rotaryklúbbi Breiðholts 1993 og var sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu 1994 fyrir fræðslustörf og þátt í að endurvekja almennan áhuga á íslenskum fornritum.
Jón kvæntist Guðrúnu Erlu Björgvinsdóttur, kennara og fyrrum aðstoðarskólastjóra, sonur þeirra er Böðvar Jónsson framkvæmdastjóri og formaður bæjarráðs í Reykjanesbæ. Stjúpsonur Jóns er Björgvin Jónsson, hæstarréttarlögmaður og skákmeistari. Börn Jóns með Vilhelmínu Sigríði Vilhjálmsdóttur eru Sigríður, kennari og rekstrarfræðingur, og Ásthildur tækniteiknari.
Bloggað um fréttina
-
Guðjón Sigþór Jensson Minnisstæður kennari -
Stefán Friðrik Stefánsson Sagnameistarinn mikli -
Magnús Geir Guðmundsson Sagnameistarinn! -
Jón Valur Jensson Jón Böðvarsson, fyrrverandi skólameistari, látinn
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 3. mars 2010, Innlent Jón Hnefill látinn
- Fimmtudagur, 28. janúar 2010, Innlent Peningagjöf í rannsóknarsjóð
- Mánudagur, 3. maí 2010, Innlent Kristín nýr formaður Rithöfundasambandsins
- Miðvikudagur, 6. apríl 2011, Innlent Andlát: Finnbogi Guðmundsson
- Fimmtudagur, 16. september 2010, Innlent Andlát: Kristinn Kristmundsson
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































