Þreifingar í gangi í læknadeilu
Landspítalinn mbl.is/ÞÖK
Þreifingar hafa verið í gangi í dag á milli fulltrúa almennra lækna og stjórnenda Landspítalans. Á sjötta tug almennra lækna hættu störfum 1. apríl sl. vegna óánægju með nýtt vaktaplan þar sem þeir töldu það ekki standast ákvæði vinnulöggjafarinnar um hámarksvinnutíma.
Í samtali við mbl.is sagði Gunnar Thorarensen, stjórnarmaður í Félagi almennra lækna (FAL) og talsmaður félagsins í yfirstandandi deilu, of snemmt að segja til um hvort líklegt væri að deilan myndi leysast í dag.
Sagði hann félagið hafa fengið formlegt svar við sáttatilboði því sem lagt var fram sl. miðvikudag og m.a. fól í sér að innleiðingu nýja vaktaplansins yrði frestað á meðan deiluaðila semdu nýtt vaktaplan sem mætti bæði markmiðum spítalans og virti lög um hámarksvinnutíma.
„Við höfum fengið viðbrögð og það hafa gengið tilboð eða hugmyndir milli manna,“ sagði Gunnar og tók fram að þreifingarnar væru á viðkvæmu stigi og því lítið meira að segja um þær á núverandi tímapunkti.
Á Landspítalanum starfa alls á fimmta hundrað læknar. Yfir páskahelgina hefur bráðaþjónustu aðallega verið sinnt en eftir helgi hefst ýmis önnur starfsemi að nýju, s.s. rannsóknir, skurðaðgerðir og ýmis konar meðferðir. Verði deilan um nýja vaktaplanið ekki leyst á þeim tímapunkti má ljóst vera að vinnuálag mun aukast mikið á þeim læknum sem eftir eru og mögulegt er að fresta gæti þurft þeim aðgerðum og innlögnum sem hægt er að fresta.
Bloggað um fréttina
-
Jóhann Ingi Kristinsson Ísland er Kúba norðursins. -
Guðmundur Baldursson þreifingarnar á viðkvæmu stigi -
Þórarinn Þ Gíslason ÞEIR ÞURFA ALLIR AÐ ÞREIFA FYRIR SÉR Í STARFINU OG ... -
Jóhannes Ragnarsson Græðgissjúkdóm unglækna er auðvelt að uppræta
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 5. apríl 2010, Innlent Lausn fundin í læknadeilu
- Mánudagur, 5. apríl 2010, Innlent Bjartsýnni á lausn læknadeilu
- Laugardagur, 3. apríl 2010, Innlent Deila almennra lækna og Landspítalans enn óleyst
- Miðvikudagur, 31. mars 2010, Innlent Óskar frestunar á vaktabreytingum
- Fimmtudagur, 1. apríl 2010, Innlent Landlæknir hvetur til sátta
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































