Meta áframhald björgunarstarfs
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli fundar núna klukkan fimm með fulltrúum frá svæðisstjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar á svæði 16, og lögreglunni þar sem farið verður yfir öryggismál á gossvæðinu á Fimmvörðuhálsi og ákvörðun tekin um áframhaldandi vöktunar- og björgunarstarf á svæðinu. Næsti fundur verður sennilega um og eftir næstu helgi.
Að sögn Svans Sævars Lárussonar, formanns Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu, hafa á bilinu 40-50 björgunarsveitarmenn verið að störfum á gossvæðinu daglega frá því að gosið hófst aðfaranótt 21. mars sl.
„Stjórnunin á starfinu hefur farið fram hérna í héraði, annars vegar á aðgerðarstjórnstöðvunum hér á Hellu og hins vegar á vettvangsstöðvum sem eru á Hvolsvelli, Vík og Kirkjubæjarklaustri. En mannskapurinn hefur að vel mestu leyti verið frá öðrum svæðum, allt norðan úr Skagafirði,“ segir Svanur og tekur fram að stór hluti björgunarsveitanna á landinu hafa lagt til mannskap.
Spurður hvort björgunarsveitirnar muni halda áfram að vera á stanslausri vakt við eldgosið þar til yfir lýkur til þess að koma í veg fyrir að vanbúið fólk fari sér að voða segist Svanur ekki búast við því.
„Það er alveg ljóst að þó það muni gjósa á Fimmvörðuhálsi í þrjú ár þá yrði gæslan ekkert í líkingu við það sem verið hefur síðustu daga,“ segir Svanur og bætir við:
„Flestir sem ætla sér að fara og sjá þetta búnir að fara á staðinn. Þannig að fljótlega verður þetta bara eins og Gullfoss og Geysir, þ.e. það verður ákveðinn ferðamannastraumur og þá bara tekið á því ef það kemur eitthvað upp í einstöku tilfelli. Það er ekki hægt að vakta þetta í mörg ár,“ segir Svanur.
Spurður hvort ekki þurfi samt eitthvert vöktunarstarf á svæðinu bendir Svanur á að það yrði aldrei í líkingu við það sem er búið að vera.
„Ég held við getum öll sagt okkur það sjálf að ásóknin verður aldrei í þessu magni til lengri tíma, þ.e. mörg þúsund manns að leggja leið sína á gossvæðið á hverjum degi,“ segir Svanur og bendir á að Landmannalaugar hafi mikið aðdráttarafl en þar er engin gæsla eða skipulagt vöktunarstarf. „Það svæði er jafn hættulegt hálendislega séð þó veður séu mest óútreiknanleg á Fimmvörðuhálsi þó víða væri leitað á landinu.“
Bloggað um fréttina
-
Kolbrún Hilmars Björgunarstarf? -
Ásdís Sigurðardóttir Mesta gosgreddan búin !! -
S i g u r ð u r Sigurðarson Fleiri slys hljótast af hreyfingarleysi en fjallgöngum
Innlent »
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 5. apríl 2010, Innlent Dregið úr gæslu en áfram viðbragð
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Hraunið verður afgirt
- Laugardagur, 12. desember 2009, Innlent Bjargað úr Steinsholtsá
- Fimmtudagur, 1. apríl 2010, Innlent Gæsla við gosstöðvar
- Mánudagur, 5. apríl 2010, Innlent Óveður á gossvæðinu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































